Árbók (Kristilegt bókmenntafélag) - 01.01.1938, Blaðsíða 62
56
\
ið að Hra’ungeröi í Flóa dagana 18.—20. júní.
Var jafntframt birt dagskrá mótsins og tilmœli
um, að þátttakendur gæfu sig fram sem fyrst.
Gáfu 21 sig fram fyrstu 10 dagana. Streymdu
tilkynningar inn eftir það og' allt til maíloka,
jafnt og þett.
U ndirbúningur.
Það gera sér ekki allir ljóst hvílíkum feyki-
legum erfiðleikum það er háð, að halda mót sem
þetta, uppi í sveit þar sem lítil eru húsakynni.
I nálægt þrjá daga á að sjá 260 rnanns fyrir
svefnstað, mat og matarskája, svo hægt sé að
dveljast hvernig sem viðrar. Má engu gleyma
í útbúnaði og því sem að flutningi lýtur. Og þar
að auki þarf að skipa dagskrá svo, að vel fari.
Þá þarf og ýmis,legt: að vinna á staönum, bæði
til að prýða hann og auka þægindi.
Þau voru mörg aukastörfin sem unnin voru
til að undirbúa Hraungerðismótið. Þannig varð
t. d. að æfa heilan hóp af söngfólki til að syngja
við messur og samkomur. Var haft, sérstakt »rit-
ual« við messurnar, sniðið eftir messu almennr-
ar kirkju, en all aukið frá messu þjóðkirkjunn-
ar hér. Þurfti sú messa að lærast auk fjölda
söngva.
Þá \’ar og unnið að því að útbúa skraut fyrir
staðinn. Mörg kvöld var setið við það að sauma
fánalengjur,, er skreyta skyldi með tjaldborg og