Afturelding - 01.04.1981, Side 13

Afturelding - 01.04.1981, Side 13
spámanna í hlutastarfi þjóna þeim. Ástandið er svipað í Kanada, Englandi, Frakklandi, Þýskalandi og fleiri löndum.) En í hugum milljóna er alls ekki um leik að ræða. Þeim er rammasta alvara. Þeir fylgja stjörnunum hvert sem þær leiða — og haga lífi sínu eftir þeim. Mesta grínið fer af stjörnuspánum þegar í ljós kemur að þeim er fylgt út í ystu æsar. Stjömuspámaður einn segir: „Ég finn að vits- munalega get ég ekki séð að hópur pláneta langt, langt í burtu geti haft áhrif á okkur . .. ég trúi ekki á stjömuspáfræði en hún virkar.“ Carrol Righter, stjörnuspámaður frá Kaliforníu er sagður ríkastur þeirra allra. Sú saga er sögð að hann hafi tekið við þúsund dollurum frá Robert Taylor fyrir að gera stjörnuspákort fyrir hann. Hann nær til flestra áheyrenda allra núlifandi stjömuspámanna. Rithöfundur nokkur átti við hann samtal í bleikri höll hans í Hollywood Hills og spurði hann hvemig það hefði atvikast að hann fór að spá í stjömumar. Hann svaraði: „Þegar ég var fjórtán ára var ég kynntur fyrir hinni frægu stjömuspákonu, Evengeline Adams. Hún sagði mér að ég hefði fullkomið stjömumerki til að verða stjömuspámaður. Ég hafði ekki trú á að neitt væri til í þessu hjá henni og byrjaði reyndar að rannsaka með henni til að afsanna þetta allt. Hérna er ég hálfri öld síðar og er enn að reyna að afsanna það sama!“ Hann var spurður: „Hvernig stendur á því, að vissar plánetur í þúsund mílna fjarlægð geta haft áhrif á mannverur hér á jörðu?“ „Ég veit i rauninni ekki hvernig sólin eða tunglið hafa áhrif á okkur en kenning sumra vísindamanna er að milli plánetanna sé tómarúm, þangað til komið sé inn í andrúmsloft jarðarinnar eða annarr- ar plánetu, og þeir segja að fjarlægðin sé lofttóm fyrir móttöku áhrifa annarra pláneta.“ Viðtaland- inn sagði: „Eh-hemm.“ Hvað annað er hægt að segja um eins óljóst svar og þetta? Caroll Righter hélt áfram: „Sjáðu til, ég kæri mig kollóttan um ástæðurnar .. . þegar ég finn eitt- hvað sem virkar þá er ég ekkert að finna út hvers vegna.“ Ástæðan skiptir ekki máli. Bara að það virki. En.segðu mér: Vera má að það komi einhverju til leiðar, en skiptir engu máli hver situr við stjórnvöl- mn? Það skipti miklu ef um eitthvert raftæki væri að ræða. Watergate málsins mun lengi verða minnst. Demokratar urðu mjög órólegir við þá tilhugsun að repúblikanar væru að hlusta á áform þeirra. Hvað hefði heyrst í þeim hefðu þeir haldið að repúblik- anar væru ekki aðeins að hlusta heldur að þeir stjómuðu í rauninni starfsemi demókrata fyrir til- stilli einhvers konar rafeindatækis? Það skiptir máli hver situr við stjórntækin. Hvers vegna erum við svo varkár varðandi stjómendur tækja en svo granda- laus þegar um er að ræða hin ósýnilegu og óþekktu öfl sem að verki eru í andaheiminum? Hvers vegna sjáum við ógnun í öðru en ekki í hinu? Sumir segja að nútíma stjörnuspáfræði, sé alls ekkert lík hinni upprunalegu stjörnuspáfræði Egypta. Einn stjörnuspámaður heldur fram að stjörnuspáfræðinni hafi aldrei verið ætlað að verða að trúarbrögðum eins og hún er í dag. Hann segir ennfremur: „Upphaflega var stjömuspáfræðin sett á laggirnar sem tímamælitæki. Hún hófst í Nílar- dalnum og þessirgömlu náungarnotuðu hana til að segja fólki til um hvenær það mætti vænta flóð- anna ... Áður en öll þessi dulfræði blandaðist inn í hana var stjömuspáfræðin landbúnaðartæki. Með því var hægt að segja til um hvenær ætti að planta og sá. Stjömuspáfræðin var hagnýtur hlutur.“ Ivan Sanderson, sem afneitar algjörlega gildi nú- tíma stjömuspáfræði álítur að hann hafi komist að uppruna stjömumerkjahjólsins. Hann hefur í rann- sóknum sínum rakið upprunann til forn Súmera. Hann segir að það hafi ekkert átt skylt við hina gömlu stjörnuspáfræði; að stjörnuspáhjólið hafi ekki verið annað en vegakort svipað og þau sem fást á bensínstöðvum nú á dögum. Með öðrum orðum, það var aðeins ferðaleiðbeiningar fyrir hvern sem ætlaði í einhverja ákveðna átt frá botni Persneska flóans. Þetta er allt mjög sennilegt og er í hæsta máta áhugavekjandi. Ég er auðvitað ekki fær um að meta áreiðanleika alls þessa. En stjömuspáfræðinni er einnig annað vandamál tengt. Það hefur að gera með örlagatrú og frjálsan vilja. Stjömuspekingar segja ef til vill, að hún sé ekki háð örlagatrú. En sá þáttur er sannarlega til staðar. Frægur stjömuspámaður sem beðinn hafði verið að draga upp stjömukort fyrir Charles Manson, strax eftir Sharon Tate morðin, dró þá ályktun að stjörn- urnar hefðu skapað honum þau örlög að verða manndrápari. Mörgum einstaklingum finnst að hafi eitthvað um þá verið sagt fyrir, þá losni þeir undan þeirri ábyrgð að taka ákvarðanir. Þetta er hættan. Einstaklingsframtakið er lamað. Stjörnurnar eru látnar sjá um allt. Og oft eru ringulreið og örvænt- ing afleiðingarnar. Stjömuspá er ekki hættulaus dægrastytting. Hún kann að virðast svo. En einstaklingurinn verður

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.