Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 5
HEIMILISBLAÐIÐ 99 Duse vantaði ný ítölsk viðfangsefni; d’Annunzio skapaði þau: »Dauðra borgin«, ^Gioconda^, »Francesca da Rimini«, 'sGloria«, »Stærra en ást«, eru hin kunn- ustu af þessum verkum hans. Um þetta leyti gekk hann með hugmyndir um að koma á fót þjóðleikhúsi í1 Róm. Fyrir 50.000 gulllírur lét hann verk sín af hendi við Elenora Duse, og hún sýndi í>au ekki aðeins á Italíu, heldur einnig um allan hinn mentaða heim. En þrátt fyrir kóða meðferð á leikritunum varð hinn fjár- hagslegi árangur af hinum löngu ferða- logum hennar vafasamur. Það vildi svo til, að það varð ekki hún, sem lék aðalhlut- verkið i hinu vinsælasta leikriti hans, ^Dóttir Jorios«. I stað Duse, sem ekki hafði efni á að undirbúa leikritið, varð tað hin kornunga Irma Grammatica, sem bar það fram tll sigurs. En Duse gramd- ist mjög. Þessi keppinautur hennar er nú mest dáða leikkona Itala. Hin mikla skáldsaga d’Annunzio’s II Fuoco (Eldurinn) frá árinu 1900, sem al- ftient er kunn sem bókin um samband hans við Elenora Duse, er fyrst og fremst eigin persónulýsing, sem nálgast mjög að vera sjálf-oflof. Með hinu óbifanlega sjálfs- trausti, sem honum jafnan var eiginlegt, komst hann svo langt, að hann helzt vill láta telja, að Gabriele d’Annunzio sé sjálf- Ur erkiengillinn Gabriel, sem flytur mönn- Um boðskap af himnum. Það er þess vegna ekki ástæðulaust, að höfundur æfisögu hans, Signor Nardelli, sem hefir staðið honum nærri, persónu- lega, kallar hann í illkvittinni fyndni ekki aðeins erkiengil, heldur fallinn erkiengil. Og fremst í hinni stóru æfisögu vitnar hann í rit d’Annunzio’s, »Neistar frá steðja mínum«, þar sem skáldið talar um >:>baráttuna milli erkiengilsins og dýrsins í sjálfum mér«. Honum er það fyllilega ljóst, að vængirnir verða að teljast sjálf- sagt tákn engilsins. I hinni snildarlegu skáldsögu sinni: »Ef til vill og ef til vill ekki« (1910) frá bernsku flugs og bif Eleonora Duse, hin ágœta ítalska leikkona. reiðaaksturs, sýnir hann sjálfan sig i lík- ingu aðalpersónunnar, sem fullfæran flug- mann. Leikhúsið hafði veit d’Annunzio þær tekjur, sem nauðsynlegar voru til þess að fullnægja dutlungum hans. Hann bjó um sig á eigninni La Capponcina, rétt hjá Firenze og lifði þar sem miljónaeigandi, án þess þó að vera það, og hélt hús eins og samboðið var gran signore, sem álitinn var að standa fremstur k starfsvelli bók- mentanna, ekki aðeins á Italíu, heldur í allri Evrópu. Og jafnvel þegar tekjurnar tóku að rýrna, þá var eins og forsjónin sæi jafnan fyrir því, að hann gæti samt haldið áfram hinum ríkmannlegu lifnað- arháttum sínum. Og um það leyti gerðist atburður, sem annars skeður aðeins í skáld- sögum: Flugríkur maður, Del Guzzo, sem mokað hefir saman peningum í Argen-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.