Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 2
96 HEIMILTRRTAT'T'"
Framhlutinn af herskipinu „Puglia" sem stendur 'í gardi a’Annunzio’s.
»Ég er fæddur árið 1864, um borð í skonn-
ort-barkskipinu Irene, úti á rúmsjó, á Adr-
iahafi.« En talið er, að hann hafi þar ekki
verið nákvæmur í frásögninni.
Faðir hans var um tíma borgarstjóri í
fæðingarbæ hans, og um tíma var hann
líka bæjarfulltrúi í öðrum nærliggjandi
bæ, Francavilla-al-mare. Hann var hinn
fyrsti, er viðurkendi framtíð sonar síns
sem skálds. Hann setti hann til menta, og
hann greiddi kostnaðinn af því að prenta
fyrsta ljóð sonar síns og útbýta því ókeyp-
is. Það var óður til Umberto konungs, ár-
ið 1878. Árið eftir kostaði hann líka út-
gáfu fyrstu bókar hans, ljóðasafnsins
Primo vere (»Ungt vor«). Móðirin fylgd-
ist með framför barnsins síns, og var
hreykin af honum, en aldrei féll henni
hrósyrði af munni gagnvart honum. Lík-
lega hefir hún aldrei lesið bækur hans,
eða að minsta kosti ekki skilið þær. Þrjár
systur og einn bróður átti Gabriele. Anna
lék á slaghörpu og söng. Hin fagra Elvira,
sem líktist Gabriele, giftist lyfsala; og
Ernesta með »uxa-augun« giftist verk-
fræðing. Bróðirinn, Antonio, varð hljóm-
iistarmaður og fór til Suður-Ameríku.
Gabriele var góður drengur, þótt ekki
væri hann altaf prúður, en vel gáfaður.
Þegar hann var í skóla, uppgötvaði hann
þann hæfileika hjá sér — meðal margra
annara — að hann gat espað félaga sina
til óhlýðni, og fylgdu þeir honum í blindnn
Árið 1875 skrifar hinn bráðþroska ung1-
ingur föður sínum á þessa leið: »Ef ítal,a
fær nokkurntíma ástæðu til að vera hreyk-
in af mér, þá vil ég að heiðurinn verð'
þinn en ekki minn.«
Gagnstætt mörgum öðrum fræguni
mönnum var d’Annunzio svo lánsam-
ur, að hann fann verksvið sitt næstum of
auðveldlega og komst strax á rétta hyllu.
Hann var óvenju laglegur og ávann sei
fljótlega samhug allra þeirra, er hann uni
gekst. 1 Róm var hann strax tekinn í fe'
lag ungra bókmentamanna, sem fylkti se'-
um blaðið Capitan Fracassa.
Engum hafði dottið í hug, að skáld, seni
gersamlega hafði hrifið hugi allra jafn-