Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1933, Side 19

Heimilisblaðið - 01.09.1933, Side 19
HEIMILISBLAÐIÐ 143 verið að verki. Síðan fylgdi ég hinni breiðu slóð þinni, og nú er ég hingað kominn, faðir minn!« »Sástu líka slóðina eftir einn stroku- úlfalda?« spurði Tagar. Caverly kinkaði kolli. »Já, en ég taldi lík fylgdarmanna minna, og fann þá alla. Var þetta laus úlfaldi?« »Nei. Það var maður á honum. Hann var þræll minn. Kristinn maður!« Gremja Tagars og heift ætlaði alveg að kæfa hann. »Hann flúði úr herstöð minni og ruddist síðar gegnum hermannaraðir mínar á bráðfljótum úlfalda. Þrír af beztu reið- mönnum mínum eru nú að elta hann.« Einmitt hér var sú hætta fólgin, er Caverly hafði óttast mest. Það fór hrollur um hann, er honum varð litið í augu Tag- ars. Næðu þeir strokumanninum, og það sannaðist, að það væri eigi þræll höfðingj- ans, myndi næst verða til að svara: Hvað er orðið af hvíta þrælnum? Og þá myndi tortrygni Tagars þegar beinast að manni þeim, er þóttist vera sonur hans. Það var því algerlega undir örlögum flóttamanns- ins komið, hvort þessi grímuleikur Caver- lys og Bó ætti að hepnast eða ekki. Og allur hugur Caverlys flaug út á eyðimörk- ina til flóttamannsins, og hann óskaði þess innilega, að honum mætti verða undan- komu auðið. Heiftaræði Tagars hafði nú sljákkað. Augu hans leiftruðu eins og stál. »Hvar er Hússein prestur, sem var kennari þinn?« spurði hann. »Hússein er dáinn.« »Jæja!« Tagar var fljótur að móðgast. »Og mér hefir ekki verið tilkynt það.« »Hússein dó fyrir skömmu í París á Frakklandi. Ég lagði sjálfur af stað, til að færa þér fréttirnar munnlega. Var ekki mál til komið, að ég kæmi heim aftur, faðir minn?« Tagar svaraði því engu, en gekk hring- inn í kringum hinn nýkomna og virti fyrir sér vöxt hans og vaxtarlag frá hvirfli til ilja. »Þú hefir svei mér vaxið!« mælti Tag- ar. »Þú ert oi’ðinn hár vexti, drengur minn!« »Vonandi að viti líka,« sag'ði Caverly. »Við fáum nú að sjá það. Hefirðu lært nokkuð til vopnaburðar?« »Ég hefi lært mikið.« »Við fáum að sjá það líka,« mælti Tag- ar þurlega. »Til að byrja með skal Alí Móhab kenna þér, hvernig úlfaldariddari hagar sér við reiðdýr sitt. Við skulum vona, að þú verðir námfús.« »1 þeim efnum þarf ég engrar kenslu við,« svaraði Caverley. »Ekki það?« Tagar lyfti brúnum. »Hafa þeir þá úlfalda, þar sem þú hefir verið?« »Marga úlfalda.« »1 þessari París?« »Já, í dýragarðinum, þar hafa þeir úlf- alda.« »Og þú hefir riðið á þeim?« »Á hverjum degi,« svaraði Caverly. »Og þú heldur, að úlfaldi, sem riðið er í dýragarði, sé samskonar dýr og sá úlf- aldi, sem riðið er á víðavangi, þar sem sjóndeildarhringurinn einn er takmörkin.« »Úlfaldi er altaf úlfaldi, hvar sem hon- um er riðið,« svaraði Caverly. Kuldaglotti brá fyrir í augum Tagars sem allra snöggvast, og hann deplaði aug- unum háðslega til skeggkarlanna, sem stóðu umhverfis hann. Mennirnir voru of kurteisir til þess að hæðast opinberlega að syni höfðingja síns, en af hinu íbyggilega augnakasti, er þeir sendu hver öðrum, mátti greinilega skilja, að þeim virtist ekki hyggilegt af hinum unga manni, að gorta af því, er hann bar ekkert skynbragð á. En Caverly kerti hnakkann og horfði lítilsvirðingaraugum út yfir hópinn. »Fær- ið mér riffil, sveðju, fullan vatnspoka og tvö skothylkjabelti,« mælti hann í skipun- arróm. »Hvað ætlarðu að gera með þessa hluti?& spurði höfðinginn. »Við fáum nú að sjá,« svaraði Caver- ly og beið. Þrír — fjórir mannanna gengu nú fram. Einn þeirra rétti honum skothylkjabelti, sem Caverly spenti um herðar sér. Svo var vatnsbelgur festur á bakið á honum, rétt ofan við, þar sem beltin gengu í kross. Þriðji maðurinn rétti honum riffil með löngu hlaupi, sem hann fleygði á bak sér, og sá fjórði rétti honum tíu feta langa sveðju. »Hana nú,« mælti Caverly, færið mér nú fljótasta úlfaldann, sem hér er. Beisl- aðan, en hnakklausan.« Frh. næst.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.