Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 45

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Blaðsíða 45
telja mis neitt betri mann fyrir því. En þér ættuð að kynnast honum hversdags- lega: þá ei hann vís til að ganga um gólf tímunum saman, án þess, að tala orð frá munni«. »Og eru það þá ætíð beztu og mestu mennirn r, sem mest masa? Haldið þér, að orðm tlgm skapi auðugt hjarta?« »Nei, það held ég nú reyndar ekki, en mér finst, að einstaka sinnum sé þó hægt að tala saman, án þess að samtalið þurfi að veia svo djúpsætt. Annars gætu menn auðveldlega freistast til að steinþegja allan daginn. Og ef hann ber svo mikla vizku innanbrjósts, eirxs og þér hyggið — því miðlar hann þá ekki okkur hinum dálitlu af henni? öll hans vizka er þá ekki annað en dauður og ávaxtalaus fjársjóður. ef hann lætur engan njóta góðs af honum«. »Hafið þ'r nokkurntíma farið fram á þetta við hann, og hann neitað yður?« Ég var nærri því orðinn hræddur um, að ég hefðr gert Emmu reiða. Mér hafði alls. ekki í fyrstu komið til hugar, að ráðast svona, á Gamla; eni það er nú svona: þegar vér heyrum einhverjum: hælt mjög mikið, þá hættir oss við, að malda í móinn, benda á lýtin, ef nokkur eru, og gera, meira úr þeim, en vér í fyrstu ætluðum oss. Nú vorum við komin út að kirkjugarð- inum; cg við vorum, búin. að ganga, víst tvisvar í kringum hann, án þess að ég tæki eftir því. Rg staonæmdist og fór að horfa í kringum mig; og Emma hefir máske hugs- að, að hún hefði verið of áköf í hrósinu um Gamla, því að hún stanzaði líka. Andrea Margrét og Korpus Júris komu á móti okkur hlæjandi og masandi. Þau voru auðsæilega í kappræðu um eitthvað, en þó í mesta bróðerni, því að þau hlóu eins mikið og þau mösuðu. Eftir stundar- korn voru þau komin svo nálægt okkur, að við gátum heyrt orðaskil. »Já, það átti hún að gera«, sagði Andrea Margrét með ákafa; »ég myndi hafa gert það sama í hennar sporum«. »Hvaö?« spurði ég, því að þau voru nú komin til okkar og stönzuð. »Friðrik var að segja mér sögu um unga fagra riddaradóttur, sem bjó í gömlum kastala liinum megin við fjörðinn, og neit- aði sjö biölum«. »Nú — hví var hún að því?« »T,1 þess að sýna þeim, að hún væri sjálf- stæð, og g eti valið um biðlana. Eg myndi hafa gert, það sama«. »Svc-o«, sagði cg, cg dró það á eftir mér; ég gat ekki annað; og svo þagnaði ég. Við snerum nú baki að kirkjugarðinum og héldum heim á leið. Svo sagði ég eftir dálitla þögn: »Kannist þér ekki við kvæðið »Rósasmá og Rosumamma«?« »Jú, víst kannast óg við það«, sagði Andrea Margrét, án þess, að gi una hvers- vegna ég spyrði að þessu. »Viljið þér ekki syngja það fyrir okkur?« »Jú, með mestu ánægju«, svaraði Andrea Margrét og var hálf h ssa á. þessari bæn minni. En þegar hún var nærri því búin með kvæðið, og ég tók undir hendinguna: »Rósa varðsvo rjóð, eins og rennandi blóð«, þá skyldi hún loksins, hvert ég hafði stefnt. Samt, stansaði hún ekki, heldur söng kvæð- ið á enda, og sagði svo: »Yöur likar víst vel við þann herra Pétur?« »Já«, svaraði ég hugsunarlaust. »Því get ég vel trúað; en kannist þér þá, ekki vió kvæðið um, hann Pétur vesaling?« »Nei, það kannast ég ekkert við«. »Jæja, þá skal ég syngja það fyrir yö- ur«, — og hún söng þessi erindi: »Hann Hans og hún Gréta dansa svo dátt eftir diílandi h,ljómafalli; en vesaíings Pétur læðist lágt Líkur kríl. á vangann, á palli. Hann Hanp og hún Gréta eru brúðhjón blíð I blikandi fögrum klæðum. En Pétur — hann nagar nöglur í gríð 1 nístandi betlaraslæðum«. Síðan sneri hún. sér til mín og sagði: »Hvernig lizt yður á þenna Pétur?«

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.