Valsblaðið - 24.12.1962, Side 23
VALSBLAÐIÐ
21
Hver er
VALSMAÐURINN7
Þannig liefur verið spurt, í hverju
Valsblaði, frá því það hóf göngu sína
árið 1939. Allajafna hefur það verið
nokkur vandi, að hverjum skyldi beina
þessari spurningu í það eða það skipt-
ið, því svo margir koma til greina,
hverju sinni, vegna margþættra starfa
fyrir Val.
Þegar ritstjórnin leiddi hugann að
því, liver skyldi að þessu sinni verða
IMÝR FORSETl
Iþróttasambands Islands
Gísli Halldórsson, hinn nýi forseti ÍSt.
Á síðasta ársþingi Iþróttasambands
Islands var kjörinn nýr forseti samtak-
anna, og hlaut kosningu Gísli Halldórs-
son arkitekt. Gísli er enginn viðvaning-
ur í stjórnarstarfi í íþróttahreyfing-
unni. Hann hefur í um tug ára verið
formaður Iþróttabandalags Reykjavík-
ur. Gísli hefur sýnt það á þessum ár-
um, að hann er ötull í starfi og áliuga-
samur um íþróttamál, og starfsmaður
mikill.
Á yngri árum var uppáhaldsíþrótt
lians knattspyrna og lék hann um skeið
í meistaraflokki KR.
Er Gísla árnað heilla í starfi fyrir
heildarsamtökin í landinu.
F. H.
fyrir svörum, var það einróma álit
hennar, að það bæri engum frekar en
Friðjóni Guðbjörnssyni, manninum,
sem öðrum fremur hefur átt sinn mikil-
væga þátt í að gera útgáfu Valsblaðs-
ins, nú um árabil, mögulega. Það má
fullyrða, að hann hafi séð því fjár-
liagslega farborða, með því að takast
á hendur og framkvæma það hvim-
leiða en bráðnauðsynlega starf, sem
jafnan fylgir blaðaútgáfu, að safna aug-
lýsingum, vera auglýsingastjóri. Eitt er
víst: Án Friðjóns, engar auglýsingar;
án auglýsinga, ekkert Valsblað. Félagið
getur því, fyrst og fremst, þakkað Frið-
jóni sitt myndarlega félagsblað.
Friðjón Guðbjörnsson er einn af
elztu starfandi félögum Vals nú. Hann
er Reykvíkingur, hér hefur liann dval-
ið allan sinn aldur, eða frá 23. okt.
1905, er hann fyrst leit „ljós heimsins“.
Fyrir rúnium 40 árum, eða árið 1920,
gerðist hann félagi Vals. Trúlega og
ókvikulan vörð liefur liann staðið við
merki Vals síðan. Á langri leið geta
menn ekki alltaf verið á þeysispretti,
þannig er það og í félagsmálastarfinu.
En þegar mikils liefur þurft með, hef-
ur Friðjón jafnan, hin síðari ár, verið
reiðubúinn til starfs, svo sem átak það
er hann hefur gert og gerir fyrir Vals-
blaðið sannar og áður liefur verið að
vikið.
Friðjón tók á yngri árum mikinn
þátt í knattspyrnunni, var þá mest í
marki, en lék annars í mörgum öðrum
stöðum á vellinum. Hann var einn
þeirra Valsmanna, sem þátt tók í „sigl-
ingunni miklu“, er Valur fór árið 1927
til Akureyrar, sem frægt var á sinni
tíð og mesta og lengsta för sem knatt-
spyrnufélag hérlendis liafði þá farið
til þessa. Um árabil var hann þjálfari
3. flokks og vann þá mikilvægt starf
fyrir knattspvrnuna í Val og framtíð
liennar. Um skeið átti liann og sæti í
stjórn félagsins og var þar sem annars
staðar tillögugóður og starfsamur.
Friðjón á nú sæti í Fulltrúaráði Vals,
í hinum stóra hópi „gamalla og
reyndra“ félaga, er standa trúan vörð
um hag og heill síns gamla félags, minn-
ugir liðinna æskudaga í leik og baráttu.
Friðjón Guðbjörnsson er að eðlisfari
hlédrægur maður, gætinn til orðs og
æðis, „þéttur á velli og þéttur í lund“,
heldur sitt strik og stefnir jafnan á-
kveðinn að því marki, sem liann hefur
sett sér í hvert eitt sinn.
Friðjón er kvæntur Gunnvöru Gísla-
dóttur. Meðal mannvænlegra bama
þeirra er Friðjón (yngri), sem er einn
af forystumönnum Vals í dag af yngri
kynslóðinni.
Frá því Sundhöll Reykjavíkur var
opnuð árið 1937 hefur Friðjón verið
starfsmaður hennar.
EB.
-x-K-x
Ur reikningum Vals
fyrir 40 árum
(1922).
INNTEKTIR:
Meðlimagjöld 1922 ...... kr. 48.00
Tekjur frá KR .......... — 10.00
Tekjur af knattspyrnumönn-
um 2. flokks ......... — 3.69
Tekið lán hjá Axel Gunnarss. — 19.34
Kr. 81.53
ÚTGJÖLD:
Útborgað fyrir Guðjón Rrm-
ólfsson ................... kr. 5.00
Útborgað fyrir örn Mattliías-
son ......................... — 5.00
Útborgað fy rir áletrim á bikar — 4.00
Útborgað fyrir appelsínur (3.
flokks mótið) .............. — 3.60
Greitt Morgunbl. fyrir auglýs-
ingu ........................ — 5.63
Greitt fyrir fótbolta (H. Á.) -— 24.00
Greitt Prentsm. Acta (aðgm.) — 14.00
Greitt fyrir appels. (Lucina) — 20.00
Kr. 81.53
Rvík, 5. maí.
Undirritaðir liafa yfirfarið reikninga
þess og hafa ekkert við að athuga.
Ingólfur GuSmundsson.
Jón Oddgeir Jónsson.
(Sign.).