Afturelding - 01.04.1981, Qupperneq 17

Afturelding - 01.04.1981, Qupperneq 17
ian í A/.usa-stræti t byrjun ársins 1906 var Seymour boðið að pre- dika í Nazarene-kirkjunni í Los Angeles, en það var kirkja fyrir blökkumenn. Parham hvatti Seymour til fararinnar og útvegaði honum í ofanálag farmiða með lestinni. Þegar Seymour lagði síðan út frá Postulasögunni 2:4 í Nazarene-kirkjunni, og fullyrti að tungutal væri sönnun fyrir skírn í Heilögum Anda, var hann gerður útlægur þaðan. Asbury fjölskyldan, blökku- mannafjölskylda sem hafði samúð með Seymour, bauð honum til sín, að Bonnie-Brae götu. Fljótlega féll Andinn á bænasamkomu í dagstofunni og Sey- mour tók að tala nýjum tungum. í kjölfarið fylgdu útisamkomur og voru gluggasyllur notaðar fyrir ræðupúlt. Með aukinni aðsókn jókst þörfin eftir hentugum samkomustað. Seymour fann yfirgefna meþódistakirkju að Azusa-stræti 312, og þar var samkomunum síðan áfram haldið. Fyrsta sam- koman var haldin í apríl. í dag yrði litið á þessa byggingu sem hreysi. Eft- irfarandi lýsing er tekin úr „Vegi Sannleikans“, 11. október 1906: Miðstöð þessa starfs er gömul meþódistakirkja, byggð úr tré, og nu á söluskrá. Hún er brunnin að hluta til, en hefur verið endurbætt með flötu þaki. Henni er skipt með gólfi i tvær íbúðir. Hún er ókölkuð, kalkvatni hefur einungis verið klínt á hrjúfa veggi hennar. Á efri hæðinni er langt her- bergi, búið stólum og þrem rauðviðarbekkjum sem hvíla á baklausum stólum. Þetta er loftstofa Hvítasunnumanna, þar sem helgaðar sálir leita eftir fyllingu hvítasunnunnar og fara þaðan tal- andi nýjum tungum, leitandi eftir snturningu Hei- lags Anda í líkingu gamla tímans. 1 húsinu eru einnig minni herbergi þar sem hendur eru lagðar á hina sjúku og þeir læknast og fara þaðan endur- nærðir. Á neðri hæðinni er stórt herbergi alsett stólum, bekkjum, og sætum, þar sem hinir forvitnu og áköfu sitja tímunum saman, hlustandi á undarleg hljóð, söngva, og áminningar frá himni ofan. í miðju stóra herbergisins er bómullar kassi nokkur, sent skransali myndi líklega meta á eina krónu. Þetta er ræðupúltið, en þaðan hafa hljómað ræður bróður Seymours um iðrun, vald hinna kristnu yfir illum öndum og sjúkdómum og „skírn í Heilögum Anda og eldi“, allt með skírskotun til frumkristninnar.

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.