Afturelding - 01.01.1984, Qupperneq 29

Afturelding - 01.01.1984, Qupperneq 29
0 „Afi minn,“ segir rithöfundur af gyðingaættum, „var maður með sérlega tilfinningaríkt og heitt hjarta, en hann var mjög bráður. Hann átti bróður, sem hann elskaði mikið. Dag nokkurn urðu þeir ósáttir og skildu reiðir. Þetta var á föstudegi. Um kvöldið fór amma að undirbúa allt undir hvíldardaginn. „Jósef komdu,“ sagði hún, „það er tími kominn til þess að kveikja á sabbatslampanum." En afi minn sagði ekki eitt ein- asta orð. Með angur og sorg málað í andlit sér, gekk hann þungum skrefum fram og aftur um gólfið. „Kæri Jósef,“ sagði kona hans aftur, „Drottinn er búinn að kveikja stjörnurnar, en sabbats- lampinn okkar logar ekki.“ Án þess að svara nokkru orði, tók afi minn staf sinn og flýtti sér út um dyrnar. Að fáeinum augna- blikum liðnum, vatt hann sér inn um dyrnar aftur og gleðigeislar stöfuðu frá augum hans. „Nú er ég búinn, kæra Re- bekka.“ Því næst bað hann bæn sína og kveikti svo á sabbatslamp- anum. Að þessu loknu sagði hann okkur frá þeirri misklíð, sem orðið hafði á milli þeirra bræðranna um morguninn, og bætti svo við: „Mér var ómögulegt að biðja né kveikja á lampanum mínum, fyrr en ég hafði sæzt við ísak bróður minn.“ „En hvernig gastu verið svona fljótur að ná til hans?“ spurði amma. „Jú“ svaraði hann. „ísak var jafn óróleg- ur og ég. Hann gat ekki byrjað helgina án þes fyrst að sættast við mig. Við mættumst þannig á göt- unni. Hann var á leiðinni til mín og ég var á leiðinni til hans. Og þannig féllum við hvor öðrum í arma, — og grétum." Vinur Aftureldingar sneri úr norsku. Afturelding 4. tbl. 1936, bls. 46 Les Biblíuna. Meðan Benjamín Franklín var í París, sem sendiherra Ameríku, var hann stöðugt hæddur af því að hann varði málstað Biblíunnar. Hann langaði þá til að komast að raun um, hvort þessir spottarar hefðu lesið Biblíuna. Þess vegna sagði hann einu menntafélagi frá því, að hann hefði fundið ævisögu- brot frá fornum tíma, sem honum fyndist svo merkilegt og vildi gjarn- an heyra álit félagins um það. Á ákveðnum tíma las svo Frank- lin fyrir þetta lærða fólk Rutarbók. Hinir menntuðu herrar gátu ekki til fulls lirósað fegurð liins upplesna, og einn eftir annan bað Franklin að láta prenta handritið. „Það er prentað," svaraði Franklín stuttlega, „það er þáttur úr Biblíunni." Afturelding3. tbl. 1937,bls.33 í jólablaði guðsafneitunarfélags- ins að nafni II Telefono, sem var gefið út á jóladag, árið 1908, í Mess- ína á Sisilíu, var ritað um hina heil- ögu fæðingu Jesú Krists á þessa leið: „Ó, þú litla bam, sem ert bæði máttugur Guð og maður. Vegna kærleika þíns, sem opinberaðist okkur á krossinum, heyr þú bæn okkar, og sendu okkur jarðskjálfta í jólagjöf." Þremur dögum eftir jól svaraði Drottinn þeim og borgin Messína varð gjöreyðilögð af jarðskjálfta og 200.000 manns biðu bana. Afturelding 2. tbl. 1938, bls. 24 Ef þú einn dag lætur vera að biðja, þá tekur Guð eftir því. — Og næsta dag finnur þú það sjálfur. Og þriðja daginn munu þeir, sem um- gangast þig, taka eftir því. Afturelding 3. tbl. 1939, bls. 36 Við eigum að mæla með Kristi við mennina, eins og Kristur mælir með okkur við Guð. Afturelding3. tbl. 1942, bls. 42

x

Afturelding

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.