Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.1957, Side 27

Muninn - 01.04.1957, Side 27
MUNINN 27 neínd einkunnir, og kannast allir ofboð vel við þetta. Nú skal ég' taka dæmi um tvo sakborn- inga (nemendur). Fyrst er það sá, sem á hverjum degi kemur hillkomlega lesinn í skólann. Hann situr í dómssal með öðrum sakborningum, sem allir eru sakaðir um það sama. Hann hlustar á yfirheyrslurnar með eftirtekt. Þetta er áhugasamur nem- andi; stam og þagnir sakborninganna skipt- ast á við bókastagl dómstjóranna. Lítið sem ekkert nýtt kemur fram við þessar yfir- lteyrslur. Þessi nemandi sér áreiðanlega eftir þeim tíma, sem hann eyðir þarna til einskis. En Itvað á hann að gera? Ef hann tekur upp háttu liins nemandans, sem var að grúska í áhugamálum sínum í þann tíma, sem hann átti að vera að lesa, þá verð- ur sagan svona: Hann sezt í dómsalinn með taugatruflun og móral, veit varla, hvernig hann á að hafa fæturna undir borðinu. — Dómstjórinn, sem er svo einkar laginn að sjá þá taugaspenntu, gjóar yfir salinn, og kemur auðvitað auga á þann móralska og' kallar hann upp. Flest ykkar þekkja fram- haldið. Það er langt frá því að vera skemmti- legt og þar að auki nemandanum oftast að engu gagni. En refsilögin sitja fyrir. \rið þessa meðferð fær margur kennara- hræðslu, sem lýsir sér á margan hátt. Satt er það, að kennarahræðslan knýr margan til lesturs. Þá er lesið með jtað fvrir augum að geta sýknað sig af ákærum dóm- stjórans, en ekki til þess að ciðlast innsýn í efnið til að geta svo dregið skynsamlegar ályktanir. Þ. e. a. s., þá er farið að hafa fyrir mottó: „Non vitae discimus sed scholae", og er það algjör andstæða við það, sem stendur í latínunni og hefur þótt sæmilega góð speki hingað til. Með þessu er tilætluðu marki ekki náð; sé svo, þá er það undantekning, sem sannar regluna. Með þeim heimalestri, sem nauðsynlegur er venjulegum nemanda í þessu fyrirkomu- lagi, eru tómstundir þær, sem hann getur helgað hugðarefnum sínurn, mjög af skorn- um skammti. Margur nemandi \ iil mennta sig í skólanum en hefur jafnframt áhuga á einhverju utan námsins, sem þarfnast tíma. Þetta tvennt rekst á, og útkoman verður oft bágborin. Þeir, sem hvorugt vilja vanrækja, lesa fram eftir nóttu, koma illa sofnir í skól- ann eða skrópa í skólanum. Þar af leiðir, að þeir verða illa séðir. Skólarnir launa á eng- an hátt þennan áhuga, síður en svo. En nú kann einhver að segja: „Þetta eru mennta- skcjlar en ekki listaskólar, bókmennta, stjórnmála eða þess háttar." Þá vil ég segja: Það er heilög skylda allra æðri skcfla á ís- landi að sporna \ ið allri sérhæfingu á þessu sligi, en leggja ríka áherzlu á hvað eina, er til mennta gæti talizt. Enn þá eitt, sem styður dauðadcmi yfir- heyrslu-fyrirkomulagsins, er, að í dag er svo margt fleira, sem grípur nemandann en áður fyrr. Það má vel vera, að Jiessi þáttur kennslunnar lia.fi verið boðlegur fyrir mörg- um árum, þegar t. d. dansleikir heyrðu til stórviðburðum, en Jtetta er ekki boðlegt í dag. Einni athugasemd gæti hér verið varp- að fram. Yæri ekki óráðlegt að láta nem- endur hafa meiri tíma til umráða fyrir sig. Eyddu Jreir ekki meiri peningum, skemmtu sér meira en góðu hófi gegndi o. s. Ir\. Nemendur, sem eru á menntabraut, ciga og verða að vera það þroskaðir, að geta stjórnað sér sjálfir. Það er Jjví nauðsynlegt að veita þeim tækifæri til að sýna þann aga,. sent þeir geta beitt sig. Nemendur, sem allt- af láta stjórnast af öðruin, verða undan tekningarlaust ósjálfstæðir, og ekki er hægt að vita neitt um Jiað, hvort Jieir, ef á þarf að halda, geta tekið sjálfstæða afstöðu gegn vandamálunum, stjórnað sér og öðrum. Það er hverjum manni nauðsynlegt, að Jrekkja sjálfan sig. — Það gera jreir ekki, sem láta stjórnast af öðrum. Aukinn frítími ætti að

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.