Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Qupperneq 19

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Qupperneq 19
HEIJVÍILISBLAÐIÐ 113 ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■^ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■ ■ S Jf r fé S V V EFTIR GRACE S. RICHMOND ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ^«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•> ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ I. Pósturinn var að koma upp eftir gamla steinlag'ða gangstígnum, sem lá heim að tígulega, skuggalega múrsteinshúsinu. , Hann hafði meðferðis bréfið, sem þessi saga hefst á, því sendibréf hafa verið fyrst allra viðburða — ekki þó alveg frá alda öðli, en að minsta kosti síðan fyrstu póst- arnir hófu göngu sína um bygðir og bæi. Pat — Patrick Spense — sem var hár og grannur, bláeygður og írskur, horfði á póstinn út um bókaherbergisgluggann. Pat var hugsandi að sjá. Hann var að óska þess, að pósturinn kæmi með eitthvað, á sama stóð hvað það væri, sem beindi huga húsbónda hans út á við — honum var SVO mikil þörf á því. Því húsbóndi hans — og vinur, — dr. Lynn Bruce, (sem Pat þóttist vita að ætti titilinn Major Bruce), hafði liðið mjög illa um daginn, þó hann sæti kyr í hjóla-stólnum, í stað þess að ganga aftur til hvílu, sem Pat var sann- færður um að hefði verið betra fyrir hann, Og hvað getur fremur glatt og hrest held- ur en skemtilegt bréf? Pósturinn lagði frá sér bréf og bögla af ýmsu tagi. Það var sú tíð að póstur doktorsins var þungur, nú var hann létt- ur. Eitt bréfið var einkennilegt, fannst Pat. Það lét hann efst. Honum líkaði illa svarta, mjóa röndin, sem á því var, en Pappírinn var þykkur og' utan á það var skrifað með fastri hendi og' leit út fyrir að skrifarinn væri ungur. Eldri kona myndi skrifa svona, var Pat viss um. Hann fór inn með póstinn og fór svo út úr stofunni. Doktorinn vildi engan hafa hjá sér, þegar hann las bréfin sín .. Pat vissi ekki hvernig á þvi stóð. Hann vissi ekki hvað gerði doktorinn svo óvenju ön- Ugan í dag. Síðan um hádegi hafði hann verið vonlaus um að geta gert honum uokkuð til hæfis, og nú var klukkan orð- in fjögur. »Mannskrattinn!« sagði Pat við sjálfan sig. »Aumingja, kæri, önugi mann- skratti! Ilamingjan góða flytji honum eitthvað gott í þessu bréfi. Ekki svo að skilja, að hann muni nota sér það, þó að hún gerði það; Hann er sjálfum sér verst- ur, blessaður maðurinn! En það kynni þó að taka hug hans, svo hann gleymdi bak- inu á sér fáeinar mínútur. Það væri líka eina gagnið, sem það gæti gert honum.« II. Doktor Bruce þekti áritunina. Bréfið var frá systurdóttur hans, Nancy Bruce Ptamsey í Denver. Hann hafði ekki séð hana síðan löngu áður en hún giftist Alec Ramsey. Flugvél Alec Ramsey hafði brotn- að í Frakklandi fyrir hér um bil þrem árum — rétt um það leyti, sem Bruce meiddi sig'. Hann mundi eftir, hvað systur- dóttir hans var fjörug, ung stúlka með fremur sérkennileg augu. Systir hans, Barbara, hafði gefið henni tízku-uppeldi, því sjálf fylg'di hún tízkunni út í yztu æsar. Hann langaöi ekkert til að lesa bréfið; honum var alveg sama um alt, sem Nancy hafði að segja. þetta var einn af hans verstu dögum. Hann hafði lifað fleiri af því tægi, sem ekki gátu talist góðir. Hon- um fanst hjólastóllinn sinn nærri því verri en rúmið hafði verið; hann hataði koddana í honum; honum var ógeðfelt að renna sér fram og aftur í stólnum um bóka-herbergið, þar sem hann hafðist nú við á daginn, og sem lá við hliðina á svefn- herbergi og hjóla-stóll voru nú yztu tak- mörk tilveru hans. og vonlaust um nokkra bót á því. Yglisvipur kom á andlit hans við þá hugsun, um leið og hann tók bréfið og opnaði það. Honum geðjaðist illa að þykk- um sendibréfa-pappír; hann hafði óbeit á svörtum röndum - - hann sá, að þær voru mjórri nú, en á bréfum Nancy fyrir tveim árum — sorg hennar hafði að sama skapi minkað, hugsaði hann með sér. Hann var nærri þvi búinn að gleyma, að til væri slík persóna, sem unga frú Ram- sey — hvaða ástæða var til þess að hann myndi eftir henni núna?

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.