Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 25

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Page 25
HEIMILISBLAÐIÐ 169 það, að á »Queen Elisabeth« eru aðeins tveir reykháfar, — en þrír á *Q. M.«, þó að nýja skipið sé mun stærra en liitt. Þetta er árangur af tæknilegum endur- bótum, uppfinningum og reynslu síðustu ára. Hver reykháfur er gríðarlega fyrir- ferðarmikill, og hefir því unnist með þessu mikið rúm fyrir salakynni, og auk- ið þilfarsrými. Það er enn fremur nýstár- legt og til tnikils fegurðarauka og rúm- sparnaðar, að svo að segja allur vírstrengja- útbúnaður og loftræstingalagnir, er falið inni í reykháfunum. »Q. E.« á að hafa 3 akkeri (»Q. M.« hefir tvö), og á þriðja akkerið að vera í miðjum bógnum, og sérstaklega til þess haft, að auðvelda lend- ingu í Southampton og New York. En þetta leiðir aftur það af sér, að bógur- inn er með nýju lagi. Annars eru skip- in mjög ólík að lagi, framanvert og »lín- urnar« í skrokk »Q. E.«, frá stefni og aftur að stjórnpalli, miklu fegurri en í «Q. M.« Nýja skipið á að hafa fjórar »skrúfur« og vegur hver þeirra hvorki meira né minna en 32 smálestir. Þær eru, liver um sig, knúðar af sínu sérstaka vélakerfi. Hverju þessara vélakerfa tilheyrir fer- legt »drifhjól«, sem knúð er af fjórum »túrbínum«. Hvert drifhjól er 14 fet að þvermáli, og samanlagt vega þau öll, fjög- ur, 320 smálestir. Tólf, gríðarstórir gufukatlar, knýja þess- ar 16 túrbínur. Þessir katlar eru þeir stærstu, sem nokkurntíma hafa bygðir verið, og í þeim eru 71.000 pípulagnir. Aðallögnin ein verður rösk 3000 fet að lengd! Nota á olíu til eldsneytis og verður hert á kyndingunni með sjálfvirkum súg- auka (viftum). Fjörutíu olíugeymar verða í skipinu, en frá þeim liggja 4000 feta langar pípulagnir til eldstæðanna. Auk aðalvélanna, verður í skipinu raforku- stöð, sem nægja myndi borg með 200 jmsund íbúmn. 30.000 rafmagnslamjjar verða í skipinu. Þrjátíu og tveir samkvæmissalir verða í skipinu, svo skrautlegir að öllum bún- aði að aldrei hefir annað eins sést. Þrjú eiga farrýmin að verða, — eins og tízka er nú: »Lúxus«-farrými, ferðamannafar- rými (»tourist-class«) og jjriðja flokks farrými. A dýrasta farrýminu verður skrautlegur »veranda«-gildiskáli á sólskýl- isþilfarinu og samfeldir tíu samkvæmis- salir á »prómenade«-þilfari, og auk jæss stór sjónleika- og hljómleikasalur. Og svo verða þarna auðvitað allskonar skemmti- staðir, lestrarstaðir og hvíldarskálar, leik- fimissalir og gríðarstór sundskáli. 1 þessu skipi verður mikil rækt lögð við það, að gera þriðja flokks farrými mun betur úr garði, en áður hefir tíðk- ast. Það er meðal annars nýmæli, að í þessu skipi, verður þetta farrými miklu ofar í skipinu, en venja hefir verið til. Og farþegar á þessu farrými eiga að hafa aðgang að stórum íjjrótta-»velli«. Eins og drejnð var á hér að framan, flutti Elizabeth Englandsdrotning ræðu, þegar »Q. E.« var rent í sjó, eða öllu heldur: hún flutti skilaboð frá Georg VI. Bretakonungi, manni sínum, en hann hafði orðið að hætta við förina til Glas- gow á síðustu stundu, vegna j>ess, hve alvarlegt var ástandið í Miðevrópu ein- mitt þá dagana, og liorfur á, að ófriður myndi ef til vill blossa upp á hverri stundu. En eins og kunnugt er var Bret- land mikið riðið við deilumál Tékka og Þjóðverja. í þessurn lconungsboðskap, sem drotningin flutti, hvatti hann j)jóð- ina til Jæss að Játa sér hvergi bregða, þó að þungbúin virtust vera ófriðarskýin, sem yfir henni vofðu, — og heiminum öllum. Konungur kvaðst vita það, að J)jóð- in myndi nú sýna fullkomna stillingu, hvað sem í kynni að skerast, og meiri hreysti og fórnfýsi, en nokkru sinni áð- ur, eí til |)ess þyrfti að taka. Ilann kvaðst ennfremur vita, að Jyjóðin treysti l'orráða- mönnum sínum, þeim, sem með þessi mál ættu að fara, og með Guðs hjálp

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.