Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 20
164 HEIMILISBLAÐIÐ »Ég hefi vatn, herra«, og gamli maður- inn tekur leðurflösku úr mal sínum. Um leið og konan tekur við sva’adrykknum, lítur hún á gamla manninn, og nú sér hann, aftur ástúðlegu barnsaugun, sem höfðu vakað yfir honum síðustu árin. »Eruð þið frá Nazaiet?« spyr hann. »Já,«> svarar Jósep, »við erum á leið til ættborgar okkar, Betiehem, en konan mín er þreytt«. Og hann horfir áhyggjufullur framundan sér. »Isi aels Guö launi þér og friður sé með þér«, segir konan og svo halda þau af stað. Gamli maðurinn horfir á eftir þeim, svo heldur hann af stað í sömu átt og þau. Degi tekur að halla og altaf fækkar m 'nnum á veginum. Skamt fram undan skipti t vegurinn og liggur annar að Dauðahafinu til Jeríkó. Hið æfða eyra gamla m nnsins hafði um stund heyrt, hreyfingu í kjarrinu með fram veg num og hljóðið færist, nær. Hann staldrar við, lítur í kringum sig og nú sér hann greini- lega tvö grimdarieg andlit í i unna við veg- inn. Kann bíður og mennúnir koma, þeir þrífa í handkgg hans cg annar heldur blikandi hnífi. »Gamli refur«, segja þeir, »hvert ætluðu hjúinj, sem þú talaðir við í dag?« »Hvað viljið þið þeim, bræður?« spyr hann. »Engin undanbrögð«, grenjar annar, »konan er með skartgripi«. »Hvað fæ ég, ef ég segi ykkur það?« spyr gamli maðurinn. »Við skiptum bróðurlega meö okkur. gamli bragðarefur«, segja þe'r, en svip- urinn í ancbiti þeirra segir annað. »Fylgið mér«, segir gamli maðurinn, >>ég veit um götu, sem gott er að fara og er styttrk. Hann byrjar að staulast niður gilið, sem liggur niður í áttina til Jeríkó og þeir elta harn. Lengi brjótast þeir gegnum kjarrið og niður klungrin og ioks- ins koma þeir að veginum, þar sem hann liggur niður á við, allur í bugðum. Þeir horfa og hlusta, en ekkert: sést og ekk- eit heyrist nema kvöl 'golan, sem þýtur í skra lnuöu laufinu. Um stund halda þeir áfram eftir vcginum. Nú er sólin sezt og myrkrið bre'ði t yfir jörðina, eins og svart tjald. Gamli maðurinn staulast á undan, furðu fótfimur, í huganum fylgir hann Jósep cg Maríu og hugur hans er fullur af gleði og friði. Við hvert spor, sem hann stígur, fjarhxgist hættan. þau, en nú er ræningjunum farið að óróast. »Þú hefir svikið okkur, gamli bragða- refur, þau hafa ekki ætlað t-il Jeríkc«. »Spor mannsins- liggja út í óv'ssuna«, tautar gamli maðurinn, en hann endar ekki við setninguna-, það blikar á hníf og lág stuna heyrist — gamli maðurinn hníg- ur niður. Uppi á dökkblárri næturhvelfingunni skína stjörnurnar fleiri cg fleiri, en nú skeður undur, ný stjarna ljómar, eins og lilja, sem opnar b kar sinn, þannig breið- i t hún út á næturhimn num og er bjart- ari en sólin cg geislinn færist leitandi eft- ir þjcðveginum mikla og staðnæmist- ekki fyrri en í opnum c-yrum fjárhúss við Betle- hern, þar .skín hann á unga móður, sem vefur barn sitt reifum og horfði á það augum fullum af kærleika, en stjörnuljóm- inn faomar fa tur barnsins. Ágústa Ölafsdóttir.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.