Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 36

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 36
180 HEIMIL'ISBLAÐIÐ inn við leikhúsið til fjögra vikna. Þar söng hann meðal annars í Rigoletto eft- ir Verdi, og leysti það hlutverk svo vel »af hendi«, að hann var síðan ráðinn til Cairo, mánaðartíma, fyrir sex liundruð líra, en það fanst honum, í þá daga, geysilega mikil upphæð. Nú hélt hann, að alt ætlaði að fara að ganga að óskum. 1 Cairo söng hann aðalhlutverkið í mörgum söngleikjum, við góðan orðstír, og þegar hann kom heim til Neapel aftur, var honum strax boðinn samningur við leikhús þar vetr- arlangt, með góðum launum. Ekki var þó andstreymið enn úr sögunni. Ein- hverra hluta vegna, sennilega helzt fyrir það, að enn kom það fyrir, að fyrir brunnu hjá honum háu tónarnir, náði hann ekki hylli söngdómaranna. Þeir heltu sér yf- ir liann miskunnarlaust, og hann varð að hverfa frá leikhúsinu, áður en liðinn var ráðningartíminn. Leið nú langur tími svo, að hann fékk hvergi fasta stöðu. Og honum ltið illa. Hann var altaf að glíma við háu tón- ana, og nýr kennari, Lombardi að nafni, sem hann stundaði nú nám hjá, lagði sig allan fram um að sigrast á þeim erfið- leikum sem það olli Caruso, að verða öruggur á þeim. Alt, sem vitað var um andardráttar-»teknik», var reynt á Caru- so. Og með fádæma elju og þrautseigju af beggja hálfu, kennara og nemenda, tókst loks að vinna hug á þessum kvumleiða ágalla. En Caruso liélt þeim hætti alla æfi, þegar hann var að syngja á söng- eða leiksviði, að hann bjó sig undir háa tóna þannig, að hann stóð gleitt á leik- sviðinu og laut höfði, en um leið og tónn- inn myndaðist, hreinn og öruggur, kast- aði hann aftur höfðinu, og horfandi liátt fylti liann síðan salinn hinum dýrðleg- ustu tónum, sem nokkurntíma hafa heyrst úr karlmannsbarka. Eftir þetta erfiða tímabil, komst Caru- so loks að leikhúsi í Livorno, og taldi hann, að þar hafi hann fyrst notið sín og þar byrji listamannsferill hans, sem er einhver hinn glæsilegasti, sem sögur fara af. Tónskáldið Puccini hafði þá ný- lokið við söngleik sinn »La Boheme« og þar fengu notið sín allir beztu liæfileik- ar hins unga söngvara, — og þar kynt- ist hann konu þeirri, er síðar varð eig- inkona hans, Ada Giachetti, sem var einn leikandinn. Upp frá þessu fór Caruso að ganga vel. Hann vann hvern stórsigurinn á fætur öðrum, söng sem gestur á leikhúsum víðs- vegar á Ítalíu og atvinnutilboðum rigndi yfir hann. öfundsýki og ýmiskonar and- úð af skyldu tagi, átti hann við að stríða. En með dásamlegum söng sínum, ágæt- um leikarahæfileikum og ekki sízt með dæmafáu glaðlyndi og glæsilegri og ljúf- mannlegri framkomu, óx hann fljótlega upp úr allri andúð og öllum smásálar- skap þeirra, sem höfðu hug á því, að draga úr vinsældum hans. Meðal annars fékk liann tilboð frá Rússlandi um sex þúsund líra þóknun á mánuði, fyrir að syngja á keisaralega söngleikahúsinu í Pétursborg. Hann lagði ákaflega mikið á sig og varði öllum stundum til þess að læra ný og ný hlutverk. Hann var glaðvær, eins og áður segir, og mjög látlaus 1 allri framkomu, svo að aldrei varð þess vart, að hin mikla frægð hans stigi honum til liöfuðs. Næst ber það til tíðinda, að hann ræðst 1 söngferðalag til Suður-Ameríku, — og nú er þóknunin komin upp í 45.000 líra á mánuði, — og í Buenos Aires lá við að hann ærði fólkið. Þegar hann kom heim aftur, til Italíu, var honum fagnað vel og söng hann nú um skeið í ýmsum leikhúsum, en alltaf hélt hann áfram að bæta við sig hlut- verkum og er sagt, að þegar hann hætti að syngja, hafi hann haft á söngskrá sinni rúmlega sextíu stór óperuhlutverk, og er það fádæma mikið, og ekki var nóg, að geta sungið ítölsku textana, heldur varð

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.