Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 9

Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 9
0 jólafundur föstudaginn 18. des- ember, klukkan hálfníu í Geröu- bergi. Þá hvetjum viö konur til aö líta upp úr jólabakstrinum og hugsa um hvaö jólin eru í raun og veru. Erlendis er víöa verið meö biblíulestra um miðjan dag, þar sem konum er gefið tækifæri á að fræðast, sérstaklega þeim sem hafa tekið trú í gegnum „AgloW', því margar hafa kom- ist til trúar vegna þessa starfs. Við leggjum ríka áherslu á það að allar konur þurfi að finna sér söfnuð til að eiga andlegt samfélag. „Aglow" kemur aldrei í staðinn fyrir kirkju eða staðbundinn söfnuð. Hvernig barst „Aglow“ til íslands? „Aglow" konur hafa þá hug- sjón að samtökin breiðist út um allan heim og höfðu þær lengi reynt að ná sambandi við ísland án árangurs. Ég var á ferð á Sri Lanka í ágúst 1986, en þá var þar yfirstandandi „Aglow" mót. Ég hitti konu, sem var ræðumaður á, mótinu og hófust bréfaskriftir okkar á milli. Égbað mikið fyrjr þessu í heilt ár og síðan boðaði ég til kynningarfundar í vor. Ég hringdi í konur forystumanna í kristnum samfélögum og bað þær að auglýsa fund. Forseti samtakanna, Jane Hansen og Gloria Bistline, varaforseti komu við hér á landi er þær voru á leið til Evrópu og sátu fund með okkur í heimahúsi. % Fyrsti opinberi fundurinn var haldinn 26. september á Holiday Inn hótelinu í Reykjavík. Að- sóknin var vonum framar, því fundinn sóttu um 130 konur. Éar fór fram kynning á „Aglow" samtökunum og gestur okkar var Helga Zidermaienes frá Lettlandi, sem gaf vitnisburð. Hvað gera „Aglow'* konur? Það er misjafnt eftir þjóðum hvað gert er. Nú er verið að færa út kvíarnar með því að ná til kvenafl sem aldrei hafa heyrt um Kn|t. í mörgum löndum er farið út á' göturnar og reynt að boöa fagnaðarerindið t.d. til gleði- kvenna, einnig er fariö í l'angels- in og vitnað. Alltáf er haldinn mánaðarleg- ur fundur á góðu veitingahúsi. Konurnar njóta þess að líta upp úr hversdagsleikanum og koma inn á fallegan stað og lofa Guð saman. Alltaf er einhver sem gefur vitnisburð. Hér á landi erum við nýlega byrjaöar, en við finnum einingu og kærleika í stjórninni. Við höf- um það sem markmið fyrst um sinn að sjá þennan mánaðarlega fund festast í sessi. Leiga á sal og auglýsingar eru fjármagnaðar með frjálsum framlögum og á fundum er gert ráð fyrir að konur kaupi sér kaffi. Fundirnir eru yfirleitt síð- asta laugardag hvers mánaðar. Nú í desember verður þó undan- tekning frá reglunni, þá verður I [ver er tilgangur „Aglow“? Konur eiga oft auðveldara með að tjá tilfinningar sínar við aörar konur heldur en við karl- Bmenn. „Aglow" samtökin eru vettvangur fyrir konur til að kpma santan og njóta félags- skaparannarra kvenna. t>að sem „Aglow" er þekktast fyrir er kærleiksríkt andrúms- loft. Margar konur hafa vitnað um pað að þær hafa komið og átt í erfiðleikum eða í sorg. Þær hafa oft fengið lausn, bara við að koma og vera meðal kvenna sem jgeíska Drottin. Margar konur hal'a frelsast. skírst í Heilögum anda og læknast. Mér finnst mikilvægast að konum líði vel þegar þær koma. Þetta er fyrir konur á öllum aldri. Konur, sem hafa öðlast „Aglow" hugsjón- ina, koma með vinkonur sínar og mæður með sér. „Aglow“ er 20 ára i „Aglow" hélt upp á 20 ára af- mæli sitt í byrjun nóvember í New Orleans. Þar voru saman

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.