Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 17

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 17
^EIMILISBLAÐIÐ 111 SÖGUR ÖMMU Eftir Sig. S. Christopherson, prest í Bredenburg, Sask. Can. [Nl.] Pað var um seinni hluta vetrar. Grímur var í smiðju. Frost var á og hvast hríðarveður. Vindurinn þyrlaði rennings gusum inn um vegg-glufur smiðjunnar. Pað lagðist sýnilega illa í eldinn, — hann vildi ekki loga. Smíðið gekk seint. Grím- ur vildi ljúka við verk sitt og keptist við, en vann sér þó varla til hita. Hann var orðinn þreyttur, og var hálf kalt þegar búið var. Það var líka að verða dimt af niyrkri og hríð. Grímur byrgði eldinn vandlega, raðaði smíðatólunum á sinn stað, mokaði upp að smiðjuhurðinni og tróð vandlega upp með henni; síðan gekk hann heim. Pegar heim kom í húsið, var þar fá- ment fyrir. Hjónin voru farin á kvöld- skemtun til nágranna sinna. Matur var á borði og volgt te á eldavélinni. Ekki hafði Grímur list á að borða, en fékk sér tvo bolla af tei, þvoði sér og háttaði. Ekki varð Grími svefnsamt. Lúaþrautir léku sem logandi eldur um hverja hans taug. Það sótti að honum hiti og kuldi á víxl. Þegar Kristinn kom heim, var Grímur orðinn veikur og hafði talsvert óráð. Lækn- ir var sóttur; kom hann til Gríms daginn eftir, og sagði það lungnabólgu, sem gengi að ’nonum; taldi hann litla von um bata. Skildi læknirinn eftir meðul handa Grími. Lítið vildi hann taka inn af þeim. Hresst- ist þó dálítið og fylgdi fötum fáa daga. Hann vildi ekki verða karlægur. Það var eitt kvöldið, þegar Grímur var háttaður, að honum versnaði snögglega. Gat hann þess við Kristinn, að hann mundi ekki lifa af þá nótt; bað hann að bera kæra kveðju og þakklæti konu sinni og hörnum. sem vildu sem minst vera yfir veikum, og treystust því ekki til að stunda Grím í legu hans. Grímur andaðist þá nótt. Líkkistan stóð tilbúin. Hún var með ís- lenzku lagi og traust. Hafði Grímur smíð- að hana fyrir nokkru. Eftir tvo daga var líkið flutt til graf- ar. Kristinn og vinnumaður hans fylgdu til grafar. Fjúk var á með all-miklu frosti; þótti veður lítt fært. Við gröfina biðu graf- armennirnir; líka kom enskur prestur, sem snöggvast las fáein orð. Síðan var kepst við að ryðja ofan í gröfina snjóblandinni moldinni; var ekki gengið frá, fyr en kom- ið var vel upp úr jörð. Þá tóku menn sam- an áhöld sín, fóru í yfirhafnir, og allir fóru heim. Vorið kom, með indælli sólhlýju og með hressandi og gleðjandi sunnan-andvara. Fénaðurinn dreyfði sér um hagana. Bænd- urnir fóru að búa sig undir vorvinnuna. Ferðalög hófust aftur og fram um landið. Langferðamaður heimsókti sveitina. Hann var kominn til þess að kaupa lönd fyrir ríkismann suður í Bandaríkjum. Vildi auðmaður þessi komast yfir heild- arsvæði, þar sem hann gæti komið á stofn búskap í stórum stíl. Verðið var gott, sner- ist því margur að því að selja eign sína. Lönd Kristins voru farin að gefa sig; kostnaður við byggingar og aðrar umbæt- ur fóru í hönd. Honum bauðst gott verð fyrir eignina, hann seldi því lönd sín og fluttist vestur þangað, setn var að verða bygð. Þá kom ráðsmaður auðmannsins og lét greipar sópa um hið keypta svæði. Hús frumbýlinganna voru tekin niður; girðing- ar hurfu og löndin sameinuðust í eina heild, og alt óplægt land plægt. En stór- hýsi bygð að nýju. Heimili Kristins laut sömu örlögum, sem önnur frumbýli bygðarinnar. Húsið var rifið og smiðjan. Var margt saman kom- ið í smiðjunni, og fæst talið nýtilegt. Var þar meðal annars pískur, gamall og upp-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.