Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1936, Síða 45
47
er hún fædd 12. nóv. 1863. Síunduðu þau landbúnað í
mörg ár í Argylebygð og komu til Glenboro 1907. Síðast-
liðin fjölda mörg ár hefir hann hirt bæjarskólann og leyst
bað vel af hendi. Jón er karlmenni með afburðum, dug-
legur verkmaður, brjóstgóður, örlyndur og örlátur, á
marga góða mannkosti og bau hjón bæði. Börn be>rra
er Oliverína Sigurlaug, heima. 2. Tryggvi Sigurbjörn býr
í N. Saskatchewan. 3. Herbert Kristján í Winnipeg. 4.
Friðfinnur Sigurður í Winnipeg.
ÁRNI TH. LONG, ættaður af Austurlandi, fæddur á
Núpi á Berufjarðarströnd. Faðir hans var Þórarinn Rich-
ardson Long. Richard Long var enskur maður í báðar
ættir. Kom til íslands frá Danmörku um tvítugt og varð
verzlunarstjóri á Eskifirði. Hann ílengdist bar og giftist
íslenzkri konu og eignaðust 7 börn, 5 sonu og 2 dætur.
Þórarinn faðir Arna var einn beirra, annar var Matthías
faðir Bergsveins M. Long í Winnipeg. Kunnugur hefir
sagt mér að séra Ólafur Indriðason á Kolfreyjustað hafi
lýst Richard Long á bessa leið: “Hann var vel meðal
maður á hæð og brekinn, hann var gáfumaður og lista-
skrifari að náttárufari og smiður á tré og járn”. Arni Th.
Long ólst upp á Núpi með föður sínum, naut lítillar
mentunar en var náttúru greindur. Hann fluttist hingað
á unga aldri. var nokkur ár í Winnipeg áður hann kom
til Glenboro, sem mun hafa verið um aldamótin og var
hér í mörg ár. Fyrir nær 25 árum fluttist hann til Selkirk
og baðan vestur á Kyrrahafsströnd, og lengi dvalið í
Prince Rupert. Kona hans var Sigríður Bjarnadóttir ætt-
uð af ísafirði, áttu bau einn son Richard að nafni, mun
hann eiga heima í Prince Rupert og vera giftur. Trú-
verðugur maður sem Árna var vel kunnugur lýsir honum
bannig: “Árni er vel greindur, en nokkuð hvass í orðum
og kunni lítt að stilla skap sitt á yngri árum, sem mér lá
við að kenna uppeldinu, hann er lítill maður vexti, en
ótrúlega sterkur enda bráðfjörugur og snar. Arni var
reglulega góður maður fljótur til að hjálpa öllum sem
bágt áttu”. Hygg eg betta vera all-rétta lýsingu, í Glen-
boro tók Árni góðan batt 1 félagsmálum, talaði oft á
mannfundum, vel lesinn var bann og fjölfróður, hann
skeytti ekki hirðsiðum, en kom jafnan til dyranna eins
og hann var klæddur.