Afturelding - 01.12.1962, Page 14
AFTURELDING
Athyglisvert skjal
Skjal það, sem hér segir frá, fannst
í Westminster Abbey í London.
Enginn veit, hve gamalt það er, þvi
að á því er engin dagsetning né
undirskrift. ÞaS hljóSar svo:
Sérhver þjóð mundi búa við stöð-
uga blessun, sem ekki léti stjórnast
af neinum reglum öðrum, en þeim,
sem eru í hinni blessuðu bók, sem
við köllum Biblíu.
Þar er sagt frá svo fullkomnu
kerfi, að það þarf engu við að bæta
og ekkert frá að draga. Bókin segir
frá hlutum, sem nauðsynlegt er að
vita um, og nauðsynlegt að gera.
Bókin er skrifuð jafnt fyrir kon-
unga og betlara. Hún er ráðgjafi
þjóðþinga, valdstétta og embættis-
manna. Hún skuldbindur votta,
krefst óhlutdrægra dóma af dóm-
stólum, og gefur dómurum vizku
til að dæma rétta dóma.
Hún krefst virðingar við foreldra,
og hlýðni af börnum. Hún sýnir tak-
markanir ríkisstjórna, og segir
hvers yfirvöldin geti krafizt af
þeim, sem undir þau eru settir. Hún
krefst þess, að þeir, sem þjóna, skuli
hlýða yfirboðurum sínum, og hún
heitir þeim blessunum ">g varð-
veizlu, sem fylgja þeim vegi, er hún
fræðir um.
Iiún lofar fæði og klæðum. Hún
er málsvörn alls réttlætis, og segir,
að allir, sem undiroki aðra, verði
dæmdir. Hún er bin fyrsta bók, hin
bezta bók og hin elzta bók í heim-
inum. Hún er hinn bezti leiðarvísir,
gefur hina mestu gleði og ánægju,
sem hægt er að öðlast. Hún geymir
hið bezta lagasafn og segir frá hin-
um mesta leyndardómi.
Hún flytur þann bezta boðskap
og gefur hina rnestu huggun leit-
andi, spyrjandi og sorgfullum hjört-
78
um. Hún talar um eilíft líf, og fræð-
ir um veginn til eilífrar dýrðar.
Hún gefur stutt yfirlit yfir það,
sem liðið er, og segir sannleikann
um það, sem muni ske í framtíðinni.
Hún opinberar okkur liinn eina
sanna Guð, og fræðir okkur um
veginn til hans. Alla aðra „guði“
setur hún til hliðar, og kennir, að
það sé þýðingarlaust að tilbiðja þá.
Hún fræðir okkur um það, sem er
rétt og rangt. Hún er bók vizkunn-
ar, sem dæmir alla heimsku, en gerir
hinn einfalda vísan. Hún afhjúpar
alla lygi og glappaskot. Hún er
lífsins bók, er sýnir veginn frá eyði-
leggingunni.
Að skilja hana er í sannleika
það sama og að vera vitur. En virða
hana að vettugi, er vöntun á vizku.
Hún geymir fullkomið lagakerfi-
Hún fræðir okkur um mannlegt líf,
um ferðalög á landi og legi. Hún er
hin bezta bók fyrir konunga, og
fyrir húsmæður er enginn leiðar-
vísir betri. Æskumanninum gefur
hún hina beztu leiðsögn. Hún er
spennandi fyrir skóladrengi og meist-
arastykki fyrir hinn lærða.
Og það sem setur kórónuna á
verkið, er að höfundur hennar er
HANN, sem alltaf er hinn sami, og
hjá hverjum er enginn umbreyt-
ingarskuggi.
Vitnisburður þekktra manna um Biblíuna
Ágústínus: Heilög ritning kennir
okkur að elska himininn og fyrirlíta
hið jarðneska. Hún er æðsta vizka
alls vísdóms og þekkingar. Legg
stund á það að þekkja hana, les hana
mikið. Hún er betri en olía, sann-
ari en gull, hreinni en silfur. Hún
dregur okkur til Guðs, þvingar okk-
ur til að elska Guð,upplýsir hjörtun,
helgar sálina, hrekur hurt léttúðina,
linar þjáningarnar, gefur von, krýn-
ir ellidagana, menntar æskumann-
inn og stöðvar reiðina.
* * *
Walter Scott: Biblían — sú undur-
samlega bók. Ekkert jafnast á við
hana, sem gefur hverri manneskju
hugsvölun í neyð hennar, er gengur
á vit hennar. Biblían er sannleikur,
sem aldrei verður gamall, hún gef-
ur gleði sem maður verður aldrei
þreyttur á, kórónu sem aldrei ryðg-
ar, hugsvölun við áhyggjum, ró í
þrautum, sælurika von og óforgengi-
legt líf. Þetta eru þær gjafir, sem
Drottinn gefur þeim, sem elska hans
Orð.
Anders örne: Ég er óendanlega
þakklátur Guði fyrir það, að ég
fékk að alast upp á litlu sænsku
sveitaheimili við strangan foreldra-
aga, í kristilegum anda. Foreldrarnir
gerðu mig snemma kunnugan
því góða forðabúri, sem heitir
Biblía. Jafnvel á því tímabili ævi
minnar, sem ég varð fráhverfur
trúnr.i, hélt ég áfram að lesa Biblí-
una og læra af henni, sem hefur
inni að halda þann mesta vísdóm,
sem hægt er að finna.
* * *
Óskar prins Bernadotte: Ég hef
öðlazt syndafyrirgefningu og frelsis-
vissu gegnum fyrirheiti Biblíunnar.
Með lestri Biblíunnar hef ég fundið,
hvernig Guð hefur fóstrað mig upp,
og sýnt mér, hvar vegurinn liggur
í fótspor Krists. Rödd samvizkunn-
ar nægir ekki í þessu efni.
Biblían gaf mér frelsi, ljós og allt.
Biblían inniheldur hið hreinasta
vatn, sem slekkur þorsta minn og
hreinsar sál mína.