Afturelding - 01.01.1984, Side 26

Afturelding - 01.01.1984, Side 26
ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR Forseti Kenya á hvíta- sunnusamkomu Danicl Arap Moi, forseti Kcnya, heim- sótti nýverið samkomu hvítasunnu- manna í Nairobi, höfuðborg landsins. Mikill Ijöldi blaða- og sjónvarpsmanna var viðstaddur athöfnina. Fyrstu sex mánuði ársins 1983 tóku 85 manns nið- urdýfingarskírn hjá söfnuðinum sem stofnaður var af kanadískum hvítasunnu- trúboðum. Á sama tíma bættust við 125 nýir meðlimir. Hvcrn sunnudag sækja samkomur um 1000 manns. Nú eru uppi ráðagerðir um að reisa nýja kirkju sem rúmar3000 manns. KS 1283 Stærsta tjald í heimi! 18. febrúar síðastliðinn var vígt í Jóhannesarborg. S-Afríku, hcimsins stærsta tjald. Hér er hvorki um að ræða sirkus- né stórmarkaðstjald, heldur sam- komutjald sem rúma á um 34 000 manns. Maðurinn á bak við þessa tjaldherferð ertrúboðinn Richard Uonnke. I l'yrstu var hann „gerður út“ af þýskum hvítasunnu- mönnum en nú starfrækir hann sína eig- in trúboðsstöð í Suður-Afríku. Hann hyggur á tjaldsamkomur um S-Afríku þvera og cndilanga, og þaðan norður á bóginn. Aðrir heimshlutar koma líka vel til greina. Ellefu nefndir starfa af miklum krafti við undirbúning fyrstu herferðarinnar í Jóhannesarborg, eða nánar tiltekið, í ná- grenni blökkumannabyggðarinnar Sow- eto. I samstarfsliði Bonnkes eru bæði hvítir menn og svartir. KS 1283 Helgispjöll í Gislaved í Gislaved, Svíþjóð, hefur hópur fólks sem kallar sig djöfladýrkendur valdið miklum usla. Meðal annars máluðu þeir hakakross á kirkju staðarins, töluna 666 á kirkjuveggi, og veltu um graf- steinum. Nú hafa hvítasunnumenn í Gislaved snúist til sóknar og fengið til liðs við sig kristið æskufólk frá öðrum samfélögum. Fyrir tveim vikum síðan gengu þeir um götur bæjarins með skilti sem á stóð „Jes- ús lifir". Einnig var boðið upp á kaffi og meðlæti á einum stað þar í bæ og vitnað fyrir fólki. Árangur þessa varð sá að tiu komust til lifandi trúará Jesú Krist. KS284 Joni í Póllandi Joni Eareckson Tada, þekktur kristinn rithöfundur og trúboði, fór nýlega í viku heimsókn til Póllands. Hún talaði fyrir miklum fjölda fólks í Warszawa, Wro- claw og Katowice, um tilgang Guðs með þjáningu. Hún á þá von að samtök þau sem hún veitir forstöðu, Joni og vinir, verði einnig til hjálpar fötluðu fólki bak við járntjaldið og i þriðjaheiminum. KS1283 Joni Karecson 'l'ada Aðeins 500 hvítasunnumenn í Austurríki Austurríki er eitt þeirra landa í Evrópu þar sem tala hvítasunnumanna er lægst. Talið er að aðeins fimm hundruð af átta milljónum íbúa landsins séu hvítasunnu- menn, en einnig að nokkur hundruð manns frá hinum ýmsu samfélögum, fylgi náðargjafahreyfingunni að málum. Aust- urríki er umfram allt kaþólskt land og í heild eru mótmælendur ekki nema um 6% íbúa landsins. KSI283 10% aukning á einum degi Hvítasunnusöfnuðinum í Skárstad, rétt utan við Janköpping, óx heldur betur ásmegin nú fyrir skömmu — og það á ein- um degi. í einni samkomu tóku tuttugu og íjórir unglingar niðurdýfingarskím og þar eð söfnuðurinn taldi áður 250 með- limi, telst aukningin nærri 10%. KSI283 Nærri 9.000 nemendur í skól- um AOG í Bandaríkjunum í upphafi haustmisseris á síðasta ári voru skráðir 8934 nemendur i skólum Assemblies of God í Bandaríkjunum. Stærsti skólinn er Evangel College í Springficld með 1811 nemendur en stærsti Biblíuskólinn er Central Bible College í sömu borg með 908 nemendur. ☆ Þess má geta að það er einmitt við Central Bible College sem Hafliði Krist- insson, ungur Islendingur, stundar nú nám. Síðastliðið vor gerði hann sér lítið fyrir og varð efstur yfir allan skólann, en það skólaár voru nemendur einnig um 900. ☆ 6.000 manns frelsast í Malawi Undir lok síðasta árs voru haldnar stór- ar samkomur í Malawi, Afríku. Eftir tvær vikur höfðu 6.000 manns tekið afstöðu með Kristi. í mörgum þorpum tóku allir þorpsbúar á móti Kristi og árangur sam- komanna fór fram úr björtustu vonum þeirra er að þeim stóðu. KSI283 ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTlP

x

Afturelding

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.