Afturelding - 01.04.1981, Side 16

Afturelding - 01.04.1981, Side 16
Vinson Synan: Azusa-stræti: Rætur vakningarinnar Þann 17. apríl, árið 1906, safnaðist saman lítill hópur af fátæku, trúuðu fólki í hrörlegri byggingu í Los Angeles, til þess að bíða komu Heilags Anda í fyllingu hvítasunnunnar. Fólkið sat í hring um- hverfis leiðtogann. Kaflar úr Ritningunni voru lesnir og kröftugir vitnisburðir um blessanir Guðs fylgdu í kjölfarið. Stundum hljómaði fallegur söngur í andanum. Af og til talaði einhver framandi tungum, á meðan annar þýddi boðskapinn yfir á ensku. Enn aðrir spáðu. Beðið var fyrir sjúkum með handayfirlagningu. Þessi mynd lýsir dæmigerðri bænasamkomu hjá hinu látlausa Azusa-strætis trúboði, sem varð kveikjan að alheims hvítasunnuvakningu á fyrstu áratugum 20. aldarinnar. Náðargjafavakningar innan hefðbundinna kirkna, sem hófust um og upp úr 1960, eiga einnig rætur að rekja til Azusa-strætis. Það væri e.t.v. vel viðeigandi að fylgjendur hinna ýmsu náðargjafahreyfinga gæfu betri gaum að upphafinu, þar eð á þessu ári eru liðin 75 ár frá því vakningin braust út í Azusa-stræti. Án Azusa-strætis trúboðsins er óvíst að við hefð- um jafn kröftuga náðargjafahreyfingu og við búum að í dag. Margt af guðfræði og tilbeiðsluhætti náðargjafahreyfingu má rekja til hinna byltingar- kenndu og helguðu manna sem söfnuðust saman í litlu trúboðsstöðinni í Los Angeles. Mikill hluti þess sem kennt hefur verið og upplifað í náðargjafa-- bænahópum og mótum, var til staðar á frumstigi Azusa-strætis starfsins. Hið stóra hlutverk vakningarinnar í sögu kirkj- unnar í dag gefur fylgjendum náðargjafahreyfinga enn aðra ástæðu til að horfa aftur til Ázusa-strætis. Víðs vegar um heiminn gefur að finna hina and- legu krafta sem leystust úr læðingi í Azusa-stræti. I ár er áætlað að fjöldi hvítasunnumanna eða fylgj- enda náðargjafahreyfinga, sé um 75 milljónir. Um árabil hefur Hvítasunnuhreyfingin verið sú hreyf- ing sem hvað örast hefur vaxið innan kristninnar og nú er náðargjafavakningin sú hreyfing sem örast vex innan safnaðanna. Samt sem áður átti Hvítasunnuhreyfingin, eins og við þekkjum hana í dag ekki upphaf sitt að rekja til Azusa-strætis. Sá sem fyrstur varð til að tengja tungutal (glossolalia) við skím Heilags Anda var Charles Fox Parham frá Topeka í Kansas-borg. Parham, fyrrverandi meþódistaprestur, varð pre- dikari í helgunarhreyfingunni undir lok 19. aldar- innar og hóf að kenna grundvallarkenningar hreyfingarinnar, þ.e. réttlætingu fyrir trú (endur- fæðingu), helgun sem annað náðarverk í gegnum skírn Heilags Anda (án tungutals), guðlega lækn- ingu fyrir friðþægingarverk Krists á krossi og skjóta endurkomu Krists. Árið 1898 safnaði Parham saman um 40 nem- endum í Biblíuskóla í Topeka. Þessi hópur átti margt sameiginlegt með náðargjafasamfélögum eins og þau tíðkast í dag. Allar eignir voru sam- eiginlegar og þar eð skólinn var rekinn í trú, var einskis skólagjalds krafist. Hópurinn bjó í stórri þriggja hæða byggingu í útjaðri Topeka, sem kölluð var „Steina-Della“. í desembermánuði árið 1900, komust Parham og nemendur hans að þeirri niðurstöðu, við lestur Postulasögunnar, að tungutalið væri sönnun þess að maður hefði skírst í Heilögum Anda (sbr. Post. 2:10 og 19). Á miðnætursamkomu aðfaranótt nýársdags 1901, talaði 18 ára gömul stúlka, Agnes Ozman að nafni, nýjum tungum, eftir að hendur höfðu verið lagðar yfir hana og beðið hafði verið fyrir henni til skírnar í Heilögum Anda. Ekki leið á löngu þar til aðrir nemendur og Parham sjálfur töluðu nýjum tungum. Parham grundvallaði síðan þá kenningu að tungutal (glossolalia) væri megin sönnun fyrir skírn Andans. Árið 1905 flutti Parham skóla sinn til Houston í Texas, og einnig þar braust tungutalið út. Skömmu seinna sótti Texasbúi nokkur, William J. Seymour að nafni, um inngöngu í skólann. Seymourþessi var svartur prestur í helgunarhreyfingunni. Hann var sammála kenningu Parhams, en um þetta leyti tal- aði hann sjálfur ekki tungum.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.