Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Side 26
28
apríl 1915. Strax og GuSjón kom til Keewatin byrjaði
hann að vinna fyrir hveitimylnufélagið, Lake of the
Woods og vann þar stöðugt í meir enn 30 ár, eða til
þess að hann varð sjötugur (1. sept. 1934), varð hann þá
að hætta og var settur á eftirlaun, sem nema fjörutíu og
tveim dollars á mánuði, eins lengi og hann lifir. Er hann
annar íslendingur, sem nýtur þeirra verðugu verðlauna
fyrir vel unnið starf hjá því félagi, Guðjón er dugnaðar
og drengskapur maður og ávann sér óskift traust hús-
bænda sinna. Hann á hér gott heimili, sem hann mikið
til hefrr bygt í frístundum sínum, því hann er góður
smiður og yfirleitt er Guðjón vel látinn.
SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, fæddur 6. ág. 1879.
Foreldrar hans voru Guðmundur Magnússon og María
Jónsdóttir frá Bjargi í Gullbringus. Foreldrar Guðmund-
ar föður Sigurðar voru Magnús Þorkelsson og Vigdís
Guðmundsdóttir á Auðnum í Gullbringus. og er þeirra
hér áður getið. Stuttu eftir að Sigurður fæddist misti
hann föður sinn og var hann þá tekinn til fósturs af afa
sínum og ömmu, en móðir hans fluttist til Reykjavíkur
og er þar síðan; nú 80 ára að aldri. Með Vigdísi föður-
móðir sinni og sex börnum hennar fluttist Sigurður til
Canada 1887 og til Nýja íslands og ólst upp hjá Vigdísi,
að hann þrettán ára byrjar að vinna fyrir eigin þörfum.
Sigurður er tvígiftur, fyrri kona hans var Guðmunda
Danielsdóttir; lézt hún eftir 6 mánaða sambúð. Síðari
kona hans er Guðrún Pálína Stefánsdóttir, fædd 1 1. sept.
1 886 í Vallanesi í Suður-Múlas. og þaðan fluttist hún með
foreldrum sínum Stefáni Sigurðssyni og Guðnýju Einars-
dóttir til Winnipeg 1887. Arið (910 fluttust þau Sigurð-
ur og Guðrún Pálína til Keewatin og hafa búið þar
síðan; hann hefir unnið hjá Lake of the Woods mylnu-
félaginu í 24 ár. Sigurður er maður sem kemur sér mæta
vel hvar sem hann er, trúverðugur og svo lagtækur til
verka að aðdáunar vert er. Hafa þau hjón komið sér
upp prýðilegu heimili á nokkrum ekrum af landi, sem
þau keyptu við Darlington Bay og búa þar. Fimm börn
hafa þau hjón eignast: 1. Guðmundur Marino, giftur
hérlendri konu; búa í Keewatin; 2. Sigurður, hjá foreldr-