Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Blaðsíða 24
26
ekkja Sigurðar býr hér viðgóð efni, en biluð að heilsu.
Bróðir á hún á lífi á Islandi, sem Hafliði heitir og mun
vera vélarstjóri á einu af skipum Eimskipafélags íslands.
ÞORKELL MAGNÚSSON. Hann erfæddur á Gríms-
stöðum á Seltjarnarnesi í Gullbringus. 12. ágúst 1866,
albróðir Ingibjargar konu Hafsteins Sigurðssonar, sem
hér er fyrst talinn. Ólst hann upp hjá foreldrum sínum,
sem voru Magnús Þorkelsson og Vigdís Guðmunds-
dóttir Gissurarsonar, sem um 40 ára skeið var vaktari í
Reykjavík, víða kunnur og vinsaell, bó vanþakklátt starf
hefði á hendi. Stuttu eftir lát föður síns, 1887, fluttist
Þorkell með móður sinni .og fimm systkinum til Nýja-
Islands og nam móðir hans þar land og starfrækti það
með styrk eldri barnanna, þar til þau yngstu voru á legg
komin. Þorkell vann við fiskiveiðar á Winnipegvatni,
þar til h ann árið 1891 fluttist til Keewatin og stundaði
þar fiskiveiðar á eigin reikning í I 2 ár. Gekk hann þá
í félag við Jón Pálmason eins og segir í þætti Jóns hér
næst á undan, og héldu þeir þann félagskap þar til 1915
að Þorkell seldi Jóni sinn hlut. Árið 1914 gekk Þorkell
að eiga Salóme Pálínu Þorsteinsdóttir Erlendssonar
Hjálmarsen, prófasts í Hítárdal í Mýrasýslu og Margrétar
Sigurðardóttir Jónssonar, hreppstjóra á Fjaldbrekku, en
Margét fædd á Gautastöðum í Hörðudal í Dalasýslu
1827. Séra Þorst. E. Hjálmarsen var tvígiftur, fyrri kona
hans Birgytta Halldórsdóttir, ekkja eftir Sigmund John-
sen og var Lárus prófastur í Holti í Önundarfirði eitt af
börnum hennar frá fyrra hjónabandi. Salóme Pálína,
kona Þorkels. fædd 5. okt. 1867. Árið 1871 lézt faðir
hennar og 1888 móðir hennar, sem þá var til heimilis
hjá dóttir sinni Hólmfríði og manni hennar Jóhannesi
Stefánssyni í Ölafsvík í Snæfellsness. og þaðan fluttist
Pálína til Canada 1892 og dvaldi í Winnipeg þar til í
júní 1897 að hún giftist Þorgrími Thorgrímsen, var hann
sonur Torfa Jörgen Thorgrimsens, verzlunarstjóra í Ólafs-
vík og konu hans Sigríðar. Þorgrímur var þá formaður
hjá C. P. R, félaginu á járnbrautum þess í vesturhluta
Ontariofylkis og hafði heimili sitt í Keewatin. Eignuðust
þau hjón eitt barn er þau mistu. Þorgrímur lézt af slysi