Afturelding - 01.01.1984, Síða 2

Afturelding - 01.01.1984, Síða 2
Á þessu ári minnumst við fimmtíu ára afmælis tímaritsins AFTURELDINGAR. Þegar blaðið hóf göngu sína í desember 1934, var fremur drungalegt um- horfs á mörgum sviðum og ís- lendingar að undirbúa kreppu- jól. Efnahagskreppan mikla var í algleymingi, alþýða manna bjó við atvinnuleysi og þröng kjör, án áþreifanlegra fyrirheita um bjartari tíma. Þrátt fyrir efnalega mcgurð lóru sterkir straumar um íslenskt þjóðlíf. Stjórnmálalegar svipt- ingargerðustsjaldan harðari en á þessu skeiði, enda vöknuð ný sjálfstæðisvitund með fólkinu og draumaland öreigana ennþá sveipað hulinshjúp ævintýra. Menn tókust á um framtíðar- skipan þjóðfélagsins. Þegar því veraldlega sleppti áttust menn við um hin trúar- legu sannindi. Áhrif vísinda- hyggju og trúar á manninn sjálf- an skiptu löndum í trúmálaum- ræðunni. Þau viðhorf voru á lofti að Biblíuleg kristin trú væri í .stórhættu vegna aukinnar þekk- ingar. Margir fundu hjá sér þörf til að bjarga því, sem bjargað varð og aðlaga kirkjunnar kenn- ing að nýjum viðhorfum. Syndin varaflögð og manninum næstum tyllt á hásæti Guðs. Svolítið á ská við þessa voru þeir leikir og lærðir, sem stunduðu kukl til að „sanna“ að eitthvað væri nú hinumegin, þrátt fyrir allt. í móti skipuðu sér málsvarar Biblíu- legrar hreintrúar, þeir fylktu sér um sannindi Heilagrar ritningar og höfnuðu öllum undirlægju- hætti við drottnun mannsins. Leikmannahreyfingar og frí- kirkjur höfðu unnið sér fastan sess í þjóðlífinu. Má þar nefna KFUM og K, sem vann og vinn- ur ótrúlega umfangsmikið starf meðal bama og unglinga og var bakhjarl heiðingjatrúboðs í fjar- lægum álfum. í dag sér víða ávöxt þessa starfs innan kirkju og kristni íslands. Aðventistar og Bræðrasöfnuð- ur höfðu starfað hér um áratuga skeið og staðið að miklu útgáfu- starfi. Hjálpræðisherinn var löngu orðinn ómissandi þáttur í mannlífinu og vinsælt umljöll- unarefni skrásetjara ýmiskonar. Hvítasunnusöfnuðurinn var yngstur í hettunni og nam land í Vestmannaeyjum. Þessir trúflokkar alþýðunnar, voru veraldlega smáir en vöktu því meiri athygli og umtal.

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.