Afturelding - 01.01.1984, Síða 15
boðsskrifstofu,sem hefur á að skipa
tæknimenntuðu fólki og kunnáttu-
mönnum. Þegar skipt er við kapal-
stöðvarnar og ríkisreknu sjónvarps-
stöðvamar um dreifmgu cfnis þá vilja
forráðamenn þeirra eiga við fag-
menn, sem þekkja tækniatriði og
hugtök sem notuð eru.
„Alpha Omega“ verður eins kon-
ar málsvari hinna landsbundnu aðila
úr hverju þjóðlandi, sem vilja koma
á framfæri sjónvarpsefni, hvort held-
ur er um gervihnött eða kapalkerfi.
Við mælum með því að innan hvers
lands sé myndaðar samstarfsnefndir,
fremur ,austengd samtök heldur en
fastmótuð félög. Þjóðverjamir kusu
að stofna formlegt félag, en í Eng-
landi er samstarfsnefnd, og slík nefnd
getur komið mörgu góðu til leiðar.
Kirkjudeildirnar mega samt gæta
þess að fórna ekki sérkennum sín-
um. Sá sem er hvítasunnumaður á
að vera það og halda sinni ímynd, og
það ættu einnig aðrir söfnuðir að
gera.
Við hvetjum sem sagt menn til
samstarfs innan þjóðlandanna, þó að
þeir sameinist um tækjabúnaðinn og
dreifingarkerfið til að koma fagnað-
arerindinu á framfæri. Við leggjum
áhersiu á að i sjónvarpinu sé fagnað-
arerindið boðað, en sérkenningar
hverrrar kirkjudeildar lagðar til hlið-
ar. Evrópumönnum finnst svolítið
erfitt að skilja þetta, þeir eru svo
vanir skiptingum og landamærum,
en þetta hel'ur þó gerst í Þýskalandi
og Englandi. Við hvetjum hverja
þjóð til að leysa þetta mál innan
sinna landamæra, því aðstæður eru
svo mismunandi.
Á Ítalíu og í Frakklandi standa
Hvítasunnumenn einir að sjónvarps-
starfinu. Við vitum ekki hvernig
verður með samstarf við aðrar kirkj-
ur í þessum löndum.
Það er athyglisvert að Hvíta-
sunnumenn hafa verið í fararbroddi
við nýtingu þessa fjölmiðils, sjón-
varpsins. Sé litið vestur um haf sést
að stærstu sjónvarpsfélögin, svo sem
CBN, PTL, rás 40 í Los Angeles, rás
22 í Florida, rás 38 í Chicago, hafa
öll verið stofnuð fyrir forgöngu
Hvítasunnumanna. Þetta hefur og
átt við um þróunina í Evrópu. Hinar
kirkjurnar koma í kjölfarið og við
þörfnumst hjálpar þeirra og sam-
starfs við þær. í Kanada starfa með
okkur prestar úr kaþólsku kirkjunni,
anglíkanakirkjunni, ennonítar og úr
fleiri kirkjum. I þessu er leyndar-
dómur fólginn, fólk úr þessum
kirkjudeildum horfir einnig á send-
ingar okkar og óski það eftir ráðgjöf,
eðasamtali,þá vill það helst tala við
þjónandi mann úr þess eigin kirkju-
deild.
Hvítasunnuhreyfingar Norður-
landanna hafa sameinast í sjón-
varpsfélaginu TV INTER, sem nú
þegar hefur fest kaup á fullkomnum
upptökubíl. Hver þróunin verður í
Evrópu vitum við ekki i smáatrið-
um. Það hafa allir eitthvað gott til
málanna að leggja og við skulum
nota það góða. En við stígum bara
eitt skref í einu.
Myndirog tcxti:
Guöni Kinarsson