Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 14

Muninn - 01.04.1957, Blaðsíða 14
14 MUNINN Bersi kunni ekki að skammast sín: Harðorðir eru höldar þeir að halda að okkur saki. Við hlæjum að þeirra ljóta leir og lifum á neftóbaki. Ari er vanari að hlæja, en láta hlæja að sér: Elsku Bersi hafðu ei hátt og hlæðu ei fram úr máta, því loksins þegar líður nátt lengi skaltu gráta. Auðólfur gleymdi „gásunum" stundar- korn og snerist að Halldóri: Eg á nóg af ljóða-leir langtum betur fenginn, en þú kreistir úr þér meir, er því sofa genginn. Jón hafði dottað, en vaknaði nú við. Með fyrsta geispinu ruku vísur þessar: Tíminn líður áfram enn, ykkur þrýtur rökin, ekki þreytast okkar menn eða linast tökin. Okkar stökur enn á ný ykkur sáran þvinga. Við munum kveða kútinn í klaufska Sunnlendinga. Tóku sunnanmenn nú síðustu fjörkipp- ina: Hann, sem áður öskraði sem naut og óðinn lamdi saman þrútinn, blár, Halldór. sem forðum hróðurörvum skaut, hnipir nú þögull líkt og gálganár. Þeim er farið að förlast norðanmönnum og íjörið í kveðskapnum nokkuð tekið að dofna. suttungafullið freyðir það lítt á könnum fara þeir ekki að liafa vit á að sofna? Og það sá á Halldóri, að honúm var svefnvant: Að vera að senda vísnakver vinum mínum sunnan, það er eins og ætli sér eiðinn halda nunnan. Buðu norðanmenn nú jafntefli með þess- ari vísu Gísla: Dauft er blandað dverga-full, dvínar andagift og snilli. Miður vandað sónar-sull sendist landsfjórðunga milli. Gengu nú hagyrðingar til náða, en sömdu þó áður um, að fyrir sunnan skyldu sunnan- rnenn hafa haft betur, en fyrir norðan norð- anrnenn. (Vísuröð hafði ruglazt, svo að ritstjóri lausavísnaþáttarins raðaði niður vísunum eins og honum þótti bezt henta, en lét minnið þó oftast ráða. - Leiðréttingar við Carminu (Framhald af bls. 9). horfir i spegilinn hlæjandi, hoppar og telur a fingrum sér: Einn, tveir, þrír, bráði/m bætist við nýr. Hjá Birni Kéturssyni: Auðs pótt njóti ekki hér og íí móti gangi, sú er bótin, að ég er oft með snót í fangi. Hjá Agústi Berg: Fellur ofan fjúk og snær, etc. Þessar villur cru allir, sem Carmínu ciga, beðnir að taka til' greina. Arngrimur Isberg. HéÖinn Jónsson. Jóhann Möller.

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.