Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 34

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 34
178 HEIMILISBLAÐIÐ vizkusemi, stundvísi og reglusemi í hví- vetna, voru listir, sem liann lærði á þess- um árum og mótuðu síðar alt líf hans. A götunni og í skólanum var hann kátur og kotroskinn, og fann upp á ýms- um brellum. Einkum mun hann oft hafa reynst söngkennaranum í skólanum erf- iður. Hann var þá með allskonar dutl- unga. En það er svo einkennilegt, að á slíkum dutlungum har aldrei, eftir að Caruso fór að eiga mök við leikhússtjóra og aðra þá, sem um hljómleika hans áttu að sjá. En það er þó mjög títt, að söng menn og söngkonur, sem mikið þykjast eiga undir sér, eru mestu kenja-kindur Fyrsti kennarinn, sem hann naut einka tilsagnar hjá í söng, var Alessandro Fas anaro, sem hrátt varð þess var, að dreng- urinn hafði prýðilega rödd og taldi lík legt, að hann myndi líka vera gædd ur leikarahæfileikum. Þetta vakti svo áhuga kennarans, að hann gaf móður En- ricos eftir kenslugjaldið, 5 líra á mánuði Caroso kom sér vel vegna þess, hve prúður hann var í framkomu, og með stakri ástundun tókst honum að vekja svo á sér athygli, að hann varð fremstur ein söngvari í kirkjukórnum. Sagt er að kenn arinn lians hafi verið nískur maður, en þó hefði það oft komið fyrir, að hann véki að Enrico fáeinum lírum, að lokn- um samsöngvuin. Caroso var ekki nema tíu ára gamall þegar liann varð að i'ara að vinna fyrir heimilinu. Hann varð að hætta í skólan- um og réðist sem lærlingur á vélavinnu- stofu. Kaupið var tvö soldi á klukku- stund. En þó að hann yrði nú að vinna erf- iða vinnu og hefði langan vinnudag, gaf hann sér tíma til að halda áfram söng- náminu, og sýndi þá þegar nokkuð af því fádæma vilja- og vinnuþreki, sem liann var orðlagður fyrir á fullorðinsár- um. Hugur lians og hjarta var helgað söngnum og hljómlistinni, og syngjandi var hann seint og snemma. Öðru hvoru var hann fenginn til að syngja í veizlum eða við hátíðaliöld í kirkjum. Hann átti í sér liinn heilaga eld listamannsius, og aldrei var hann svo þreyttur að loknu erfiðu dagsverki í smiðjunni, að liann hafnaði slíkum tæki- færum. Hann var ákaflega glaðlyndur, svo að jafnan geislaði af honum glaðværðin, hvar sem hann var, og þó að hann ætti það til, að vera dálítið kenjóttur, eins og áð- ur er sagt, þegar söngurinn var annars vegar, þá var hann mjög umgengnisgóð- ur, og forðaðist jafnan stælur og illdeil- ur, og þetta voru einkenni hans alla æfi. En ákaflega var hann viðkvæmur fyrir dómum manna. Það var þá og ein ástæð- an til þess, að hann lagði sig altaf all- an fram, lagði sig aldrei niður við kák eða hroðvirkni, og gilti hann einu, hverj- ir voru áheyrendurnir. Þetta er dygð, sem mörgum væri liolt að taka sér til fyrirmyndar og eftirbreytni. Með söngnum áskotnaðist honum nokk- ur aukageta, sem kom þeim mæðginum í góðar þarfir. En það var fjarri því, að líf hans væri leikur, og engum kom til hugar þá, — lionum sjálfum ekki held- ur, — að söngmentun hans leiddi til þess, að hann gæti gert sönginn að lífs- starfi sínu. Það voru hendingar, sem virt- ust ráða örlögum Enricos, og alvöru- þrungin var sú stund, sem úrslitunum réði. Hann hafði verið beðinn að syngja við helgiathöfn 1 Neapel, 1. júní 1888. Car- uso kom ekki og söngstjórinn þaut lieim til lians, til að grenslast um, hverju það sætti. Hann hitti drenginn grátandi og sárhryggan. Móðir lians hafði veikst skyndilega og hann vildi ekki fara frá henni. En liún taldi hann sjálf á að fara og drengurinn fór hágrátandi til kirkj- unnar. Og síðar sagði hann, að þá hefði hann sungið Guði lof og þakkargjörð af hug og hjarta fyrir það, að hann hefði gefið sér svo góða móðui. Og víst er það,

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.