Afturelding - 01.04.1981, Qupperneq 6

Afturelding - 01.04.1981, Qupperneq 6
laust vegna þess að hann veit, hve það er mikil blessun öllum mönnum. En til hvers er tungutal? Það eru a.m.k. þrír ritn- ingastaðir, sem svara þessari spumingu vel. „Sá sem tungu talar, uppbyggir sjálfan sig,“ (sbr. 1. Kor. 14:4) og „Sá sem tungu talar, talar ekki fyrir menn, heldur fyrir Guð,“ (1. Kor. 14:2) og að lokum það sem Jesús Kristur sagði: „Þessi tákn skulu fylgja þeim sem trúa, í mínu nafni munu þeir tala nýjum tungum,“ (sbr. Mark. 16:17). Ef við athugum fyrst orð J,esú, þá hlýtur það að vera mikill trúarstyrkur og uppörvun, að þetta tákn, tungutal, skuli koma fram í lífi manns. Satan er alltaf að gera lítið úr trú okkar og koma inn hjá okkur efasemdum. Tungutalið rekur allt slíkt burt og kemur sem 'tákn og staðfesting að við trúum og það gefur okkur trúarvissu, kjark og djörfung, gleði og fögnuð. Og að tala í tungum er að tala við Guð segir orð Drottins. Þessu fylgir vissa og tilfinning um nærveru Guðs og þegar við erum í nærveru Guðs, þá finn- um við oft, hve við erum syndug. Og við finnum þörf á að játa syndir og láta af þeim. Krossdauði Jesú verður svo augljós að þar fáum við lausn og hreinsun frá synd fyrir dýrmætt blóð hans, (sbr. 1. Jóh. 1:7-9). Allt er þetta mikilvægt í að framganga í heilögum anda og að uppbyggjast trúarlega. Tilgangur með tungutali hjá einstaklingum er fyrst og fremst þessi: Að uppbyggja þann sem talar, hjálpa honum að sækja fram til fullkomnunar í trú, von, kærleika og nytsemi. Og að hjálpa honum að lofa og vegsama Jesúm Krist, frelsara okkar og herra, en það er einmitt það sem andinn gerir, (sbr. Jóh. 16:14). Tungutal hefur einnig annan tilgang og er það þá notað á samkomum og ætlað öllum söfnuðinum til uppbyggingar, en þá fylgir því alltaf önnur gjöf andans, sem er „útlegging tungna.“ (sbr. 1. Kor. 12:10.) Páll postuli leggur mikla áherslu á, að tungutal skuli ekki nota á samkomum, nema það sé útlagt, annars skulu menn þegja (sbr. 1. Kor. 14:28), það er þá gagnslaust, nema fyrir þann sem talar. Þegar tungutal kemur á samkomu, þá ætti sam- koman að bíða hljóð þar til útlegging er komin. Söngur í tungum kemur stundum fram og þá þarf ekki útleggingu, heldur er hann yndisleg lofgjörð, sem allir njóta góðs af. Um tungutal á samkomum ræði ég ekki meira að sinni, en vil að lokum snúa mér að spumingu, sem oft heyrist. Er tungutal fyrir okkur í dag? Já, svo sannariega. Ég vil minna á og endurtaka orð Jesú, þegar hann sagði: „Þessi tákn skulu fylgja þeim sem trúa, í mínu nafni munu þeir tala nýjum tungum,“ (sbr. Mark. 16:17). Við trúum á Jesúm Krist og játum hann. Hví skyldi þetta tákn þá ekki fylgja okkur? Jesú Kristur meinar það sem hann segir. Og Pétur postuli sagði um gjafir heilags anda: „Yður er ætlað fyrirheitið og bömum yðar og öllum þeim sem í fjarlægð eru - öllum þeim sem Drottinn Guð vor kallar til sín.“ (Post. 2:39.) Hefur Drottinn Guð ekki kallað okkur? Erum við ekki böm hans? (sbr. Jóh. 1:12). Náðargjafir Guðs eru ætlaðar öllum bömum hans, líka þér og mér, og við erum hvött til þess að sækjast eftir þeim og tungutalið er vissulega ein þessara gjafa. Og nú vil ég ljúka þessum hugleiðingum með orðum Páls postula: „En sækist eftir náðargáfun- um, þeim hinum meiri, og nú bendi ég yður á enn þá miklu ágætari leið: Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, yrði ég hljómandi málmureða hvellandi bjalla.“ (1. Kor. 12:31-13:1). Guð blessi ykkur öll. Halldór S. Gröndal Jesús beiö eftir mér — Framhald af bls. 4 verða“, fór nú að þrengja að mér, ég vildi verða hólpin en ekki sleppa alveg af heiminum, það yrði hlegið að mér og ég yrði talin öðruvísi en annað fólk. Kvöld nokkurt í byrjun janúar kom elsti sonur minn inn til mín og segir: „Heldurðu mamma þú komir nú ekki með okkur Jónu til Reykjavíkur á morgun, við ætlum að fara til þess að taka skím“. Ég sagði að sjálfsagt mundi það dragast ef ég gerði það ekki núna. Svo ég fer að íhuga málið og hugsa að því betur sem ég hlýði Jesú því meira trúi ég hann geri fyrir mig. Ég ákveð að fara með þeim. Og þess hefur mig aldrei iðrað. Og þar með var líka öll hræðsla við menn tekin frá mér. Ég vil þakka góðum Guði fyrir alla hans náð og miskunn við mig, að hann skyldi bíða eftir mér. Ég vil segja við ykkur, sem lesið þessi fátæklegu orð mín, að vera ekki eins og ég að draga það svona lengi að koma til Jesú og gera upp líf ykkar við hann, enginn á ráð á morgundeginum og Jesús segir að það komist enginn inn í himininn nema fyrir hann, hann sé dymar. Menn eru líka svo oft kallaðir yfir landamærin þegar síst varir. Guð gefi öllum þá náð að vera þá tilbúnir. Ingigerður Guðjónsdóttir frá Kirkjulækjarkoti

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.