Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Síða 21

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Síða 21
HEIMILISBLAÐIÐ 165 YOWIIIR RÆTÁST Aldrei er hugur mannsins eins móttæki- fyrir hið fagia, sem fyrir augun ber, og þegar líkt et ástatt um hugarástand hans e'ns og Maríu Ásláksdcttur á Grumd þetta bjarta og heiðríka síðsumarskveld. Hún var einkad ’ttir Ásláks bónda á Grund og- konu hans Steinunna'-. Hún var tvímælalaust fallegasta stúlka sveitarinnar, a. m. k. voru piltarnir sammála um það; hún var hvérs manns hugljúfi og faðir hennar var mik- ils metinn bóndi sf einni elztu bændaætt landsins. Pað var enginn efi á, því, að hugs- anir Maríu voru í samræxni við fegurð og birtu kveldsins, þa,r sem hún keptist við að raka siðustu leifarnar af heydreifinm og varð öðru hvoru litið heim að bænum. Birta og um .leið nokkurskonar feimnissvip- ur færðist yfir andlit hennar í hvert sinn sem hún sá hávöxnum pilti bregða fyrir úti fyrir neyhl ’ðunni. Pessi piltur var einn af kaupamönnum föður hennar, Baldvin að nafni. Hrnn var mesti efn'spiltur, fríð- ur og farlmannlegur. Hann og María voru á líku reki, unnu saman og fanst mikið 11 hvor,s annars k,oma. Þau kyntust betur og betur, func u altaf betur hve þau voru andlega lík, og þau fundu líka,, að þeim þótti vænt, hvoru um annað, ekki eins og þau v.cru systkini; nei,, Baldvin fann það að hann myndi aldrei geta gert sig ánægð- an með að henni þætti vænt, um hann, sem bróður e a góðan kunningja; hugur hans heimtaði a,lt, eða — að öðrum kosti ekkert, Hugur Maríu dva’di oftar hjá Baldvin eftir því sem leið á sumarið. Hún reyndi að kæfa þessar hugsanir í fæðingunni, reyndi að telja sér trú um að hún væri oí ung til að hugsa þannig, að foreldrar henn- ar myndu álíta það barnaskap einn, og — það sem verst. var, að hugur Baldvins v ri bundinn hjá, annari stúlku. Hún hafði nefnilega heyrt því fleygt, að hann myndi vera trúlofaður heima í sveitinni sinni. Alt þetta ásitti Maríu alt af meira og meira, hin vaknandi ást annarsvegar og slúðursögur og hindurvitni tíða; andans hinsvegar; það var jafnvel ekki laust við að þunglyndi ásækti hana á þessu sumri, í fyrsta skifti á, æfinni, því að hún hafði fram að þessu verið glaðlynd sveitastúlka, sem lítið eða ekkert þekti til alvöru lífsins, »barn náttúrunnar« í þess orðs fylstu merkingu, barn sveitalífsins, sem gladdist af hjarta þegar fyrstu blómknapparnir gægðust upp úr moldinni á vorin, og fyrstu farfug’arnir létu til sín heyra, En svo kom hamingjan. Baldvin, var að binda síðustu baggana og María keptist, við að raha. Petta var síðasta hirðing inn- angarðs :g fóikið var farið heim að und- anteknum þeim Baldvin, Maríu og ungl- ingspilti, þeim var falið að binda og koma heim síðustu böggunum. Baldvin var bú- inn að binda og sendi drenginn hei.m með hestana. Ég þarf ekki að skýra frá þvi, sem gerð- ist á þsssu kveldi. Undir geislum hinnar hverfandi sólar bundust þau hvort öðru. Þegar Baldvin hljóp heim túnið, beinvax- inn og tígulegur, greip María hrífuna sína og hélt á'fram að raka, þó að hugur henn- ar dveldi njá Baldvin, þessum göfuga, fríða og karlmannlega pilti, sem hún nú vissi að átti hug hennar heilan og óskiptan, og — sem hún hafði komist að raun um að elskaði hana, ekki síður en hún hann. Veturinn er oft harður viðureignar hér norður við Ishaf, ekki sízt í sveitum lands- ins, þar sem einstaklingarnir eiga ,sem sagt alt, undir dutlungunr íslenzku vetrarveðr- áttunnar. Oft skilur veturinn eftir sár í hjörtum landsinsi barna, sár, sem tíminn einn er fær um að græða, og sár, sem ef til vill græðast aldrei til fulls.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.