Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 29

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Blaðsíða 29
HEIMILISBLA.ÐIÐ Í23 Iládung er um hávetur í helfrosti og snjó ad klœda sig sudurlandasilki og skó. Sæmrae1' til Sigurjóns ad sækjafötin hlý og sokkana íslenzku að klæða sig í. Verslið við Álafoss. i mn ih iii iw ih w wnmiwgwi'i wwwiwwn uimmiwwn Barnatryggingar : með þeim hætti, að iðgrjöhl falla niður et : ; sá sem biður um trygginguna (venjulega : ; faðir barnsins) fellur frá eða verður öryrki. ; : Leitið upplýsinga (látið getið aldurs yð- : : ar og hvenær þér mynduð óska útborgunar | ; á tryggingarfénu). : Lífsábyrgðarfélagið Thule h.f. : : Aaðalumhoð fyril• ísland. i . A. V. TULINIUS ! Eimskip 29. Sími 2424. ; ÍÉilUliMtMÉMÉÉIIiiMÉÉ*iril1ltlff<i>[ÉÉ-É‘. SKUGGSJA. Frh. frá bls. 120. komnir að þeirri niðurstöðu, að svo hefir ekki verið. Er það meðal annars, álit liðsforingjans Wiley, er var sá eini er bjargaðist, er Akron fórst. Hefir háspennu-rannsóknarstöðin í Barber- ton i Ohio (U. S. A.) og reynzla víðsvegar um heim sannað, að eldingar eru loftfarartækjum skaðlausar. Hefir rannsóknarstöðin sannað þetta með því, að senda 3 000 000 volta straum i gegn- um smá-loftskip (modell). Pessu hafði Dr. Hugo Eckener haldið fram, áður en það varð sannað. Aíkomendur Lútliers. Peir eru nú taldir að vera 876 á lifi. Hafa þeir myndað með sér fé- lagsskap, og eru flestir þeirra í honum. Fvrir nokkru komu þeir saman I Lúthersbænum Eis- leben til þess að halda hát'iðlegan 450. fæðingar- dag Lúthers. Var það í fjórtánda sinn, sem fé- lagið kom saman síðan það var stofnað. Flestir meðlimann eru afkomendur Lúthers í 13. lið. en þó einstaka i 11. Nafnið Lúther dó út í ættinni árið 1759. Markmið félagsins er sérstaklega að halda anda Lúthers lifandi meðal afkomenda hans. Einn af afkomendum hans, séra Clasen, hélt aðal-hátíðarræðuna. Prédikaði hann úr sama 1-æðustólnum, sem Lúther stóð í fyrir 450 árurn. Andlitsdrættir prests þessa eru svo líkir Lú- thers, að merkilegt má heita, eftir 450 ár. Mimiþonhlnup. 24. jfl’li 1908 er merkisdagur i sögu íþróttalistarinnar. Frá þeim degi hefir Maraþonhlaupið verið þekkt og dásamað sem íþróttaafrek. Varla hefði þó hinn litli, ítalski kappi, eftir 42.2 km hlaup í steikjandi sólarhita, og nær dauða en lífi við markið, getað flutt boð- skapinn urn sigurin yfir Persum frá Maraþon til Aþenu, eins og fyrsti Maraþonhlauparinn. 56 hlauparar lögðu af stað frá Windsok Castle, aðeins 27 komu að markinu i London. Á seinni helming vegalengdarinnar hljóp Suður-Ameríku- maðurinn Kefferon um 4 minútur á undan Do- rando. »Aldrei hefir meiri mannfjöldi horft á neina íþró.ttasýningu, ekki einu sinni á Derby- veðreiðarnar eða kappróðrarmótin,« stóð I opin- berum fréttum. Alstaðar var hinum 22 ára gamla Dorando Pietri fagnað, og hann hafði líka forystuna. Hann fór aftur fram úr Hefferon tæplega meir en kilómeter frá markinu, pn þessi áreynsla var ofvaxin kröftum hans, því þegar Pietro kom að markinu, var hann nærri með- vitundarlaus. í staðinn fyrir að fara til vinstri, beygði hann til hægri á hlaupabrautinni. Fagnað- aróp hinna 60 þúsunda, sem dáðust að honum. enduðu í skelfingarópi. - Pietro féll til jarðar. Læknar, meðhjálparar og lögregluþjónar hlupu til hjálpar. En menn leiddu ekki hina þraut- seigu hetju út af brautinni, heldur í gegn um markið, þar sem hún gafst alveg upp. En á meðan á þessu stðð, var, án þess nokkur tæki eftir, sá annar kominn I ljós á hlaupabrautinni, Hayes að nafni, Bandaríkjamaður. Ameríkumenn- irnir hófu nú réttlát mótmæli gegn því, að Pietri hlyti sigurlaunin, og eftir langar um- ræður var Pietri strykaður út sem sigurvegari, vegna aðkomandi hjálpar, sem hann hefði notið. A meðan lá Pietri 2% klukkustund meðvitund- arlaus. Eftir rannsókn læknanna kom það í ljós, að hjartað i honum hafði færst úr stað um 1% centimeter, en þó var það morguninn eftir komið »á sinn stað« aftur. — Alexandra drotning varð svo innilega gripin af hetjudáð og óhappi ítalans, að hún heiðraði hann hvað eftir annað, og afhenti honum gullbikar við hina opinberu verðlaunaúthlutun. í bikarnurr. lá kort með eiginhandar tileinkun drotningar- innar. - - - Enn í dag, eftir mörg Maraþon- hlaup, og eftir að hafa náð sér niðri á Hays og öðrum síðari keppendum, eftir 25 ár, er hann altaf fullur sorgar yfir fyrsta hlaupinu: »Menn tóku frá mér sigurinn. Hvers vegna fóru menn að hjálpa mér! Ég hefði komist einn að markinu.«

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.