Afturelding - 01.04.1981, Side 22

Afturelding - 01.04.1981, Side 22
+ Páll Lúthersson kristniboði kveðja Páll var fæddur á Eskifirði 20. október árið 1926. En þar bjuggu foreldrar hans, þau hjónin Arnbjörg Pálsdóttir frá Veturhúsum og Lúther Guðnason oddviti á Eskifirði. Þegar Páll var sex ára andaðist móðir hans. Börnin voru þá orðin fimm, en tvö dóu í frumbernsku. Þrjú komust upp, Páll, Unnur og Sverrir. Reynsla æskuáranna hafði sterk áhrif á Pál og mótaði mikið líf hans. Hann var alla tíð auðmjúkur og tilbúinn til hjálpar lítilmagna fólki og þeirra er við bág kjör áttu að búa. Komu þeir eiginleikar hans mjög fram í kristniboðinu og störfum hans þar. Þorbjörg og Páll móðurforeldrar hans tóku dótt- ursoninn að sér. Páll var næmur og skýr til bókar- innar. Hann var líka laginn til handarinnar og hamhleypa til allra verka. Ferðamaður var hann duglegur og dróg sig ekki frá vetrarferðum um heiðar landsins, þegar aðrir sátu heima. Ungur nam Páll klæðskeraiðn og lauk námi, með lofsamlegum vitnisburði. Um tíma hafði hann mikið umleikis á þeim vettvangi og var markaður hans allt landið. Áhugamál Páls og hugsjónir voru á vettvangi trúboðs og Kristniboðsmála. Þar var hann stórtæk- ur og afkastamikill. Vann eins og maður er hafði takmarkaðan tíma. Uppskeran þurfti að komast í hús. Óveðursský nálguðust. Þau komu 25. maí s.l. er hann að loknu dagsverki var á heimleið og keyrði fram á þilaðan bíl. Páll stóð fyrir framan bílinn og var að hjálpa óskildu og óþekktu þeldökku fólki. Það voru bræður hans og systur og vinir. Þar og þá dundi dimman yfir. Páll var allur hér í heimi. Hann var viðbúinn og Andi hans og sál fóru heim til Drottins. Jarðneskar leifar hans komu heim og var hann kvaddur með virðingu og þökk að viðstöddum 400 manns. Biskup landsins kvaddi mikilvirkan starfsmann í guðsríki. Einnig fluttu ávörp Daníel Óskarsson oddamaður Hjálp- ræðishersins á íslandi, Tryggvi Lie frá Noregi, full- trúi Norska kristniboðsins, meðal Hvítasunnu- manna og Óskar Gíslason úr Eyjum, sem flutti kveðjur frá Betel, en þar var Páll meðlimur um mörg ár. Einnig tók til máls fyrir hönd barna Páls heitins, Ingimar Pálsson. Undirritaður flutti ævi- ágrip og jarðsöng. Kirkjukór Fíladelfíu söng, stjórnandi var Árni Arinbjarnarson. Aftureldingu er skylt og kært að minnast Páls. Um mörg ár var hann framkvæmdastjóri Blaða- og bókaútgáfu Fíladelfíu og sá þá um útgáfu þessa blaðs bæði með fjárhag og annað. Páll lagði dugnað sinn og metnað í að hafa blaðið sem læsilegast og fjölbreytast. Oft var kostur þröngur, en Páll hafði ráð undir hverju rifi. Spor hans og verk fyrir blaðið, verða metin og vegin af Drottni allsherjar. Menn gátu ekki talið þau eða metið. Þetta var unnið í þögn hins trúaða manns. I einkalífi sínu hlaut Páll þá gæfu að kvænast og eiga Aðalbjörgu Ingólfsdóttur frá Vopnafirði. Börn þeirra urðu 7 og hafa öll komist til manns. Aðal- björg bjó manni sínum fagurt og gott heimili. Það var Páli vé og skjól. Því oft blés á móti og þurfti að klífa þrítugan hamarinn til að koma málunum í höfn. Páll mátti reikna með því sem vísu að Aðal- björg stæði alltaf heils hugar við hlið hans, elskuleg, hrein og uppörvandi. Þó svo heilsufar hennar leyfði ekki veru með honum í Afríku, þá vann hún sitt verk fyrir kristniboðið, svo um munaði. Nú þegar Páll er kvaddur hér í blaðinu, þá vil ég þakka honum liðin samstarfsár og vinskap. Oft fór Páll hratt yfir, svo erfitt var bæði fyrir mig og aðra að fylgja honum. Tilgangur hans miðaðist ávallt við að vinna menn og konur fyrir guðsríki. í fullri orku og af mannkærleika, þá stóð hann í miðri önn, þegar kallið kom. Síðustu orðin er hann handskrif- aði til vina sinna hér heima voru „Dauði ég óttast eigi,/ afl þitt né valdið gilt./ í Kristí krafti ég segi./ Kom þú sæll þegar þú vilt.“ Slíkra er gott að minnast. Ritstjórinn.

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.