Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1938, Page 32
26
uðust þau 8 börn, og af þeim lifa: Lára, gift Ás-
geir Einarssyni, dýral i-kni, Halldór, forstjóri
efnalaugar hér í bæ, Lárus, rithöfundur, Gísli,
forstöðumaður Elliheimilisins í Rvík, Friðrik,
ókvæntur heima hjá föður sínum. — Guðrívn
ValgerchCr, sú er drukknaði með móður sinni,
var gift Einari Kristjánssyni, forstjóra, en hin
Sigrún Kirstín, var ógift.
Frú Guðrúnu voru falin> margvísleg trúnaðar-
störf. Hún var fulltrúi kvenna á Alþingi og beitti
sér þar ötullega fyrir kristindóms- og mannúðar-
málum. Sömuleiðis átti hún sæti í fátækranefnd
Reykjavíkur og vann þar mikið og þarft verk.
En kærast af öllu var henni málefni Drottins.
Og hún innti mikið starf af hendi því til efling-
ar. Skáldsögur hennar, sem allar eru orðnar
þjóðkunnar, eru gagnsýrðar af anda kristin-
dómsins. Hjarta hennar brann af áhuga fyrir
öllu kristilegu starfi innan kirkjunnar. Þegar
hún var kölluð heim,, þá var hún bæði forstöðu-
kona K. F. U. K. og Kristniboðsfélags kvenna.
En nú er merkið fallið, sem hún hélt svo hátt,
og kirkja landsins og þjóðin syrgir.
Fyrir K. B. F. þýddi hún hina ágætu bók:
Móðir og barn, bók, sem ætti að vera í hönd-
um hverrar íslenzkrar móður.
Vér þökkum Guði góða gjöf. Vér hefðum vilj-
að mega njóta hennar lengur. En — verði Guðs
vilji. — Blessuð sé minning hennar.