Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.07.1933, Page 25

Heimilisblaðið - 01.07.1933, Page 25
HEIMILISBLAÐIÐ 119 í húsinu sínu eins og áður — eins og Hans og Elsa? — Þegar þau fara aftur að búa í húsinu, þá ætla ég að vera hjá þeim, og hara beimsækja þig, frænka. — Og þá syngur mamma aftur fyrir mig: »Ríða, n'ða- Ranké« og »Sof þú mitt barn«. — Þá kyssi óg pabba og þá kyssi ég mömmu og sofna svo vært — heima — heima — hjá elsku pabba — og tnömmu. — Ö, elsku mamma, syngur þá fyrir mig —« »Já, Karen, ó- reyndu að syngja fyrir hann - fljótt — fljótt — Karen.« Karen lyfti lítið eitt upp litla, veika hÖfðinu, og þau tóku sitt utan um hvora tnögru höndina> sem lá máttvana ofan á sænginni, og Karen söng lágt, með grát- titrandi röddu: »Sof þú, mitt barn,« o. s. frv. Barnið virtist hlusta. og sneri sér síðan að foreldrum sínum. »Karen, Karen, syngdu áfram! Hann þekkir okkur!« Brosi brá fyrir á vörum barnsins, og það festi augun á foreldrum sínum á víxl. »Búum við í húsinu — mamma — pabbi - og Henni!« »Já,« hvíslaði faðirinn. — »nú er Henni glaður---------Og þú Karen! Við skrök- um ekki að deyjandi barninu okkar — við búum saman í húsinu — og ekkert skilur okkur nema dauðinn — er ekki svo?« Hún tók hönd hans og kysti hana. - »Getur þú fyrirgefið mér Andrés?« »Já, Karen — nú er alt gleymt. — En elsku Henni — hvað er þetta! Krampadrættirnir jukust í litla andlit- inu og köldum svita sló út um það — - dauðastríðið var byrjað. »Mamma — pabbi« — og litla höfuðið hneig máttlaust niður á koddann - - eng- ill dauðans hafði unnið kraftaverk sitt — og engill ljóssins var svifinn á braut með saklausa barnssál í faðm frelsarans á himnum. — Heilög þögn dauðans hvíldi eitt augna- blik yfir sorgarstaðnum. Svo lagði Andrés hönd sína á, höfuð konu sinnar og hún hallaði sér upp að brjósti hans: »Við skiljum aldrei framar, Karen.« »Nei, elsku Andrés. við skiljum aldrei framar!« Og ungu hjónin gengu hljóðlega burt frá sjúkrahúsinu. í sorginni höfðu þau aftur fundið hvort annað. Ávextir og notkun peirra. Lausleg 'þýðing úr ensku tímariti. Það þurfti áræðni ogdugnað til að stofna til hins fyrsta alþjóðafundar, á þessum erfiðu tímum, eingöngu i því skyni, að ræða um rétta notkun ávaxta, nýrra, nið- ursoðinna, þurkaðra og í óáfengum vínum. Fundurinn var haldinn síðastliðið vor í París, og var hann sóttur af 300 fulltrúum frá 22 ríkisstjórnum. Tvö alþjóðafélög sendu einnig fulltrúa á fundinn: Alþjóða- verkamannafélagið og Alþjóða-landbúnað- arfélagið. Hve vel tókst með fundarhöldin og hve vel fundurinn var sóttur, má án als efa fyrst og fremst þakka áhuga frönsku stjórnarinnar fyrir málinu. Forsetinn var formaður fundarins, utanríkismálaráð- herrann hafði boðað til hans, landbúnaðar- ráðherrann hélt inngangsræðuna og heil- brigðimálaráðherrann hélt mjög áhrifa- mikla fundarslitaræðu. I ræðum þessara tveggja ráðherra kom það greinilega í ljós, hve mikií nauðsyn er á, að notkun ávaxta breytist, bæði frá heilbrigði- og hagfræðisjónarmiði; þar kemur eðlilega til greina útrýming áfengis- gerjunar ávaxtavína. Málið var því aðal- lega rætt frá fjórum hliðum: almennrar framleiðslu-, notkunar- og heilbrigði- og vísindalegri hlið. Skýrsla prófessors Labbe, sem er kenn- ari við læknaskóla í París, vakti einkum mikla athygli. Þeir, sem lesa skýrslu hans eða hlustuðu á hana, munu ekki efast um notagildi ávaxta fyrir heilsu manna og'

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.