Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1919, Blaðsíða 10

Heimilisblaðið - 01.08.1919, Blaðsíða 10
122 HEIMILISBLAÐIÐ ið við fortíð sína og kæmi svo fram, að minsta kosti á yfirborðinu, sem maðursam- boðin þeirri ætt, sem hann var nú tengdur og hinni, sem hann átti sjálfur kyn sitt til að rekja. En siðustu viðburðirnir höfðu talsvert raskað þessari von, og þegar Payne skifti svo skyndilega litum, er hann heyrði lög- reglumanninn nefndan, þá varð Eastling nær ómögulegt öðru að trúa en Payne væri einn í löguneyti þjófa og bófa. Auðvitað tókst Payne að ná sér aftur óð- ara og lét þá sem sér þætti viðvörunin næsta hiægileg. »Nú þykir mér gaman að heyra lil þin«, svaraði hann og opnaði hurðina, »það er svo gaman að heyra sagt frá liðinni æfi — eða er ekki svo? — liðinni æfi annarra manna« Að svo mæltu gekk hann burt frá mági sinum og inn til Brady Gane. Gane var orðinn óþolinmóður að biða; hann hafði hönd á öllu þar inni til að vita, hvort hann fyndi þar ekkert, sem vert væri með sér að hafa; lagði hann í snatri frá sér dýrindis myndahefti, rétt í þvi er Payne gekk inn. »Jæja, hvar eru þá gimsleinarnir ?« spurði Gane. Payne hristi höfuðið, og var auðséð á honum, að honum hafði ekki gengið alt að óskum og Gane starði á hann næsta for- vitnislega. »Það mun þó ekkert vera til fyrirstöðu, vænti eg?« spurði hann i hljóði. Ef svo er i raun og veru, þá er þér íarið að fara aftur með vitið, Syd. En það get eg sagt þér með sönnu, að mér leiðist það hátta- lag þitt, að þú lætur okkur reika íram og aftur og bíða heila eilífð eftir úrslitum. Komdu nú með það, hvar hefðurðu það?« Payne inátti nú taka á þvi, sem hann hafði til, til þess að geta haldið sér róleg- um, því það hafði ávalt góðar verkanir á þessa lögunauta hans, þvi að þeir voru vanstiltir. En þegar Payne hugsaði til þess, að svo lá .nærri ófæru fyrir honum, þá kom nokk- ur óstyrkur yflr hann, augun urðu flótta- leg og leituðu út að glugganum, meðan hann var að tala. »Það er maður frá Skotland-Yard á vakki hérna úti fyrir«, sagði Payne. »Hann er að elta þig, Gane. Þú verður að hypja þig, ef þú getur, svo íljótt sem þér er unt og gættu þess loks að fara eigi rakleitt til Evans. Þegar þú hittir hann. skaltu segja honuni að fara varlega«. Gane varð nú allur annar á svipinn við þetta, honum óx óþolinmæðin og skapið harðnaði. »Já, þakka þér fyrir, þú hefir nú leikið þennan leikinn fyr. Það tjáir þér nú ekki oftar«. »Hvað átlu við?« spurði Payne, þó hann auðvitað skildi fullvel hvað Gane fór, »Hvað eg á við ? Þú sagðir mér nákvæm* lega sömu söguna. þegar eg kom að heim- sækja þig í gistihúsinu. Þá sagðir þú, að maður væri að elta mig úti fyrir, og þú gætir ekki afhent mér gimsteinana, af þv* að hann væri viðbúinn að grípa mig. Pð fullyrtir að hann næði mér, áður en eg kæmist út úr húsinu og mutidi þá kalla á þjón sinn og taka mig þegar fastan. »Það má ekki taka þig fastan með allar þessar gersemar á þér«, sagðir þú, og eg var svo heimskur, að eg lét þig, eins og endranser, gabba mig og labbaði svo tórahentur burt. Eg get hugsað mér, að þú hafir hlegið dá- laglega að mér«. Payne settist nú niður í hægindastól og kveikti í vindli. Nú átti hann mikið starf fyrir hendi, að fá Gane til að fara burtu friðsamlega, en þó tómhentan. Augun í Gane urðu alveg kringlótt af vonzku. »Heyrðu lagsi«, mælti hann, »n11 vil eg engan þvætting heyra. Farðu og sæklu steinana og svo skulum við skifta þeim. Eg vil ekkert glens heyra Iengur«. »Eg er ekki i þvi skapi, að eg geri að gamni minu núna, öðru nær«, mælti PáU* og þvi siður langar mig til að vera tekinn fastur sem gimsteinaþjófur. Og þar sem svo

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.