Afturelding - 01.04.1981, Page 5

Afturelding - 01.04.1981, Page 5
Séra Halldór Gröndal: Tungutal Mig langar að byrja þessa hugleiðingu um tungutal á því að segja frá minni eigin reynslu. Ég hafði orðið fyrir sterkri trúarreynslu og ég vissi, að orð Drottins kallar þá reynslu skírn í heilögum anda. Ég vissi líka, að þegar þetta gerðist á dögum postulanna fylgdi oft tungutal, þessi undarlega og dásamlega gjöf heiiags anda. Én það hafði ekki orðið í mínu tilfelli. Nokkru síðar var ég einn á bæn og eftir að hafa flutt allar bænir mínar, lofað Drottinn og þakkað honum, var ég þögull um stund og hugsaði um Jesúm Krist og hve ég var lánsamur að eiga hann sem vin, frelsara og herra. Ég opnaði munninn til að lofa hann og lofgjörðin kom, en nú með orðum á tungumáli, sem ég ekki skildi. Ég gerði mér strax ljóst, hvað hafði gerst og varð óumræðanlega glaður. Síðan eru liðin sex ár og ég hefi notað þessa yndislegu gjöf andans mikið í bænalífi mínu og starfi, einkum í fyrirbænum. Ekki veit ég hvaða tungumál þetta er, en ég hefi full- komið vald á því, get byrjað og hætt að vild, talað hátt eða lágt, hratt eða hægt og sungið ef svo ber undir. Hér á við það sem Páll postuli segir um spádóma: vAndar spámannanna eru undirgefnir spámönnun- um,“ (sbr. 1. Kor. 14:32). Hafi maður ekki vald á tungutali, þá er það ekki verk heilags anda og þá er eins gott: „að reyna andana, hvort þeir eru frá Guði,“ (sbr. 1. Jóh. 4:1). Hvað er tungutal? Ritningin kennir mikið um það. Fyrst Jesús Kristur og kallar hann það nýjar tungur og segir það vera tákn, sem muni fylgja þeim er trúa, (sbr. Mark. 16:17). Þetta tákn fylgdi dyggi- lega frumsöfnuðinum og eru margar frásögur af tungutali í Postulasögunni. Nægir að benda á Post. 2:4: „Þeir urðu fullir af heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum.“ Og frásagan af Pétri postula og Kornelíusi í 10. kaflanum: „ ... að gjöf heilags anda skyldi einnig vera úthellt yfir heiðingjana, því að þeir heyrðu þá tala nýjum tungum og mikla Guð.“ Tungutal virðist alltaf tengt heilögum anda og vera tákn og opinberun um verk hans í þeim sem trúir. Nú talaði Jesús um fleiri tákn en tungutal og gjafir andans eru vissulega mismunandi. Tungutal er þess vegna ekki eina táknið um fyllingu eða skírn í heilögum anda. Við sjáum þetta líka á orðum Páls postula í 12. kafla 1. Kor. þegar hann segir: „Mis- munur er á náðargáfunum, en andinn hinn sami... einum veitist fyrir andann að mæla af speki ... öðrum lækningagáfur ... öðrum tungutalsgáfa .... þessu kemur til leiðar einn og sami andinn, sem útbýtir hverjum einum út af fyrir sig eftir vild sinni.“ Aðrar gjafir andans en tungutal geta þannig verið tákn um fyllingu heilags anda. Þetta er líka reynsla manna í vakningunni í dag, ekki er öllum gefið tungutal og það kemur líka heim og saman við það sem Páll postuli sagði: „Hvort tala allir tung- um?“ (sbr. 1. Kor. 12:30). Samt vill Páll, að allir tali tungum (sbr. 1. Kor. 14:5) og það gerir hann vafa-

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.