Valsblaðið - 24.12.1962, Side 31

Valsblaðið - 24.12.1962, Side 31
VALSBLAÐIÐ 29 ég „tæki mig út“ á tjaldinu. Ég fylgdi aðeins minni eigin ákvörðun og stefnu. Nokkrum árum síðar varð ég fyrir annarri „reynslu“, öllu heldur óhappi, sem nær hafði kostað mig lífið. Þetta var í sambandi við siglingu á báti mín- um, með mér var kona mín og foreldr- ar hennar. Förinni var heitið til eyjar- innar Catalina, þar sem við ætluðum að dvelja yfir helgi og fiska. Ákvörð- unarstaðurinn var lítill kofi á smáskaga á norðanverðri eyjunni. Við vorum rúmlega hálfnuð út í eyj- una, þegar skyndilega skall á okkur hvassviðri með dimmu éli. Konan mín og foreldrar hennar voru öll frammi í káetu, en ég sat við stýrið. Ég hafði einmitt staðið á fætur til að byrgja lúguna, þegar báturinn tók snögga lilið- arveltu. Það skipti engum togum, ég þeyttist bókstaflega fyrir borð, og stakkst á bólakaf í sjóinn. Ég rak upp hljóð um leið og ég hraut útbyrðis, og þegar ég kom úr kafinu, sá ég mér til 6kelfingar, skutljós bátsins hverfa út í sortann. Enginn hafði lieyrt í mér, sem ekki var heldur von. Mér var sem öllum lokið. Það greip mig geigvænleg hræðsla. Ég gerði mér það að vísu Ijóst, að þau, sem með mér voru í bátnum, myndu brátt uppgötva hvarf mitt, og reyna að hefja leit að mér. En möguleikarnir voru sannar- lega ekki miklir á því að þau fyndu mig, við þessar aðstæður — í myrkri og stoormi. Mér er það ekki ljóst hversu lengi ég lá þama og tróð marvaða. Hver hugs- unin rak aðra, en smám saman snerust þær þó allar um ráðleggingu gamla þjálfarans míns: Að skapa sér ákveðna línu — og halda stefnunni eftir henni. Mér varð rórra í skapi og hugsunin varð skýrari. 1 huganum tók ég stefnu á Catalinaeyju. Eyjan er rúmlega 40 km löng. Ég þóttist viss um, að ef ég fyrir hugsjónum mínum gæti dregið beina línu og fylgt henni, myndi mér takast að ná landi. Fullur bjartsýni, sem kringumstæðurnar hins vegar gáfu engan veginn tilefni til, hóf ég sundið, upp á líf og dauða, í áttina til eyjar- innar. Ég varð grátklökkur af þreytu, en þó létt um hjartarætur, er ég þrem tímum síðar sá ljósin á eyjunni blika gegnum sortann. Ég dróst á land um þúsund metrum sunnan við kofann. Þetta liafði verið hræðileg reynsla, en hún efldi mig í traustinu á lífsreglu mína. Lífs- reglu, sem á fleiri en einn veg hefur haldið mér á floti. Að ákveða stefnuna sjálfur og stýra síðan eftir henni, öruggur og án und- ansláttar, að settu marki. Það er þessi ósýnilegi mælikvarði, sem liefur leitt mig af öryggi ár frá ári í gegnum lífið. Ég hef verið hepp- inn. Örlögin hafa sýnt mér þá miklu I jólablaðinu í fyrra var frá því sagt, að húsbændaskipti hefðu orðið á Hlíð- arenda, Valdi og Helga hefðu farið, eftir 20 ára starf, en við tekið hjónin Hermann GuÖnason og Elsa Níelsdóttir. Hafa þau gegnt þessu starfi sínu með mikilli prýði s.l. ár, og átt að fagna vinsældum þeirra, sem þangað sóttu, hvort sem það var um daglega fyrir- greiðslu eða veitingar í félagsheimilinu. Var samvinna við þau hin hezta á þessu tímabili. 1 haust létu þau af störf- um fyrir Val og hurfu frá Hlíðarenda og fluttust í nýja íbúð, sem þau raun- ar biðu eftir. Eru þeim færðar þakkir Valsmanna fyrir störfin og góða sam- vinnu. Nýir húsbændur voru ráðnir, og má með sanni segja að Valsmaður hafi far- ið og Valsmaður komið. Hjónin, sem ráðin voru, þau Edda Björnsdóttir og Stefán Hallgrímsson, eru að nokkru miskunnsemi að gefa mér tækifæri til að geta gert að lífsstarfi mínu, það sem mér hefur þótt vænzt um — sundið. Nú er ég framkvæmdastjóri fyrirtækis, sem hyggir simdlaugar, að minni fyrir- sögn, — án nokkurra afmarkaðra brauta, með breiðum svörtum strikum í botninum. leyti alin upp í Val. Stefán, sem starf- andi leikmaður í úrvalsflokkum Vals í liandknattleik sérstaklega og knatt- spyrnu einnig um langt skeið. Hann hefur líka verið mjög virkur í skíða- málum Vals langan tíma og í forystu þar um skeið. Edda kona hans var lengi þátttak- andi í handknattleik í Val og tíður gestur í Skíðaskála félagsins. Það má því með sanni segja að þau komu ekki ókunnug Val, og að þau þekki allt sitt heimafólk. Þau tóku við hússtjórn í byrjun októ- ber, og á þeim tíma, sem liðinn er síð- an þau tóku við, virðist sem sami góði heimilisbragurinn ráði ríkjum. Eru þau hjón hér með boðin velkom- in til starfa og hyggja Valsmenn á- byggilega gott til samstarfs við þau á komandi tímum. i glas uppáhal Honing súputeningar Heildsölubirgðir: EGGERT krisikon & co. h.f. Lauslega þýtt. — E. B. Valsmaður kemur; Valsmaður fer

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.