Valsblaðið - 24.12.1962, Page 18

Valsblaðið - 24.12.1962, Page 18
16 VALSBLAÐIÐ „Ems og æfmtýri úr Þúsund og einni nótt"‘ Það þótti nokkrum tíðindum sæta, þegar það fréttist síðla sumars að Al- bert Guðmundsson væri farinn suður til Mílanó og ætlaði að leika þar knatt- spyrnuleik. Hafði hann með skeyti ver- ið boðaður til leiksins, og farið og leik- ið með sæmd. Valsblaðinu þótti sjálfsagt að biðja Albert að segja svolítið frá ferð þess- ari sinni á gamlar slóðir, sem liann tróð árin 1947—49. Varð Albert vel við þessari beiðni, og fer frásögn hans liér á eftir. - Aðdragandinn að för þessari og þeim leik, sem leika átti, var sá, að stjórnir Mílan og Inter voru beðnar að styrkja góðgerðarstofnun, sem hafði hjálparstarfsemi fyrir munaðarlaus börn. Var farið fram á að þau létu í té 15—20 milljónir líra í þessu augna- miði. í umræðum um mál þetta kom fram sú hugmynd að velja tvö lið, skip- xið mönnum sem leikið hefðu með félög- um þessum á árunum 1945 til 1950, og ná til þeirra sem liefðu verið mest að- dráttarafl í liðunum á þessum tíma. Milan og Inter eru stór félög í borg- inni Mílanó, og eru miklir og harðir keppinautar, og mætti að sumu leyti líkja þeim við KR og Val hér á árun- um, þegar þau börðust um titlana. Það vildi nú svo til að ég var í Mílanó þegar þetta kom fyrst til umræðu, í verzlunarerindum, og liitti fáa, enda var ég þar ekki nema skamma stund. Aðeins 2—3 dögum eftir að ég kom heim fékk ég skeyti frá Italíu, og var beðinn að koma til Mílanó og leika þar leik á tilteknum degi. Ég var ekki viss um hvort þetta væri grín eða alvara. ítalir geta verið miklir grínistar, og dottið allur skollinn í liug. Mér datt helzt í hug að einhver gömlu félaganna væri að halda upp á afmæl- ið sitt, og ætlaði að efna til grínleiks við það tækifæri, þar sem ég ætti að leika eitt lilutverkið. Ég þorði nú ekki annað en að senda skeyti til Mílan og spyrjast fyrir um leik þennan. Kom þá í ljós að þetta var púraal- vara, og ég átti að fá ferðir fríar, og allt uppihald. Ég varð sem sagt að taka þetta alvarlega, og ákvað auðvitað að fara. Tók með gömlu skóna mína, sem eru farnir að slitna, og táin að vísu upp á við. Á flugstöðinni var tekið á móti mér með miklum látum, blaðamenn flykkt- ust kringum og blaðaljósmyndarar létu heldur ekki sitt eftir liggja. Mér var ekið á ,,lúxus“-hótel í borginni, en þar voru þá fyrir flestir þeirra, sem áttu að taka þátt í leiknum. Flestir voru frá Italíu, en þar voru einnig: Gunnar Gren frá Svíþjóð, Wilkes frá Hollandi, Nyers frá Ungverjalandi, og svo ég, sem var lengst að rekinn. Þarna var og Lied- holm frá Svíþjóð, sem á heima í Mílanó, og Argentínumaður, sem býr í Róm. Þetta var í rauninni mikill fagnaðar- fundur eftir allan þennan tíma, og voru kveðjur innilegar. Dagurinn fyrir leikinn fór að mestu í endurvakningu á vináttusamböndum, og þá talað í léttum tón, okkar í milli. Undirbúningurinn undir leikinn var svipaður og áður, aginn þó ekki eins harður og fyrr. NORÐURLANDABÚUM FAGNAÐ Leikurinn fór fram á San-Sire leik- vanginum í Mílanó, sem mun vera einn glæsilegasti völlur í lieimi. Tekur liann 120 þúsund áliorfenda. Fyrirfram höfðu selzt 40 þúsund aðgöngumiðar, en á- liorfendafjöldinn varð um 80 þúsund, en gert hafði verið ráð fyrir að 15—20 þúsund mundu koma. Ágóði varð því margfalt meiri en gert liafði verið ráð fyrir. I búningsherberginu mátti finna að hugur var í mönnum að sigra. Liðin eru miklir keppinautar, og næstum „erkifjendur“ og, sama á hvaða aldri er, kemst ekki annað að en sigur, — sigur. Flestir strákanna, eða allir þeirra sem léku, keppa enn einhvers staðar, nema ég og ítalinn Annovazzi, sem Hinir />rír vinsœlu norrœnu „víkingar“ í liSi Milan, talifi frá vinstri: Gunnar Gren, Albert og Liedholm.

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.