Afturelding - 01.01.1984, Page 20

Afturelding - 01.01.1984, Page 20
ára skeið og svo í Fíladelfíu um 22 ára skeið, þá hélt hann áfram um stjórnvöl þessa blaðs allt til 12. nóvember árið 1975, að hann var kvaddur á Herrans fund. Að vinna með Ásmundi, þegar hann dró sig til baka árið 1970 og næstu 5 ár, að vinna með honum sem ritstjóra, var mjög lærdómsríkt. Það var segin saga, ef erfiðleikar komu, þá var alltaf farin ein leið, „vegur bænar- innar“. Þá fengum við svo oft að sjá að sú leið var haldgóð og brást ekki. Ásmundur var mjög umtalsfróm- ur maður og vildi ekki leggja öðrum illt til. Hann var mjög háttvís í allri umgengni og kurteis. Væri hann beðinn ráða, þá var afstaða hans skýr og ákveðin. Hik var aldrei á honum í að leiða menn að Krossi Jesú Krists. Hann var „sálnaveiðari" af Guðs náð.Frábær Biblíulesari og prédikanir hans lifa á vörum fólks, mörgum árum eftir andlát hans. Þrekvirki og elja sjást fyrir mannleg- um augum í byggingu Fíladelfíu- kirkjunnar, einni veglegustu kirkju landsins. Allt það besta og vegleg- asta hæfði kirkjunni og ekkert ann- að. Sama hvort það voru harmon- ikuhurðir, sæti kirkjunnar, orgelið og svo litur á húsinu. Það hefir ver- ið málað þriðja hvert ár tilveru sinn- ar. Eitt sinn kom tillaga um að mála það dökk-rautt. Það var húsateikn- ari er lagði slíkt fram. Mér fannst sem Ásmundur hafi fengið högg, svo agndofa varð hann. Hann vildi sólina í litum hússins og það varð ofan á í það skiptið. Ekki er hægt að skrifa svo um Ás- mund ritstjóra að ekki sé getið Þór- hildar konu hans, sem var prófarka- lesari ár eftir ár. Svo vandvirk var hún, að Garðar forstjóri í Borgar- prenti Reykjavík, sagði við undir- ritaðan að varla væri sú prentvilla til, að Þórhildur fyndi hana ekki. Með þakklæti og virðingu við báða fyrrgreinda menn. Einar J. Gíslason INNLENDAR FRÉTTIR Ný Samhjálparplata Komin er út á vegum Samhjálpar hljómplatan „Heyr þú minn söng.“ Hefur hún að geyma II lög og er hljóðrituð í Studio Stemmu. Sigurð- ur Rúnar Jónsson stjómaði upptöku og sá um útsetningar. Auk þess leik- ur hann á fjölda hljóðfæra. Allir text- ar eru eftir Óla Ágústsson. Þeim sem vildu eignast hljómplötuna er bent á að snúa sér til Þríbúða, Félagsmið- stöðvar Samhjálpar, Hverfisgötu 42. Einnig er hjómplatan póstsend það- an um allt land. Pöntunarsíminn er: 91-10477 og 91-11000. Framgangur fyrir norðan Frá Akureyri berast þær fréttir að kirkjubygging norðanmanna gangi vel. Lokið er við að steypa upp alla veggi leikskólans og búið að reisa hluta sjálfs safnaðarhússins. I sumar er ráðgert að setja þak yfir þessa áfanga, selja gamla safnaðarhúsið að Lundargötu 12 og flytja inn í hluta nýja safnaðarhússins (75—80 m2 húsnæði). Vörður Traustason, forstöðumað- ur Hvítasunnusafnaðarins á Akur- eyri, segir starfið ganga vel. — Það er framgangur og fólk frelsast. í vetur komu þrír samfélagshópar saman í heimahúsum og gaf það mjög góða raun. Það sem af er árinu hafa tvær stúlkur tekið niðurdýfingarskím. Póllandssöfnun Systrafélag Fíladelfíu hefur um skeið unnið að því, í samvinnu við Hjálparstofnun kirkjunnar, að út- vega hjálpargögn til Póllands. í endaðan nóvember voru send þang- að á annað tonn af fatnaði, hreinlæt- isvömm, mat- og skólavörum (stíla- og reiknisbókum, blýöntum og pennum). Nú stendur yfir pökkun á annarri sendingu sem áætlað er að fari utan í lok mars. Samhliða þessu INNLENDAR FRÉTTIR INNLENDAR FRÉTTIR Hjálpargögn til Póllands. hefur Systrafélagið haft með hönd- um hjálparsendingar til Afríku. Samkvæmt bréfum sem borist hafa þaðan er mikill skortur á fatnaði. Tekið er á móti heilum og hreinum fatnaði í Fíladelfíu. Það sem aðallega stendur starfinu fyrir þrifum er íjár- skortur, því að sendingarkostnaður á vörum milli íslands og Afríku er mjög mikill. Þeim sem vildu leggja eitthvað að mörkum við að vega á móti þessum kostnaði er bent á ávísanareikning 340 í Sparisjóðnum Pundinu. Góð sala Biblíunnar Það hefur varla farið framhjá neinum að í ágúst 1981 kom út á veg- um Hins íslenska Biblíufélags, ný og endurbætt útgáfa Biblíunnar. Sala hennar hefur gengið vonum framar og aðspurður sagði Ástráður Sigur- steindórsson, starfsmaður H.Í.B. að búið væri að prenta 40.000 eintök Biblíunnar og Nýja testamentisins, þ.m.t. Gídeon Nýja testamenti. Því má bæta hér við að Biblían var gerð að bók janúarmánuðar hjá Bóka- klúbbi Almenna bókafélagsins og seldust þá strax upp 5.000 eintök og 2.000 voru pöntuð til viðbótar. INNLENDAR FRÉTTIR

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.