Afturelding - 01.01.1984, Blaðsíða 17
er númer eitt
ílífi mínu”
Biblíuna. Maður nokkur í
Malmö sem verslar með kristi-
legar bækur sagði frá því að dag
nokkurn hafi maður komið inn í
búðina til sín með tólf ára dótt-
ur sína. Tilgangurinn var að
kaupa handa henni Biblíu. Hún
hafði séð Carolu í sjónvarpinu
með Biblíu og vildi líka fá sér
eina.
Maðurinn keypti einnig Bibl-
íunámskeið fyrir nýfrelsaða
handa sjálfum sér.
Þegar maður sér Carolu, geisl-
andi af gleði, vitna um trú sína á
lifandi Jesú, fyrir fólki sem hefur
e.t.v. aldrei áður heyrt vitnis-
burð, verður maður virkilega
gripinn.
Carolu finnst gott að sameina
trú sína á Guð starfi sínu. Lífíð á
sviðinu og einkalífið, er eitt og
hið sama. Það eru ekki tvö að-
skilin svið. — Ég vil alltaf hafa
Jesú í miðdepli.
Carola hefur frá blautu bams-
beini trúað á Guð og hefur aldrei
verið feimin við að vitna fyrir
vinum sínum um trúna. Nokkrir
kristnir söngvarar vitnuðu fyrir
henni um Jesú og hún tók á móti
honum sem frelsara sínum í
skíðaferðalagi.
— Og ég hef gert mér grein
fyrir því að ég get ekki án hans
verið, segir hún. Ég les Biblíuna
á hverjum degi. Ef ég sleppi úr
degi fer hann allur úr skorðum.
Ég þarf á andaktstundum að
halda til að standast freistingar
og vandamál sem á vegi mínum
verða.
Carola trúir því að mannkynið
muni farast, — en, bætir hún við,
— ég trúi því að sífellt fleiri muni
finna lykilinn að lífinu, Jesú
sjálfan, með því að gefa gaum að
tilgangi lífsins.
Carola hefur víðfeðman tón-
listarsmekk. Hún hlustar á allt,
frá klassískri tónlist til rokktón-
listar. Helst vill hún syngja trúar-
tónlist og þá fyrst og fremst
vegna þess hve textarnir eru góð-
ir. — Það er gott að syngja um
Jesú, segir Carola. — Ég vildi
gjarnan syngja enn meira af
andlegri tónlist.
Carola veit ekki hvað framtíð-
in ber í skauti sér.
— Kannski set ég á fót tónlist-
arskóla, kannski Biblíuskóla. Ég
veit ekki. En eins og ég sagði
áðan, þá er Jesús mér allt. Hann
leiðir mig og þá er hamingja mín
fullkomin, segir Carola að
lokum.
Tuttugu blaðamenn hafa feng-
ið að heyra innilegan og lítlegan
vitnisburð um lifandi og frels-
andi Jesú frá sautján ára gamalli
sænskri stúlku.
Enn einu sinni hefur Carola
fengið tækifæri til að vitna um
frelsara sinn.
Þýtt úr Korsets Budskap, jan. '84, M.Æ.
Myndir: Timo Pellinen