Heimilisblaðið - 01.01.1928, Page 27
HEIMILISBLAÐIÐ
sínum. Iiún fékk það með einum sendimanni hers-
höfðingjans; var hann að gjöra síðustu tilraunina
til að fá hina uppreistargjörnu Gyðinga til að leggja
niður vopnin; var nú verið að hefja nýja samninga
við yfirvöldin í Jórsölum um það mál. En þeir vís-
uðu kostaboðum hans frá sér háðulega. Sendimaður
hlaut að hverfa til baka með móðgandi svar, og hafði
að auki með sér bréf frá Kládíu til föður hennar.
Þakkaði hún honum hjartanlega fyrir það, að hann
hefði samþykt allar ráðagerðir Amazía. Rúfus
gladdist allshugar af framtíðarhorfum dóttur sinn-
ar og ekki sízt af því, að í ráði væri áð þau færu
sem fyrst úr Jórsölum. Hann sagði að Vespasían
mundi nú innan skamms setjast um Jórsali, ef Gyð-
ingar vildu eigi undan láta; en hann þekti dramb og
mótþróa þeirra of vel til þess, að hann hefði neina
von í þá átt. — Það hafði því bakað honum þunga
áhyggju, að dóttir hans dveldi langvistum í Jórsöl-
um. Þess vegna kom honum svo vel, er Amazía
beiddist hennar til handa syni sínum. Hann þekti og
virti Amazía og þó að hann hefði heldur viljað, að
hún hefði gengið að eiga Rómverja, þá vildi hann
þó eigi vísa frá sér svo heiðarlegu gjaforði, þar sem
það var jafnframt örugg vernd fyrir hana á þessum
óaldartímum.
Eins og fyr er sagt, þá var Rúfus ekki trúhneigð-
ur maður; hann var á því máli, að ekki væri meira
heimtandi af neinum manni en góð, siðferðileg
breytni, og þar sem hann vissi, að bæði Amazía og
sonur hans höfðu skarað fram úr öðrum að heiðar-
legum lifnaði, þá heimtaði hann ekki meira. En Mar-
cellusi lét sér það ekki lynda, og þegar hann heyrði
sagt frá gjaforði systur sinnar, gladdist hann heils
hugar og mintist guðsóttans, sem ríkt hafði á heim-
ili Amazía, er hann kom þangað, þegar hann dvaldi
í Jórsölum.
Ef hann hefði vitað, að þau væru kristin, þá
hefði fögnuður hans verið fullkominn. En samt
gladdi það hann einlæglega, að elskuð systir hans
fékk upptöku í ráðvanda og guðhrædda ætt; með
því væri hún varðveitt frá sérhverri tilhneigingu til
að hverfa til heiðninnar aftur. Hann gekk því með
gleði að uppástungu föður síns, að þeir leituðu leyf-
is hjá hershöfðingja sínum til þess að fara snöggv-
ast til Joppe og hitta þar Amazía og fjölskyldu hans
og halda þar brúðkaup Kládíu, í stað þess að halda
það í Jórsölum.
25
kyrja fossar kraftabrag
í klettasölum háum.
Unað veitir augum mín
og. æðri strengi hræra
fjallasala fegurð þín,
fósturjörðin kæra.
Mörg eru líka blásin börð
og burtu fokinn gróður;
hafa menn og hretin hörð
höggvið skarð í rjóður.
Innra glóöir, efra er
íssitis kalda breiða,
blómgrund fríð og blásið sker
og blásals dýrðin heiða.
M. Ií. Ernar Slgurfinnsson.
Heimilisráð.
/Iú hreinsa kraga. Ef iita heíir sezt
á kraga á frökkum eða jökkum, þá
má hreinsa þá dálítið með því að
skafa þá lítið eitt með Marseillesápu,
hræra hana saman við salmíakspíritus
þangað til orðið aö graut, er síðan
er borinn á kraga, Pegar þetta er
búið að sitja á um stund, þá eru
kragarnir þvegnir vandlega í hreinu
vatni.
Að stöðva nasablóð. i’eir sem eiga
vanda íyrir blóðnasir, ættu að hafa
á sér stykki af »tyggi-gummí«. Jaín-
skjótt sem þeir verða varir við blóð,
fara þeir að tyggja gúmmí, og mun
það oftast duga.
Menn magaveikir, sem- hafa t. d.
veika þarma, þeir verða að tyggja
matinn vel, til þess að hann verði
sem auðmestastur. Það ef eitthvert
bezta skilyrðið. Peir sem ekki hafa