Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Blaðsíða 14

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Blaðsíða 14
138 HEIMILISBL AÐIÐ og handleggurinn var ber alveg npp að mjúkri og fagurri öxlinni. Hún bar höfuðið hátt og djarfmannelga, kvenleg og fögur. Það var sannarlega synd að fela fallega hárið hennar, sem glóði í tunglsljósinu; en Caverly mátti ekki vera að neinni við- kvæmni. Hann tók handfylli sína af hár- inu. batt það saman í skúf og faldi það undir slitnum túrban (vefjarhetti), sem hann steypti á höfuð henni. »Nú líkist þér helst hvítum smástrák, sem hæfir mest til að hlaupa í vindi,« mælti hann og virti hana fyrir sér gaumgæfi- lega. »En þér eruð samt alt of hrein.« Hann tók annan enda léreftsrennings- ins, sém auðsýnilega hafði atast af viðar- kolunum í tjaldbálunum. Það komu drætt- ir í andlit ungu stúlkunnar. en hún mælti þó ekki orð, meðan hann var að sverta andlit hennar, handleggi og fögru hendur. Síðan steig hann eitt skref áftur á bak og virti hana rækilega fyrir sér. »Nú eruð þér sa^milega útlítandi,« mælti hann. »Þrælsnáði! Ég vona, að þér þurfið aldrei að finna til þrælasvipunnar.« Hún leit hægt niður. »Það lítur út fyrir, að þér skemtið yður ágætlega yfir þessu öllu saman,« sagði hún. »Eg er að reyna það,« mælti hann. »Ég hefi nú mánuðum saman verið að leita að einhverju til að skemta mér við. Þér getið reynt til að nota ilskóna þá arna, en ég býst við að þér getið ekki hamið þá á fótunum.« »Ég vil heldur vera án þeirra,« mælti hún. »En þér verðið blóðrisa á fótunum, áður en þér eruð búnar að herða þá nægilega.« »Jæja, þá það,« sagði hún kæruleysis- lega. Caverly hafði tekið með sér silfursaum- aðan handpoka Sídí Sassí. Hann opnaði hann og fann þar á meðal ýmsra vernd- argripa og annara kennitákna heilmarg't smámuna svo sem ilmvatnsflösku, litla gylta rakvél, naglaskæri, hársmyrsl, gim- steinum prýdd hylki undir eldspítur og' vindlinga, skrautlegt úr og' ofurlítinn átta- vita íi lýsigullsumgerð. Hann rétti Bo Treves vindlingahylkið. »Viljið þér fá yður eina?« »Nei.« »Hvers vegna ekki?« »Þrælastrákar reykja ekki vindlinga.« Sem allra snöggvast leit Caverly hlýlega til hennar. Hann fleyg'ði vindlingahylkinu frá sér. »Eg fer að halda, að þessi glæfra- lega áætlun okkar ætli að heppnast fyrir okkur,« sagði hann. Hann leit í litla vasaspegilinn, sem fylgdi dóti Sídí Sassí, og virti nákvæm- lega fyrir sér tveggja ára gamlan skegg- vöxt sinn. Það var hnetubrúnt, flókið al- skegg, sem skýldi tveim þriðju hlutum af andliti hans. Það var heppni, að Sassí hafði tekið naglaskærin sín með sér út í eyðimörkina. Caverly settist niður með spegilinn á hnjánum og klipti hvern lagðinn af skegg- inu á fætur öðrum. Bó Treves settist nið- ur á sandhrúgu og krosslagði fæturna og starði þunglyndislega út í bláinn. Caverly klipti nú skegg sitt á þann hátt, sem hinir herskáu Arabahöfðingjar eru vanir að gera; var það snöggklipt frá neðri vörinni og ofan á hökuna og mynd- aði síðan oddhvassan topp undir hökunni. Yfirskeggið var snúið í mjóa þræði, sem héngu niður sitt hvoru megin. Andlit hans varð þannig lengra og mjórra á að líta, og svipurinn breyttist að mun, varð hvat- skeytlegri og íbygginn mjög. Að lokum not- aði hann rakhefilinn og sneri sér svo að ungu stúlkunni. »Jæja. hvernig lízt yður á þetta?« »Hvers vegna ætti ég svo sem að lítast á það? Ég hefi andstygð á skeggi. Og svo hafið þér ofan í kaupið klipt það skakt.« Hún stóð upp og virti hann kæruleysis- lega fyrir sér. Svo lagðist hún á kné fyrir framan hann og' þreif skærin frá honuin. »Svona!« Hún klipti dálítið í burtu hægra megin, svo að samræmi náðist. Hún virti árangurinn nákvæmlega fyrir sér meö því að halla höfðinu á víxl. »Nú er það gott,« sagði hún kuldalega og gekk á burt frá honum. »Úr því þér endilega viljið líkjast þessum hræðilegu Aröbum, þá hefir það tekist prýðilega.« »Ef svo er,« svaraði hann og hljóp á fætur, »þá verðum við fyrst að leita gæi- unnar í garði Tagars.« Langt úti í eyðimörkinni sáu þau blika á tjaldbál Zouaianna. Þau sneru nú baiu’ við dauðans dal þeim, þar sem Carl Lont- zen hafði haft áfangastað, og' héldu nú fótgangandi af stað til að grenslast eftir hvað þessi viðburðaríka nótt hefði enn í skauti sínu þeim til handa. »Ég verð að fá að vita alt, sem yður

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.