Heimilisblaðið - 01.09.1933, Qupperneq 30
154
HEIMILISBLAÐIÐ
breyting á skipulaginu til þess að allir
njóti lífsins gæða í ríkum mæli. Stefna
sú, sem byggir á hinni nýju iðnfræði
(technology) kallar sig »technocracy og er
hún róttæk og býst við að geta sameinað
hugsjónir sínar hugsjónum fjölda frjáls-
lyndra flokka innan Bandaríkjanna
Einnig í fyrirætlun og framkvæmd, er
talið fyrsta skilyrðið, annað fórnfús, djarf-
ur og' dugandi leiðtogi. Þriðja ótak-
markað frjálslyndi án alls klíkuháttar.
Hefjist ekki þjóðin handa til samvinnu,
er viðbúið að hún geri blóðuga uppreisn.
Ekkert annað en að fólkið standi saman
getur komið í veg fyrir að eins fari fyrir
Ameríku og Rússlandi. »Til þess eru vond
dæmi að varast þau.« Bæklingurinn end-
ar þannig:
»Ameríka hefur uppreisn í annað sinn,
til þess að bjarga arfleifð sinni. Forfeð-
urnir hófu borgarstríð, til þess að tryggja
afkomendunum frelsi og hamingju, en það
er tapað og týnt. Þjóðin er í þrælkun fá-
menns auðvalds. Vér erum ættlerar og
gleymum því, að uppreisn skapaði lýðveldi
og hélt því við. Thomas Jefferson taldi
uppreisn nauðsynlega einu sinni á hverj-
um mannsaldri. Vér hefðum verið betur
farnir hefði það verið. Uppreisn amerísku
þjóðarinnar á ekki að vera blóðug eins
og fyrsta uppreisn hennar. Það eru nýjar
leiðir án alls ofbeldis, einungis ef þjóðin
sameinar sig og notar sér vald fjöldans,
getur hún komið hugsjónum sínum í fram-
kvæmd í náinni framtíð.«
kugg^já.
II brnðtir citt knattspyriiiifélag'.
I smáþorpi einu, Bruchl.aus n-St'd, i \‘est'. r-
Pýzkalandi býr bóndi, að nafni Jóhann Múnze.
Hann á 13 börn uppkomin, 2 dætur og 11 syni.
Eru þessir 11 bræður allir hraustir Iþróttamenn,
og iðka sérstaklega knattspyrnu. Hafa þeir mynd-
að með sér knattspyrnufélag. Frumkvöðuil að fé-
lagsstofnuninni var faðir þeirra. Félag þetta
hefir vakið mikla athygli, enda mun það vcra
algert einsdæmi.
14. þús. fbúar ú nóttlnni, cn 500 þús. ú daginn.
íbúar London City eru á nóttunni 14000, en á
dagin um míljón. Stafar þessi mikli mismun-
ur af þvi, að svo margir stunda atvinnu á dagin
i þessum aðalhluta Lundúnaborgar, en eiga
heima í öðrum borgarhlutum.
Hengdir fyrir vanrækslu.
Pað gat verið dálítil áhætta að vera stjörnu-
fræðingur í Kína í gamla daga. Kinversku
stjörnufræðingarnir gátu átt það á hættu, að
missa lífið, ef eitthvað brigði út af. T. d. voru
tveir stjörnufræðingar við kínversku keisara-
hirðina, Hi og Ho að nafni, teknir af lifi árið
2128 f. Kr., vegna þess, að þeir höfðu vanrækt
að segja fyrir sólmyrkva.
Yfir 1000 leikhús í Ameríku hafa orðið að
hætta starfsemi sinni og loka, vegna krepp-
unnar.
Adolf Hitler segir, að áfengið hafi ýmist grand-
að eða gereytt fleiri nytsemdarmönnum þýzku
þjóðarinnar á síðustu hundrað árum, en allar
styrjaldir á sama tima (þar með talin heims-
styrjöldin mikla 1914—1918).
Sá, sem fórnar heilbrigðinni fyrir þekkingu,
hefir þegar fórnað þekkingunni.
Jean Paul.
Það er enginn svo rikur, að hann geti ekki
tekio á móti gjöf. Og eriginn svo fátækur, að
hann geti ekki gefið einhverja gjöf.
S e r a n d o.
Reyndu að eignast hin sönnu auðæfi: — að
vera ánægður með lítiðl
S e n e c a.
Fyrsti livíti maðiirinn.
Suðurhluti Arabíu er enn svo að segja ókunn-
ur hvítum mönnum. Fyrst í sumar tókst Þjóð-
verja einum, Hans Helfritz að nafni, að ferð-
ast í gegnum Rub al Khali-eyðimörkina. Þetta
ferðalag var ekki hættulaust. í 150 ár hafa
menn verið að reyna að rannsaka þetta land-
svæði, og margir vísindamenn hafa lagt lífið
I sölurnar fyrir þær tilraunir. Arabarnir hafa
altaf litið með tortrygni til útlendinga, sem
hafa viljað þrengja sér inn í riki þeirra, og’
i trúarofstæki hafa þeir bannað öllum »óheilög-
um« aðgang að hinum helgu stöðum. Fyrstum