Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 3

Afturelding - 01.12.1987, Blaðsíða 3
um, sem hann hefur velþóknun á.“ Jólin nálgast nú, friðarhátíðin. Þegar styrjaldir hafa geisað hefur iðulega verið samið um vopna- hlé yfir þessa miklu friðarhátíð. Hnginn vill upplifa styrjöld, og menn fyllast ótta og skelfingu við slíka tilhugsun. Það er ekki nema eðlilegt þegar litið er til alira þeirra gereyðingarvopna sem til eru nú á dögum og víg- búnaðarkapphlaupsins sem á sér stað. Margir sjá þessa ógnun og stofna friðarhreyfingar, sem láta nokkuð að sér kveða eða bindast samtökum eins og t.d. samtök- um lækna gegn kjarnorkuvá. Boðskapur englanna var: „Friðurá jörðu". Mannkynssag- an greinir frá mörgum styrjöld- um og hernaðarátökum. Svo er enn á okkar tímum. Hvað er átt við með orðum englanna? kunna menn að spyrja. Er átt við alheimsfrið? Friðsælt umhverfi? Eða frið þess manns sem lætur sig umhverfið engu skipta? Er þetta eitthvað sem friðarhreyf- ■ngar eða samtök geta áorkað eða komið til leiðar? Til að fá svör við þessum spurningum og öðrum ámóta, þurfum við að komast að raun um hvað átt er við með notkun orðsins „friður“ í Biblíunni. Það finnst níutíu og einu sinni í Nýja testamentinu. Gríska orðið er >,EIRENE“. í Nýja testamentinu virðist þetta orð hafa nokkuð fastmótaða merkingu. A tímum Hómers merkti orð- 'ð andstöðu stríðs, eða tímabil eftir stríð, tímabil velmegunar, >aga og reglu. Á tímum Platós §at það líka þýtt friðsamleg licgðun manna eða stjórnun. I þýðingu Gamla testamentis- ms á grísku, Septuagintu, sem gerð var árið 285 f.Kr. er „EIRENE" nær undantekninga- laust notað sem þýðing á hebreska orðinu „SALOM“, sem kernur fyrir meira en tvö- hundruð og fimmtíu sinnum í Gamla testamentinu. „EIR- ENE“ er þó stundum notað þar til að þýða hugtök eins og „hvíld“ og „öryggi". „SALOM“ merkir ekki aðeins andstöðu stríðs, heldur andstöðu hvaða röskunar sem kann að verða á velferð samfélagsins. Þar af leið- andi merkir „EIRENE“ í Septuagintu líka almenna vel- ferð þar sem upphafið og gef- andinn ereinn og hinn sami þ.e. Guð. „Friður" er hápunktur Bless- unarorðanna. Friður — „SALOM“ — ergjöf Guðs. Það kemur víða fram í Biblíunni að Guð gefur friðinn. Alls staðar þar sem við lesum um friðinn sem gjöf Guðs, sjáum við að frið- ur felur í sér nærveru Guðs. En Jeremía segir einnig að Guð geti tekið frið sinn aftur. Sú hugmynd sem Biblían gef- ur okkur um frið er fyrst og fremst sú að maðurinn verði allekinn af friði Guðs. Friðurinn grundvallast á endurlausnar- verki Guðs, opinberast í nýrri sköpun hans og mun fullkomn- ast við endurkomu Jesú Krists. Friðurinn kemur frá Jesú Kristi. í Jóhannesarguðspjalli er því haldið fram að þessi friður sé ólíkur þeim friði sem heimurinn hefur upp á að bjóða, þar sem hann er gefinn af Kristi sjálfum. Kristur er meðalgöngumaður friðarins, hann réttlætir okkur frammi fyrir Guði, svo við höf- um frið við Guð, og getum með djörfung komið til hans. í trú- boðsskipun sinni sagði Kristur við lærisveinana að þann frið skyldu þeirboða. Friður Krists er eitthvað sem ríkir hið innra, ríkir í hjörtum þeirra sem við honum taka. Þessi friður, sem gefinn er af Guði, er meðtekinn og varð- veittur fyrir samfélagið við Jesú Krist. Allur framgangur hins trúaða í helgun, varðveislu og fullkomnun þjónar þeiin tilgangi að auka hlutdeild mannsins í friði Guðs. Þessi friður verður augljós í ávexti andans sem er: Kærleiki, gleði, friður, lang- lyndi, gæska, góðvild, trú- mennska, hógværð og bindindi. Því ætti að vera ljóst, að þegar talað er um frið, þá er átt við innra ástand mannsins, sem get- ur verið allt annað en ástand umhverfisins. Það er ástand þess manns, sem Guð hefur velþókn- un á, sem breytir eins og Guði er þóknanlegt. Það er sá sem tekið hefur við Friðarhöfðingjanum, Jesú Kristi, og trúir á hann. Hann boðaði frið, og hvatti læri- sveina sína til að gjöra slíkt hið sama. Það er því þeirra, sem upplifað hafa þennan frið, að boða hann. Það er sá friður sem engin friðarhreyfing getur veitt. Jesús sagði: „Sælir eru friðflytj- endur“. Sá sem er altekinn af nærveru og friði Guðs getur því flutt frið. Friður Guðs er ekki eitthvað sem kallar á einangrun frá um- hverfinu eins og Stóumenn kenndu, né heldur llótti inn í andatrú, dulspeki eða dulræna íhugun. Allt slíkt er Guði and- styggilegt. Friður Guðs er fögn- uður og fullvissa þess manns sem hefur tekið á móti frelsara sínum, Jesú Kristi. Öllum má því vera ljóst að friður Guðs er fyrir alla, því allir eru jafnir fyrir Guði. Friðurinn er því fyrir alla sem við honum vilja taka. Megi Friðarins Guð gefa ykkur öllunt lesendur góðir friðarins jól.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.