Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 3

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 3
Leiklist er sköpun. Sköpunarstarf er jafníramt þroskandi starf. Að þroskast er menntun. SKÓLALEIKURINN V 1 Athuganir eins úfhöpnum Leikstarfsemi hófst að nýju hér í skóla síðastliðinn vetur og hefur einnig verið í fullu fjöri í vetur. Leikgyðjan, fylgja menn- ingar og sannrar menntunar, hefur enn einu sinni vitrazt hinu norðlenzka mennta- setri Það er fagnaðarefni og þakkarvert að- standendum öllum. Starfið krefst sinna fórna. Það er tíma- frekt að setja leikrit á svið, og í skólaleik verður það á kostnað lestíma leikenda og annarra, sem að leiknum standa. En áreið- anlega telur enginn slíkt eftir sér. Ánægja og ávöxtur starfsins bæta öll göt. Að hlýða köllun félagslífsins er að mæta kröfum tíð- arandans um samtök og samvinnu. Hinn helgi félagsandi er lífsglóð slíkrar starfsemi í skóla. Byrjunarörðugleikar við íeikstarf eru margir og vandsigraðir. Margs þarf að gæta, ekki sízt. ef leikandinn er frumferill á fjöl- unum. Starf leiðbeinandáns er því marg- þætt og Vandasamt. í ár tók frú Björg Bald- vinsdóttir að sér þetta erilsama starf. Skól- inn má sannarlega vera þakklátur fyrir hennar hlut, og eru henni hér með fluttar beztu óskir. Enarus Montanus, skólaleikur ársins, er gamanleikur eftir hinn danska meistara, Ludvig Holberg. Lárus Sigurbjörnsson hef- ur þýtt leikinn og staðfært hann upp á okk- ar hérlenda Álftanes. Leikurinn deilir á hinn lærða mann, svo að ekki er langt að leita fórnarlambsins. Vafalaust hafa líka einhverjir hugsað sem svo, að ekki veitti Menntaskólaiium af ráðningunni. En slepp- um því. Frumsýning leiksins var 1. marz. Tíð- indamaður Munins skipaði virðingarsess í blaðamannastúku leikhússins það kvöld. og segir hann svo frá: Frásögnina hefur, þegar hringt er í síðasta sinn (fjórðung yfir, svo sem vera ber). Áhorfendur kyrrast. Hörður Kristinsson

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.