Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 26

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 26
120 HEIMILISBLAÐIÐ sem læknismeðal, þótt þeir hafi áður verið vantrúaðir á það. Heilum degi varði fundurinn til þess að ræða um geymslu ávaxta, niðursuðu og þurkun. Komu þar sérfræðingar fram og sýndu hinar ýmsu aðferðir og umbætur síðari tíma. Þeir létu sér ekki nægja orðin tóm, heldur höfðu þeir sýningu á því„ hvernig búin eru til ógerjuð ávaxtavín. Að- gangur var ókeypis, og kom þar margt manna til þess að sjá og sannfærast um, að slík vín gætu verið engu síður bragðgóð en hin gerjuðu. Þá kom og til umræðu, hvaða aðferðir væru fljótvirkastar til þess að kenna mönnum rétta notkun ávaxta, og hvað nú þegar hefði verið gert á því sviði. Töldu þeir, að fræðsla í skólum myndi einna fljót- virkust. Engum efa er bundið, að fundur þessi muni hafa mikla þýðingu í fram- tíðinni, bæði fyrir framleiðendur og not- endur ávaxta, og óbeinlínis fyrir bindind- isstarfsemi meðal þjóðanna. $bgpjá. Locaiidi sías gýs úr jiirðn og' gerir nótt að dogi. Undanfarið hefir athygli manna, víðsveg- ar um heim beinst að lítilli eyju í Siebenbiirgen 1 Rúmeníu,Mediasch að nafni. Fyrir nokkrum árum tóku menn eftir, að gas streymdi úr jörð- inni rétt við borgjna. Tók þá amerískt félag sér fyrir hendur að virkja gasið, og jók það mikið, með þvi að bora niður 1 jörðina og leiða það upp á yfirborðið í pipum. I mörg ár streymdi gasið þannig upp um þessar pipur, og var þvi safnað í geysistóra geyma og selt til notkunar i Mediasch og nærliggjandi þorpum. En um miðj- an júlí s. 1. vildi til neðanjarðarsprenging, sem splundraði einni leiðslunni, svo gasið streymdi frjálst út, og komst eldur i það. Síðan hefir dag og nótt blossað þarna 200 metra hár eld- strókur, og hafa allar tilraunir til að slökkva eldinn reynst árangurslausar. Með hverjum degi verður loginn tærari, og bendir það á, að gasið komi úr feyki mikilli dýpt. I 500 metra fjar- lægð er hitinn af loganum 60 gráður. Tveir amerískir blaðamenn, sem ætluðu að taka ljós- myndir af þessu náttúru-undri og höfðu nálgast það svo, að þeir voru aðeins i 200 metra fjar_ lægð, þoldu ekki hitann og féllu i yfirlið: var með naumindum hægt að bjarga þeim. Sagt er að ein miljón kábikmetrar streymi daglega ur holunni (hér í Reykjavík kostar hver kúbikm. kr. 0,35). Alíta menn að gaslindin eyðileggist, vegna þessai'a óhappa, að hún »brenni út«. íbu- ar Medisch eru um 15. þús., en á einni viku komu yfir 7000 aðkomumenn, til að sjá »undrið«. Hefir þetta orðið vatn á myllu gistihúsanna þar, enda hafa þau notfært sér það. Eitt þeirra, sem er í fjögra km. fjarlægð frá eldsúlunm, breytti um nafn og kallast nú: Gistihúsið »Hinr. himneski eldur«, og það auglýsir, að í gisti- húsgarðinum geti menn setið alla nóttina við spilamensku — við náttúrlega birtu. — — Gimsteiuar búnir til. Fyrir nokkru héldu ame- rískir efnafræðingar fund með sér. — Einn fund- armanna, prófessor Hersey að nafni, sem er i miklu áliti, sem vísindamaður, tilkynti þar, svo allir urðu undrandi, að sér hefði tekist að búa til gimsteina úr sykri. Hafði hann til sýnis nokkra af hinum tilbúnu gimsteinum, svo voru 2—3 millimetrar að þvermáli. Tilkynti prófess- orinn, að hann myndi innan skamms tíma kunn- gera mönnum aðferðina til að búa til gim- steina; er einnig hægt að búa til stærri gta- steina með sömu aðferð. En mjög seinlegt er að búa gimsteinana til, svo að þeir verða ekk- ert ódýrari, en þeir, sem náttúran sjálf fram- leiðir. Talsíiiiar í biíreiðum. Þráðlausír símar í bif- reiðum eru nú ekki lengur sjaldgæfur viðburð- ur erlendis. Að vísu er ekki mikið um þá enn- þá í Evrópu í einkabifreiðum, heldur aðallega í lögreglu- og brunabifreiðum; geta þær þá ver- ið í talsambandi við stöðvar sínar, meðan ekið er. En í Ameríku hafa margir efnaðir kaup- sýslumenn sima í bifreiðum sinum, og geta því talað við skrifstofur sínar og heimili á meðan þeir eru á ferðinni í bifreið sinni. Getur þetta vitanlega oft komið sér vel. llá iniljón áheyrenclui'. Sagt, er, að Adolf Hitl- er, upphafsmaður þjcðernisjafnaðarstefnunnar og núverandi kanzlari Þýzkalands, sé sá eini, bæði fyr og síðar, sem hefir talað til slíks mann- fjölda, augliti til auglitis. Það var 1. mai s.l. á feikna stóru, auðu svæði í Berlín. Maður, sem staddur var í miðjum hópnum, sá ekki út yfir þetta haf af höfðum, sem öll beindust I sömu áttina, að þeim er talaði. Af hverju fórst Akroni Fyrst álitu menn, að það hefði farist af eldingu. en nú eru menn Frh. á bls. 123.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.