Heimilisblaðið - 01.09.1933, Blaðsíða 31
HEIMILISBLAÐIÐ
155
hvítra manna tókst Svisslendingnum Burchardt
árið 1828, dulklæddum sem pilagrím, að kom-
ast til Mekka og Medina. Á eftir honum komu
margir duglegir og hugdjarfir landkönnuðir.
Einn af þeim síðustu, er hafa látið lífið í þess-
um Arablu-rannsóknarferðum, var danskur mað-
ur, Knud Holmboe að nafnil Pað var haustið
1931. Hann var staddur 1 landi Wahabitanna,
og var drepinn af einum höfðingja þeirra, Ach-
med el Quasin að nafni. — Á hinu hættulega
og æfintýraríka ferðalagi sínu I sumar kom
Hans Helfritz til tveggja gamalla borga, Sana
og Marib, sem enginn hvítur maður hefir litið
fyr, svo kunnugt sé. Á dögum Salómons kon-
ungs var borgin Sana I ríki drotningarinnar frá
Saba. Byggingar I þessum borgum eru allar úr
leir, nema opinberar byggingar, sem flestar eru
mikil mannvirki — víggirtir kastalar, sem gnæfa
eins og klettar upp úr eyðimörkinni. Peir eiu
bygðir úr granit, og háu turnarnir, þar sem
Bedúlnarnir halda vörð dag og nótt, eru úr
hvítum marmara. — Dularfullir kastalar, ein-
stæðar og einmanalegar borgir, umgirtar eyði-
mörk, já, og eyðimörkin sjálf — þetta er æfin-
týraland, og þangað sækja óteljandi höfundar
efni I æfintýri. Og hver þekkir líka sögu þess-
ara staða? Hvað getur ekki hafa gerst þar? —
— Hans Helfritz er enn ungur maður, aðeins
31 árs gamall. Hann er eiginlega tónsnillingur,
hefir gefið út fjölda tónsmiða eftir sig og haldið
opinbera hljómleika. En hann hefir sérstakan
áhuga fyrir músik villiþjóða, og það var það,
sem kom honum út I ferðalögin. Hann hefir
ferðast vlða um heim, t. d. hefir hann komið
hingað til Islands.
P á 1 a: »Það var reglulega skemtilegt I brúð-
kaupsveizlunni hennar Sylviu. Þar var maður,
sem slepti ekki af mér augunum allan veizlu-
tlmann.«
E m m a: »Hvernig leit hann út? Var hann stór,
frekar sterklegur, með litið, dökt yíirvarar-
skegg?«
P á 1 a: »Rétt! Það var hann!«
E m m a: Hamingjan góða. Það hefir verið
einkanjósnarinn, sem var látinn vera í veizl-
unni, til að gæta að, hvort nokkru yrði stolið.«
»Fyrstu hjónabandsár okkar var ég vön að
vekja manninn minn með kossi.«
»En núna?«
»Nú er hann búinn að kaupa sér vekjara-
klukku.«
HANDSÁPU — IÍERTI — SK6-
ÁBURÐ — GÓLEÁBURÐ — FÆGI-
LöG — BAÐLYF — VAGNÁBURÐ.
HREINS vörur eru jafngóðar erlend-
um og ekki dýrari og eru því að sjálf-
sögðu skylda landsmanna að nota’ þær.
Munið að taka það fram, þegar þið
kaupið ofangreindar vörutegundir, að
það eiga að vera H R E I N S vörur.
Ódýrt matarstell
„Navy“ steintauið
stendur tvímælaust jafnfætis bezta
steintaui sem hingað hefir flust.
24 diskar og 6 bollapör. Kosta aðeins kr. 12,00
6 djúpir diskar 8” 6 grunnir diskar 8”
6 grunnir diskar 7” 8 desert diskar 6”
Alt þetta fyrir einar tólf kronur.
EDINBORG
G. Bjarnason & Fjelösteð
Hvergi meira úrval af
fata- oi fraktaefnum.
Ágætir regnfrakkar.
WiiHÉMÉÉIÉÉIÉÉMMHtllMMiÉÉÉÉÉÉMIItÉIMIItÉÉÉÉIU