Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Qupperneq 15

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Qupperneq 15
HEIMILISBLAÐIÐ 159 liafi því -aftur horfið tii heimskunnar«, þeirrar heimsku, að vanvirða og vanrækja viturlegan vilja Guðs: Guðselsku og mann- kærleika, lögmálið, miskunnsemi og trú- festi, réttvísi og frið. Nokkru af þessu gleymdu þjóðirnar strax, þegar þær voru að semja frið eft- ir heimsófriðinn 1918, og þessu hafa bæði einstaklingar og þjóðir oft og í mörgu gleymt síðan í hugsunum sínum, orðum og athöfnum, bæði út á við og innbyrð- is, og flestir og flestar hugsað, talað og unnið einungis hver fyrir sig og sitt, en á móti öðrum, svo að af hefir lilotizt og hlýzt sífeld innbyrðisstreyta og stríð um gæði þessa lífs, sem hefir oft og getur alt af endað með ósköpum, ef eigi er af látið. Og hér á meðal er þá ekki sízt liið illkynjaða og ólánsfulla flokka- og stétta- Stríð meðal flestra þjóða nú, eins og það er nú háð nær alstaðar í heimi hér, þar sem hver þjóðfélagslimurinn er öðrum óvinveittur, ósanngjarn, ónærgætinn og grimmur, og gerir hver annan veikan og vanmáttugan 1 stað þess að styrkja hver annan, og gera allan líkamann heilbrigð- an, hraustan og fagran., En svo sárgrætilegt og næstum ótrú- legt sem það er, þá á þetta ekki síður heima hér, hjá vorri fámennu og smáu þjóð, en annarstaðar! Um leið og vér því nú eigum, megum og viljum lofa Drottinn allsherjar fyrir alt það marga og mikla, góða og blessaða, sem oss hefir hlotnast á umliðnum tíma, bæði sem einstaklingum og þjóð, og sér í lagi nú á síðastliðnum 20 árum, en þó alveg sérstaklega fyrir dásamlega hand- leiðslu hans, varðveizlu og viðhald þjóð- ar vorrar í gegnum alt, sem hér hefir gengið á, í meir en 1000 ár, þá megum vér þó allra sízt gleyma, að minna sjálfa oss og hvern annan á þann margsýnda og reynda sannleika: Að *ef Drottinn bygg- ir ekki húsið, þá eríiða smiðirnir til einsk- is. Og ef Drottinn gætir ekki staðarins þá vaka verðirnir til ónýtis.« Og svo þessi orð friðarhöfðingjans, frelsarans Jesú Krists. »Hvert það ríki, sem sjálfu sér er sundurþykt, mun leggjast í auðn; og sérhver borg og hvert heimili, sem er sjálfu sér sundurþykt, fær ekki staðizt«. Nei, enginn skyldi nú þessu gleyma, en allir ætíð muna, svo að vér nú hver einn og allir saman mættum knýjast til að biðja þess af brennandi hjarta, að oss og þjóð vorri megi veitast vizfca og náð til bróðurlegrar einingar og fniðsetndar, sam- hjálpar og eflingar til alls góðleiks, göfgi og gæfu fyrir líkama og sál hvers eins og allra sameiginlega. Ó, að vér allir og þjóðin vor öll, sæi nú og skildi þetta, og hvílíkt bæði tím- anlegs og eilífs lífs og farsældarskilyrði það er, og vildi svo og reyndi með aðstoð Guðs að breyta eftir því, og þar með fá bætt úr því, er á brestur nú og síðar Því að svo sannarlega sem hver einn og þjóðin öll vill og reynir með Guðs hjálp að ganga á Guðs vegum, þá megum vér fagnandi sjá og tala um svipaðar dýrðar- sýnir fyrir land vort og þjóð í komandi framtíð og Gyðingaspekingurinn forðum sá fyrir sína þjóð, ef hún »hyrfi ekki aft- ur til heimskunnar«. Þá myndum vér nú vissulega sjá sannarlegt frelsi og sjálfstæði fram undan, miskunn og trúfesti mætast‘ réttvísi og friður kyssast og jörð og him- inn hjálpast að til að auka dýrð vors ástkæra fósturlands, svo að það yrði enn fegurra, frjórra og yndislegra, og fólkið í því farsælla en nokkru sinni fyr. Því alt ber að einum og sama brunni. Sagan og reynslan og lífið sjálft sýnir það og sann- ar: Með Drotni blessast og varðveitist alt, en móti Drotni hrynur alt og ferst. En hver er þá þessi Drottinn? Það er sjálfur skaparinn, alfaðirinn, faðir Drott- ins vors Jesú Krists og faðir vor á himn- um, og Drottinn Kristur sjálfur, því að hann og faðirinn eru eitt. Undir hans merkjum og stjórn munum vér og þjóð- in vor standast og sigra í öllu óhjákvæmi- legu stríði, komast hjá ótalmörgu stríði

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.