Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.10.1938, Síða 42

Heimilisblaðið - 01.10.1938, Síða 42
186 HEIMILISBLAÐIÐ fullviss, aó við va^rum drukknuð; og þá hafði hann úrvinda af sorg cg örvæntingu snúið heim aftur til þess að tilkynna af- drif okkar; en á leiðinni hefði hann dottið niður í einhverja gryfju og þá hefði hann sem snöggvast orðið meðvitundarlaus. Svo hafði hann einhvernveginn klórað. sig upp úr þessari gjótu, og nú væri hann hingaö kominn og hérna hefði hann fundið okkur, bæði heil á húfi; — en auðvitað þurfti hann nú ekki aö tílkynna okkur þetta, því að þctð vissum við eins vel og hann sjálfur. Við gláptum hver á annan, við Gamli, og það var mjög erfitt um það ?ð dæma, hvor okkar var ver útleikinn. »Sjáið«, sagði presturinn og benti á Gamla: »Þarna er frumritið; og þarna er i'nnur útgáfa«, bxtti hann við og benti á mig; »uppprentunin er ág vt; — það var annars leiðinlegt„ að búið var að finna prentlistina; við hefðum annars sem bezt getað auögað he'minn að upj)fin,ningunni«. Prestkonan sótti nú edik og vatn, og fór að baða ennið á Gamla; kom þá í ljós, að sárið var lítiö og ads ekki hættulegt; og svo fórum við báðir upp í herbergin okk- ar, til að hafa fataskifti. Það var annars gott, að ég var þarna, til þess að hjálpa Gamla, því að hann var svo utan við sig, hann eiginlega vissi hvorki í þenna heim né annan. Fyrst ætlaði hann í fötín af Korpus Júris, cg þegar ég bentí honum á þessi misgrip, þá ætlaði hann, í jakkann á undan vestinu. Loksins var hann jjó búinn að hafa fataskifti og fór niður aftur. Ég hafði fa+askifti í snatri, og var í þann veg- inn að fara út úr herberginu, en þá datt mér alt í einu í hug haninn sæli. »Það er tími til þess enn þá«, hugsaði ég með mér. »Eg hefi enn þá ekki fceðið ósigur. Enginn hefir enn komist á snoðir um fyrirætlun mína; það er enn þá hocgt að framkvæma það. Nú veit ég hvernig húsum er háttað, þarna, fyrir handan. Eg get snöggvast skot- ist, yfirum og sótt hanann, farið með hann inn í herbergið cg látið hann þar á vísan stað; og svo get ég farið inn í stofu til þe'rra, eins og ekkert sé um að vera — og Andrea Margrét skal engan grun um þetta fá, hvað þá heldur aðrir«. Svo hugs- aði ég mig ekki lengur um þet.ta, en þaut í harða spretti yfir í hænsnahúsið, athug- aði vel, hvort Tryggur, Níels eða prestur- inn væri þar á sveimi, lauk upp hurðinm. gætti fóta minna, svo þeir lenti ekki ofan á öndunum og náði hananum, án þess að nokkur hávaði yrði. Og síðan þaut ég í sama sprettínum aftur upp á loft og inn í herbergi bróður míns. Þar stóð stór klæða- skápur og náði hann nærri því upp í loft. Uppi á hcnum hugkvæmdist mér að geyma hanann. Þar var að vísu fremur þröngt, en ég ýtti dálítið á hausinn á han- anum og þá komst hann fyrir þarna. Það fór að vísu hálf illa um hanatetrið þarna, en haninn var heldur ekkert ungbarn, og því ver, sem fór um hann, þess fyr myndi hann gleðja Korpus Juris næsta morgun, með indælu röddinni sinni. Þegar ég kom niður aftur, var alt fólkið sezt að kvöld- verði. »Heyrio þér, Nikclaj!« sagði prestskon- an, »viljið þér ekki gera svo vel og segja okkur, hvað þér voruð að gjöra, þarna fyr- ir handan — ég á við í hænsnakofanum«. Mér hafði ekki komið til hugar, að ég að nýju þyrfti að standa fyrir rétti, út, af þessu hænsnahússmáli, og ég hafði því ekk- ert almennilegt svar á reiðum höndum. Ég reyndi samt að bjarga, mér eins og ég bezt gat; en ég fann það bezt sjálfur, að ósannindin, sem, ég bar á borð, voru, mjög ótrúleg og öll saga mín í molum. »Nú, jæja«, sagði presturinn., þegar ég loksins var búinn með söguna. »Dettur yð- ur nú annars í hug, að ég muni trúa sög- unni þeirri arna. Nei, ungi. vinur minn. Mig grunar, hvað muni búa undir þessu sakleysistjaldi, sem þér eruð að hrófa upp yfir myrkraleiksvið yðxr. Þér eruð Don Júan — reglulegur Don Júan — og það er óttalegt, að þurfa að segja það með sann-

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.