Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 21

Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 21
ist ekki. Oft er því haldið fram að orsökin sé slæmt samband foreldranna, eða foreldra og barns. Stjórnsöm móðir, at- kvæðalítill faðir, ófullnægð kyn- hvöt á unga aldri, röng fræðsla um kynlífið, einangrun frá hinu kyninu — allt eru þetta þættir sem taldir eru til orsaka samkyn- hneigðar. Hér vil ég bera fram aðvörun. Táningur sem býr með öðru for- eldri sínu, þarf ekki að óttast það að verða samkynhneigður. Það er hugsanlegt að foreldrarn- ir séu fráskildir, eða móðirin ráðrík og faðirinn gunga, en það þýðir ekki að þú verðir samkyn- hneigð(ur). Ég hef talað við mörg hundruð samkynhneigðra og komist að þeirri niðurstöðu að margir eru orðnir þannig vegna þess að þeir hafa sökkt sér niður í klámrit fyrir samkyn- Imeigða og gert tilraunir, til þess að komast að því hvernig það sé. Sumir viðurkenna ALLT of seint: „Ég var bara forvitinn, en nú er égfastur. Ég get ekki hætt. Hugsaðu þér, fyrir aðeins tveim- ur árum vissi ég ekki einu sinni hvað orðið þýddi. Nú er ég einn af þeim.“ Samkynhneigð orsak- ast ekki af efnafræðilegu ójafn- vægi í kirtlum. En hún getur hins vegar stafað af andlegu ójafn- vægi. Það er fráleitt að kalla nokk- urn samkynhneigðan sem aðeins einu sinni hefur haft mök við manneskju af sama kyni. Oft er fólk hrætt við að verða samkyn- hneigt vegna eins óheppilegs at- viks. Samkynhneigðir reyna alltaf að láta líta út fyrir að þeir séu fleiri en þeir raunverulega eru. Fjöldi þeirra fer vaxandi, en þeir eru samt einungis lítill hópur í samanburði við allt mannkyn. Þeir, sem alfarið hafa gefið sig samkynhneigð á vald, halda því fram að við höfum öll snert af samkynhneigð og getum orðið meira samkynhneigð en gagn- kynhneigð. Þetta er fjarstæða. Mörgum ungmennum, sem hafa haft reynslu af samkynhneigð, hefur tekist að gleyma henni og eru hamingjusamlega gift og eðlileg. Þau eru heppin. Margir vinna aldrei bug á þessu. Þeir sitja fastir. Það er hægt að bera sérstakar tilfinningar til einhvers, eða eiga kærleiksríkt og virðingarfullt samband við einhvern af sama kyni, án þess að það þurfi að bera vott um samkynhneigð. Tveir drengir eða tvær stúlkur geta verið sérstaklega góðir vin- ir, eins og Davíð og Jónatan í Biblíunni. En það er ekki kyn- ferðislegt samband. Óttastu aldrei að góður vinskapur muni afvegaleiðast eða að þú hafir duldar tilhneigingar. Þú verður að óska eftir breytingu Samkynhneigð er ekki sjúk- dómur. Samkynhneigðir geta breyst, og það gerist. Samkyn- hneigð, hversu sterk sem til- hneigingin er, þarf ekki að vera varanleg. Fólk undir 25 ára aldri, sem hefur ekki fastbundist neinni ákveðinni manneskju, hefur mesta möguleika á að losna. Fáeinir vaxa frá þessu, en flestir þeir sem orðnir eru fastir í samkynhneigðinni, eiga litla möguleika á að breytast, nema þeir verði algjörlega miður sín yfir ástandinu og óski eftir breyt- ingu. Rannsókn nokkursýndi að af 300 samkynhneigðum létu aðeins 3% í ljós ósk um breyt- ingu. Samkynhneigðir gorta gjarnan af lífsháttum sínum og vilja ekki hjálp. Hjálp er einung- is möguleg ef hinn samkyn- hneigði sjálfur vill víkja frá villu síns vegar. Nú á dögum ríkja mörg mismunandi viðhorf gagnvart því hvort hægt sé að veita samkynhneigðum hjálp, en ég get sýnt fram á eftir alla þá vitnisburði sem ég hef heyrt, að menn eiga möguleika á að breyt- ast. Þetta er ekki vonlaust ástand. Guð hefur mátt til að breyta jafnvel mannlegu eðli. Ég hef aldrei hitt verulega hamingjusaman samkynhneigð- an mann. Þeir eru flestir daprir, einmana, skömmustulegir, fullir sektarkenndar og þjáðir. Ein- manaleiki lýsir ástandi þeirra best. Stærstu sanrtök samkyn- hneigðra í Ameríku, The Matachine Society, gefur eftir- farandi aðvörun: „Við erum ekki að sækjast eftir nýjum fé- lögum. Þvert á móti, með tilliti til eigin reynslu okkar — niður- lægingar, skammar og sektar- kenndar, sem svo margir okkar hafa þjáðst af — viljum við ákveðið ráðleggja þeim, sem ekki hafa enn gerst virkir homm- ar eða lesbíur, en velkjast í vafa, að velja hina leiðina ef þeir geta.“ Líf samkynhneigðra er fullt af sjálfsvorkunn, óuppfylltum ósk- um, sálarflækjum, vanmeta- kennd og örvæntingu. Ég hef heyrt einstaka homma gorta af því að þeir séu frjálsir og að þeir séu ánægðir með það líf sem þeir lifa, en þeir ljúga. Þeir hafa þaggað niður í samvisku sinni, en það koma alltaf tímabil þegar þeir eru þunglyndir og sorg- mæddir. Ekki sérstök fordæming Það er hreint og beint ekki satt að Guð taki samkynhneigða Framhald á bls.46.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.