Heimilisblaðið - 01.09.1933, Blaðsíða 8
132
HEIMILISBLAÐIÐ
bakdyr. Pessi bær, sem 1901 taldi hann
landráðamann, og ætlaði að ílá hann lif-
andi, gerði hann 1921 að heiðursborgara,
en pá hafði hann líka unnið miklu stærri
styrjöld.------
Ráðherrastörf sín byrjaði Lloyd George
sem verzlunarmálaráðherra 1905, en árið
1908 varð hann fjármálaráðherrn, og 1909
bar hann fram hið fræga fjárlagafrumvarp
sitt, sem gerði nafn hans frægt og gerði
hann að nokkurskonar pjóðhetju meðal
lægri stéttanna, er skoðaði hann sem nýjan
Hróa Hött, er rændi pá ríku, en miðlaði
pví til hinna fátæku, en æðri stéttirn-
ar litu hann aftur á móti mjög óhýru
auga.
Hin margbreyttu pjóðfélagslegu lög, sem
sampykt voru á pessu tímabili, voru að
miklu leyti hans verk; t. d. lögin um elli-
styrk og almennar tryggingar samdi hann
eftir dvöl í Pýzkalandi, en par hafði hann
kynnt sér pýzkt fyrirkomulag slíkra trygg'
inga og var mjög hrifinn af pví.
Hann bjóst alls ekki við, ■ að slík átök
yrðu milli Englands og Þýzkalands, eins
og margir meðstjórnendur hans altaf ótt-
uðust. En pegar út í stríðið var komið,
hvarf hann frá friðarhugsjón peirri, er hann
barðist fyrir í Búastríðinu, en beitti öllu
preki sínu og áhrifum til pess, að leiða
stríðið farsællega til lykta fyrir pjóð sína.
Meðal annars skipulagði hann skotfæra-
framleiðsluna á peim grundvelli, að fram-
leitt var margfalt við pað sem herforingj-
arnir kröfðu. En reynslan sýndi síðar, að
slíkt var nauðsynlegt, pegar styrjöldin
dróst á langinn og breyttist á ýmsar hátt.
Hann fyrirleit yfirmann sinn, Asquith, og
gagnrýndi gerðir herforingjanna.
Og pegar margir af spádómum
hans rættust, varð hann sjálfur
pess fullviss, að hann einn gæti
leitt pjóð sína til sigurs. Þegar
'nann svo steypti Asquith 1916,
hafði hann pjóðina og herinn að
baki.
Alt var svo vel undirbúið, að
'' Asquith einan grunaði ekk-
ert. Leynilegur undirbúningur
hafði pá staðið vikum saman, og
hafði fjármála-æfintýramaðurinn
frá Canada, sir Max Aithen, síð-
ar Beaverbrook lávarður, átt mik-
inn pátt par í. Asquith fór fyrst
að renna grun í hvað verið væri
að brugga, er blöð peirra Ati-
kens, »Daily Express«, og Nord-
cliífes, »Daily Mail« og »Times«
réðust á stjórn hans. Stjórnin
féll, en hvorki Asquith né Bonar
Law tókst að mynda stjórn, pví
alt var pannig undirbúið, að Lloyd
George einn gæti myndað stjórn,
enda tók pað ekki langan tima
fyrir hann, að undirbúa ráðherra-
Wilson, Clemencau, Lloyd George og Orlando á ráðstefnu
með Foch hershöfðinga í Versailles.