Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Síða 34
36
er Edward heitir. Á þessum 46 árum sem Haraldur
dvaldi í Kenora, bygði hann yfir 30 stórskip auk fjölda
smærri báta. Þar að auk tók hann mikinn þátt í kapp-
siglingum á stórvötnunum í austurfylkjunum^ og vann
nokkur verðlaun fyrir þá frammistöðu sína. Árið 1897
bygði hann snekkju eina er hann nefndi “Antelope” og
færði það skip honum þrisvar sinnum fyrstu verðlaun í
kappsiglingum, sem varð honum til frama og fjár. Auk
þess að byggja skip og báta, sem flutu á vötnunum,
smíðaði hann mikið af eftirlíkingum (models) með rá og
reiða og rak það starf all-mikið um æfina, meðal annars.
Þegar Haraldur Sigurðsson varð 90 ára, 1933, héldu
Kenora-búar honum samfagnað og sýndu honum á ýms-
an hátt virðing og vinahót. Við það tækifæri gat hann
um það að það væri tvent sem komið hefði fyrir sig á
lífsleiðinni, sem hann væri stoltur af. Það fyrra hefði
skeð 1863, var hann þá háseti á dönsku freygátunni
“Schelland”, sem flutti hina yndisfögru prinsessu,
Alexöndru, dóttir Kristjáns IX. til Lundúna til að ganga
að eiga Edward konung VII., og því fært Bretum þá
elskuverðustu drottningu, sem þar hefði nokkuru sinni
setið í drottningarsessi. Aftur var það ári síðar, að Har-
aldur var á sama skipinu “Schelland” í sjóbardaganum,
sem Danir áttu við Prússa og Austurríkis herskipaflotana
sameinaða við Heligoland 1864, og sem Danir unnu
með miklum heiðri. “Schelland” hafSi 28 fallbyssur
innanborðs og var eitt af 22 herskipum, sem Danir
höfSu í þeirri eftirminnilegu sjóorustu.
BlaSiS “Kenora Miner and News” getur Haraldar
SigurSssonar, sem eins virSingarverSasta borgara og segir
hans sé alment saknað, hann hafi verið athafnamaður
mikill um æfina, sífeldlega starfandi og gæddur lista-
manns hæfileikum í ríkum mæli.
Bræður Haraldar tveir fluttust hingaS til lands, SigurS-
ur SigurSsson, lézt vestur á Kyrrahafsstönd 3. marz 1926
(sjá Alm. 1928) og Sigtyggur SigurSsson dáinn í Norður
Dakota litlu eftir aldamótin. HafSi hann veriS, sem
bróðir hans Haraldur, meiri hlut æfinnar í siglingum, og
verið þaS sem kallað er skipstimburmaður. Þrjár systur
áttu þessir bræður, hétu þær Ingibjörg. Sigurbjörg og Sig-
ríður. Fluttusttil Danmerkur kringum 1875 og munu hafa
ílengst þar. 011 voru þessi systkyn vel gefin og mannvæn-
leg svo að orð fór af, þar sem þau ólust upp, á Akureyri. Ji